Í dag var reglulegur Latibær hérna við Vorfeldweg. Það var mjög heitt, en samt ekki mikil sól. Arnhildur og Fúsi, sem sváfu lítið í fyrrinótt vegna hita, og voru þreytt eftir ferðinar til BS í gær, sváfu til hádegis. Setið var úti, farið í smá leiki, og úðarinn settur í gang fyrir Kristínu. Faðir hennar gat smá strítt henni og haldið henni yfir kaldri bununni! Mikið fjör. Ótal ísar, mikið af vatni, og svo smá bjór runnu ofan í mannskapinn. Farið út á videóleygu og náð í mynd. Arnhildur og Fúsi löbbuðu út í skóg og Fúsi prófaði línuskauta, sem Klaus keypti sér fyrir löngu, en hefur svo ekkert notað. Svo var grillað og búið til salat, og allir pakksaddir.
Í gær velheppnuð ferð til BS. Margrét fór svo í afmæli um kvöldið, og skötuhjúin skruppu til BS aftur. Röltu um bæinn, og fylgdust með mannlífinu. Fúsi orðinn svo þýskur eftir þennan stutta tíma að hann tók bara bjór með sér!! Þau komu svo heim upp úr tvö, og kipptu einu sólblómi með sér af akri hérna nálægt :) Gott að stela í myrkrinu, hahaha.
Klaus negldi lausa nagla á skúrþakinu, og þarf svo að kaupa nýjan tjörupappa þar sem sá gamli er að losna. Ekki furða í sólinni hérna. Fúsi tók niður hjólið hans Klaus, og gáði fyrir mig hvaða skúrfur vanti í það. Við ætlum sko að koma því aftur í lag eftir 3 ár eða meira á króknum í skúrnum. Já, þessi Klaus.
Hitabylgjan að ganga yfir. Spáð "bara" um 23-25 stigum á morgun. Eitthvað um rigningu, og kaldara framundan.
Margrét fór til læknis á fö. Hún er ekki með nærri nóg járn, og það er meira vandamálið að geta tekið þessar pillur því járn má ekki taka um leið og mjólk, te eða kaffi. Hún fékk litlar pillur, en þá þarf hún líka að taka 3 á dag. Og helst klukkustund á undan mat, sem bara gengur ekki. Hún getur ekki vaknað klukkan 5.30 til að vera búin að taka pilluna klukkustund á undan morgunmatnum, og ekki tekið pillu á undan hádegismatnum nema þá að hún fari með þetta í skólann. Helst að geta tekið þetta fyrir kvöldmat. Kannski við ættum að minka tedrykkju og drekka meiri appelsínusafa. Vesen--hvað segja sérfræðingarnir okkar um járn og matarvenjur????
Á morgun fellur niður enska og Margrét þarf ekki fyrr en klukkan eitt í skólann. Hún er ekki ósatt við það :) Ég fer á fund klukkan tvö í skólanum, á þriðjudagsmorgun til læknis að láta taka úr mér blóð (ath. með minn skjaldkirtil-er svo ykkur að segja alveg viss um að Arnhildar sé ekki í lagi, ætti að kann það ), og svo er fundur á miðvikudaginn í foreldrafélaginu, þá upplýsingafundur í skóla Margrétar á fimmtudaginn, sjúkraþjálfun á fimmtudaginn, straks á eftir tími hjá lækni. Píanótími á þriðjudaginn, latínukennsla á miðvikudaginn. Það er sem sé allt komið í gang aftur.
Gott að geta sent skötuhjúin á bíl eitthvert út í buskann og látið þau gera það sem þau vilja. Var að stinga upp á því við þau að fara í VW verksmiðjurnar og fara í svona keyrslu með lýsingum á starfinu og skoða framleiðsluna. Eins og þegar Maddý, Lilla og kallarnir fóru með Hildagard. Fara svo í sund í öldusundlauginni á aftir.
Jæja, klukkan er orðin ellefu, og ég að hátta. Meira seinna, og síðustu myndirnar af Guðnýju eiga eftir að koma. ( Celle og völundarhús-mæsakurinn ) Vona að þið eigið góðan mánudag. Bestu kveðjur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Grænt grænmeti er voða járnríkt, þurrkaðar apríkósur eru sneisafullar af járni ;) Spínat, brokkolí t.d. kv.Malla
Áttu ekki gamla járnpotta? Las að járnskortur hefði gert vart við sig hjá fólki eftir að stál og ál pottar tóku við af járninu. Vildi að hér væri hægt að treysta á gott veður í a.m.k. einn dag, en svoddan er þetta bara. VÖ fer suður um miðjan mánuð, heldur fyrr en ég reiknaði með, hættir vinnu um miðjan og vill fara suður og koma sér fyrir, og sinna ýmsu fyrir veturinn. AD fór suður á gleðidaga samkynhneigðra, kemur í kvöld aftur heim, skólinn byrjar svo 20 hjá henni. Já þetta er allt að bresta á-púff púff/stuna-stuna !! Skemmtið ykkur bara vel saman meðan liðið er þarna. Kv affí
Brokkolí, spínat og fleira grænt grænmeti, rúsínur og sveskjur, rautt kjöt... man ekki fleira í bili... og gott að borða c-vítamín eða c-vítamín ríkan mat með eins og t.d. paprikur (sem innihalda víst 4x meira c-vítamín en appelsína!!!).
Er að vinna í því sama og Margrét nema að ég er orðin blóðlaus líka :S
Ég sagði þetta um árið við Margréti, að það þyrfti að koma járni í hana. Hún kom bara aldrei í meðferðina hjá mér þar sem hún átti ekki að fá neitt að borða nema skrúfur og nagla. Það er mjög járnríkt fæði. En annars þarf auðvitað að huga að þessu öllu í samhengi og þetta gengur vonandi allt eins vel og góður sólardagur við Vorfeldsweg, sbr. lýsinguna þína systir.
Bið að heilsa liðinu. Diddi
Post a Comment