Monday, August 17, 2009

Farið að telja niður.

Og enn styttist í brottför gestanna okkar. 3 nætur eftir og slatti að gera. Spáð er 35 stiga hita á fimmtudaginn, úfffff. Búið að panta bíl handa þeim, sem er vonandi með kælikerfi, er allavega með garm og kannski sjálfskiftur. Það verður gaman að pakka niður í þessum hita, og líklega best að byrja sem fyrst. Í dag er allavega líft, og von á rigningarskúrum og eldingum hér og þar.

Í gær vorum við að leka niður úr hita. Samt fór hann ekki í 30. Við Arnhildur skárum niður melónur og svo bakaði Margrét skyrköku handa okkur í tilefni af brúðkaupsdeginum. Hún hefur mikla þörf fyrir að halda upp á svona daga, og líkist ekki pabba síninum i því ,hahaha. Fann svo línuskauta á KD uppi á loftinu. Þau feðgin fóru í langan túr í gær, sem var frábært. Svo skrapp hún með ömmu að gefa kettinum. Ég var smá stressuð út af greyinu þar sem það var stór og feitur köttur kominn inn í gærmorgun. Búinn að króa grey Zorro undir borði og hann mjálmaði og var skíthræddur. Ég rak óboðna gestinn út og fór á eftir honum með sóp!!! Sá hann ekki eftir það.
Systur spiluðu um tíma. Og Fúsi lét tilleiðast að spila með í gærkvöldi.
Þau fóru út í badminton. Á meðan fyllti Fúsi í vatnsbombur og skaut á liðið út um gluggann. Ekki neitt leiðinlegt.
Ég steikti snitsel og bjó til Ikeapakkasósu. Og var svo komin upp í bæli upp úr tíu. Alveg búin á því.

Margrét fór í 3. timann og ég ók henni. Svo að kaupa bláber, kaupa band til að setja á topp af KD, og að taka bensín. Er að fara að sækja hana núna klukkan 11. Svo fer hún aftur klukkan 1, á hjóli, og fer á því að tennisvellinum hérna rétt thjá. Kemur heim upp úr klukkann 16.00 í dag.
Liðið sefur enn, og sólin skín. Dálítill vindur eins og í gær.
Takk fyrir kveðjurnar. Og takk fyrir vísbendingu frá Möllu um að setja eitthvað fleira í pokann með "ég get og kann" :):):)

3 comments:

Malla said...

sé þig alveg í anda með sópinn á eftir kettinum :) Ekki betra en þegar Lilla henti ketti fram af svölunum í Steinahlíð þegar hún var nýbúin að skúra stofugólfið fyrir fermingarveislu!!!! Eftirminnileg sjón og ég lærði að kettir lenda alltaf á fótunum :S

Kristín E. said...

Malla... Lilla henti kettinum fram af svölum á jóladag... og ég var svo miður mín og sagði "já en það eru jól" hehehe
Ætla Arnhildur og co að stoppa eitthvað á suðvesturhorninu á leiðinni heim, langar svo að hitta ykkur þrjú :D

Anonymous said...

jaja er þá lífið ekki að færast i fastar skorður aftur? Hér í mjög gott veður í dag, sól og logn, ekta haustveður svo mann langar í berjamó, en er á leið til Rvíkur með láka palla og fj í jarðaför stínu. Kv affí