Friday, August 7, 2009

Gestaskifti.

Þá er búið að skifta um gesti. Guðný farin til Íslands og Vigfús kominn i staðinn. Klaus ók til Berlínar, og Arnhildur og Kristín fóru með. Allt gekk vel. Svolítil seinkun á vélinni, og tók sinn tíma að fá farangurinn. Guðný fékk fylgd, sem ég veit reyndar ekki hvað merkir. Allavega var Arnhildur með henni alveg fram að því að hún fór í vélina, og enginn annar. Þegar þau tékkuðu hana inn var þeim sagt að gera það sem fyrst því hún færi fyrst af öllum í vélina. En svo var hún látin bíða þar til allir voru komnir inn. Frekar asnalegt. Fúsi var því kominn og þau biðu eftir Arnhildi, en ekki nema í svona um korter. Komu svo heim rúmlega hálf tvö. Klaus vel þreyttur, og var ekki lengi að sofna. Vildi svo sannarlega að við byggjum nær flugvelli!
Þegar þetta er pikkað um hálf ellefu er ekkert lífsmark úr herbergi gestanna.

Margrét mín fór hins vegar á fætur klukkan hálf sjö í morgun. Skólinn byrjaði í gær, sniff, sniff. Henni líst nokkuð vel á þetta allt saman. Hún fær góðan enskukennara,- hann er líka hennar leiðbeinandi--tutor, - og hún er sátt við íþróttakennarann. Þekkir ekki alla, og er spennt að sjá hvernig þeir eru. Stundataflan típíkst þýsk!!!!! Hún er í tímum á fimmtudögum frá 7.30 til 16.00, og bara 15 mín hádegispása!!! Eiginlega ætti maður að kæra þetta lið fyrir alþjóðamannréttindadómstólnum. En svo er hún t.d. ekki í skóla fyrr en klukkan rúmlega 11 á miðvikudögum, og ekki i tveimur fyrstu tímunum á mánudögum. Og í tveimur hléum á mánudögum. Og getur á komið heim og borðað. Aðalatriðið að henni líki við þetta. Verður bara að læra að borða eitthvað af nestinu í öllum stuttu frímínútunum.

Það var voða sorglegt að kveðja Guðnýju, sem var heldur betur spennt að fara heim. Margrét stóð með tárin i augunum og maskarinn rann niður á kinn þegar bílinn fór. Við borgum dýru verði að vera ekki hjá fólkinu okkar, en við reynum að nota allar stundir sem við höfum og njóta þeirra sem mest.

Í gær var allt á fullu. Skóli, vinna, pakka, versla, þvo þvott, fyrsti tíminn í sjúkraþjálfuninni hjá mér. Má ekkert gera enn. Ekki hjóla nema beinar brautir og ekkert reyna á mig. Fer að verða frekar hvimleitt eftir tvo mánuði. Bara hvíld og rólegheit, ekki gaman! Veit að Kristín frænka skilur mig!
Samt tók ég rosa skurk í gær og þreif íbúðina. Margrét tók sitt herbergi og Arnhildur tók þeirra herbergi og ég þreif bara gólfið þar. Svo var sett hreint á rúmin, og baðið tekið vel í gegn. En ég lyfti engu og tók mér hlé!

Lennart kom í fyrsta latínutímann til Margrétar í gær, og stelpunum þótti það nú spennandi. Voða sætur strákur og hress. Jafngamall og stelpurnar.
Fyrsti bekkur byrjar svo á mánudginn í grunnskólanum. Við eigum að vera með 3 hópa og ekki 2 3iens og í fyrra. Það voru allt of mörg börn í hverjum hópEn ekki eru komin nógu mörg til að halda uppi þremur hópum, en tínist til á næstu dögum.

Margrét var hjá Birthe á mánudaginn. Við skruppum í bæinn og ég skilaði henni svo til Birthe og á meðan sátu hinar yfir ís í blíðunni. Við röltum um bæinn og fórum m.a. í garðinn hjá höllinni, og stelpurnar fóru undir risastórt tré, sem er með hangandi greinum. Voða sport. Komum við í Lidl, sem var með fullt af matvælum á tilboði. Margrét kom svo seint um kvöldið með einni, sem býr hérna rétt hjá. Erfitt að kveðja Birthe en eitt ár er svo fljótt að líða. Og á dögum tölvuvæðingar eru samskiftin miklu meiri en áður.

Við ætluðum að Tankumsee á þr., en Arnhildur var eitthvað slöpp, sem reyndist svo ekki vera neitt slæmt. Þær skruppu í völundarhús, sem var útbúið í mæsakri. Mjög gaman. Við renndum svo til Tankumsee á miðvikudaginn. Vorum ekki lengi því það voru svo margar vespur að mati KD, og sólin var roslega sterk. Eins gott að brenna ekki. Var samt gaman og komum við i Real til að kaupa súkkulaði á brauð fyrir Guðnýju til að tala með heim.

Og svo var bara pakkað og þvegið og gengið frá.

Það er ekki búið að vera erfitt að hafa Guðnýju, síður en svo. Hún fer aldrei fram á að fá nokkuð. Er stillt og prúð eins og við gömlu konurnar segjum:) Tók öllu með léttri lund og það var líka rosalegur munur fyrir KD að hafa hana til að vera með. Svo kenndi gamla frænka henni ýmislegt fróðlegt eins og t.d að tefla við páfann, bregða sér afsíðis og að bíta í það súra epli!!!! það þótti henni fyndið.

Jæja. Mér heyrist umgangur í herbergi gestanna. Ætli tengdasonurinn þurfi ekki bráðum kaffi.
Elsku Þórdís--takk fyrir sendinguna!!!! Snúður og vínarbrauð bíða Margrétar þegar hún kemur heim upp úr hálf þrjú.
Hafið það gott---og æðislegt að Kristín sé farin að blogga.
Malla-hvernig kemst ég inn á síðuna??? Hvar á að pikka lykilorðið??

4 comments:

Anonymous said...

Gott að heyra - og sjá - að gestaskiptin gengu vel. Hér væru menn alveg til í að fá aðeins af þessum hita ykkar, ekki síst núna fyrir norðan. En það hlýtur einhvern tímann að koma heyskaparveður þar. Þú áttar þig ekki á því hvað þú myndir borga það dýru verði ef þú byggir innan um fjölskylduna. Það eru ekki bara plúsar öðru megin og mínusar hinum megin. Allt hefur sína kosti og galla og tilveran verður því gleðilegri sem maður staldrar meira við það jákvæða og er minna upptekinn af hugsunum um hið neikvæða. Spurðu bara pabba! Ég öfunda þig t.d. mikið af staðsetningunni, að geta farið til sögufrægra staða á hálfum til einum degi fyrir viðráðanlegt verð. Þannig er það bara. En bið sannarlega að heilsa og verum í sambandi. BK Diddi

Malla said...

Ég set sömu myndir á facebook og á barnaland, er meira að segja fyrr búin að setja á F, svo þú ættir ekki að þurfa að fara þangað inn. En annars birtist held ég hvítur kassi þar sem þú skrifar lykilorðið. Kv. í hitann til ykkar úr rigningunni hér....

Kristín E. said...

Gott að heyra að allt gangi vel :o) Hitti Guðnýju í gær sem var hæstánægð með Þýskalandsferðina en líka voða glöð að vera komin aftur heim.
Heyrumst

Anonymous said...

hæhæ , takk fyrir geðveikt sumar , TAkk takk takk fyrir mig :D
kv.guðný