Laugardagur og klukkan nálgast kaffitímann. Við gömlu erum ein heima og nóg að gera þó að við séum löt í 25 stiga hita. Klaus er samt að slá grasið, og ég búin að brjóta saman helling af þvotti, þvo í höndunum, setja í vél og brjóta saman. Laga til í eldhúsinu, og fór í morgun að gefa kisu hjá Frau Kühle og kaupa Brötchen.
Allir komnir á fætur upp úr hálf átta. Þau fóru svo korter fyrir 9 af stað í Heidepark, og korter yfir tíu hringdi Margrét og sagði að þau væru komin á bílastæðin. Síðan hefur ekkert spurst til þeirra ,og vonandi eru þau sæl og sveitt :)
Ég á eftir að fara út í búð, en er að draga það fram að kvöldi. Bíllinn minn er líklega vel heitur núna, híhí. Hann er svo flottur að sjá að það lýginni líkast. Fúsi og KD búin að pússa hann í tveimur áföngum, og ekki snefill af bleika litnum eftir. Bara glansandi rautt! Alveg æðislegt.
Í gær fóru A., F. og KD til Wolfsburg í öldusundlaugina. Lögðu af stað klukkan 11 til að vera komin þegar Margrét kæmi úr skólanum klukkan tæplega 3. Svo varð KD eftir hjá ömmu, og gat verið í langan tíma í Sims í tölvunni, og heyrir hvorki né sér hvað gerist í kring um hana. Hin fóru til BS að kaupa skó fyrir tennistímana hjá M. Fundu slíka, og þeir kostuðu bara litlar 55 evrur. Svo pantaði M. bók fyrir skólann, sem við fáum sent hingað. Þær systur keyptu tvo boli á 1 evru, og svo var farið á Starbucks. Ég splæsti á þau kaffiferð svona í lokin á sumrinu.
Í morgun hringdi Ritter, sem var að vinna í 3 vikur í Tyrklandi. Þau Elfi eru að fara í ferð um Þýskaland og svo seinna til Bretlands með ferju, -með bílinn. Koma til baka í gegn um Amsterdam og ég gat gefið honum vísbendingar. Já, maður er svo mikill Amsterdam sérfræðingur, eða þannig!
Vona að þið hafið það gott, og njótið helgarinnar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Þú ert svo dugleg að skrifa kona. Mín bloggsíða er alltaf í klessu. Já haustið að skella á , er svo löt og nenni ekki að fara í undirbúning fyrir vetrarkennsluna, fæ það svo allt í hausinn hehe. VÖ fer suður á mánud. Við förum með rest af dóti hans suður 20. og tökum afganginn af dóti Aldísar á Snorrabrautinni, en það er í geymslunni okkar. Leigjendurnir virðast ánægðir með íbúðina og vonandi gengur þessi vetur bara vel, ætla að vera bjartsýn. Liggur mjög vel á AD, og þegar krakkarnir eru ánægðir þá er allt í stakasta ekki satt?
Kv affí
Gott að sjá hvað allt gengur vel þarna. Hér er logn (reyndar eins og hefur verið síðustu daga)en sól þessa stundina eftir rigningardag í gær. Fórum með m&p í bíltúr Gullfoss, Geysir, Brúarhlöð og Flúðir. Að mestu þurrt og sól. Fengum yfir okkur gusu úr Strokki og urðum talsvert blaut. Set myndir inn á feisbúkk síðar.Síðan var dýrðarmáltíð, gæsabringur og nautapiparsteik í gærkvöldi og pabbi sagði sögur og brandara á fullu en manna átti frábært samtal við Heklu um lífið og tilveruna. Hel þau gömlu hafi verið mjög sæl með daginn. Við förum svo í bæinn seinnipartinn og það er bara framundan vinna hjá mér í Kvennó, fyrsti formlegi dagurinn á miðvikudag. Hafið það gott.
Diddi
Þú getur þá bætt Amsterdam kunnáttu í hópinn yfir það sem þú ert góð í :)
Hitti Drífu hjá Geysi í gær. Hún bað kærlega að heilsa og sagði að næst þegar þú kæmir yrðir þú að taka frá tíma með saumaklúbbnum. Ég lofaði að skila þessu.
KV. Diddi
Post a Comment