Tuesday, March 8, 2011

Kvennadagurinn --og afmæli Einars.

Glampandi sól á þessum merkisdegi. Áfram konur og skerum upp herör, eða eru konur löngu hættar að hugsa um að ná köllunum eða jafnvel að komast fram úr þeim? Allavega hér í Þýskalandi eru konur meira í því að hugsa um börn og heimili og þjóna körlunun en að pæla í kvennabaráttu og jöfnum launum.
Kannski ekki furða þegar okkar fyrimynd er Angela Merkel, eða:)
Sólin skín eins og undanfarið. Næturnar eru kaldar. Í nótt og fyrrinótt var um 7-8 stiga frost. Fann loks hlíf, sem setja á utan um bíl til að verja hann frosti. Er búin að eiga þetta í nokkur ár. N.k. teppi, sem er fest í hjólkoppunum með krók. En krókarnir losnuðu oft af. Og hlífin hvarf því inn í tréskúrinn. Nú límdi ég krókana með kraftlími og þetta dugar vel. Gaf mömmu og pabba svona og þau eru ekki einu sinni búin að taka þetta úr kassanum ,eða?

Mér var gefið tveggja vikna áskrift í líkamsrækt, og fór loks í síðustu viku. Það hefur ekki verið auðvelt að taka þátt í slíku eftir alla uppskurðina og bann við hreyfingum og átökum. Svo tók við þetta vesen með augað, og mátti ég ekki reyna í mig í 4-6 vikur. En þessir blossar eru nú að mestu leyti horfnir. Finn þó stundum að eitthvað blikkar til hliðar á myrkri. En ekki get ég hætt að hjóla og hreyfa í mig allt til enda veraldar. Er búin að halda að mér höndum í tvo mánuði. Og sem sagt farin af stað!
Það er æðislegt að svitna við tækin og andlega hliðin betri eftir að maður gerir eitthvað, sem maður er ánægður með. Og ekki veitir af þvi að koma öxlinni í betra lag. Það er víst ekki beint jákvætt að hlífa henni alltaf svona mikið.

Svo var stjórnarfundur í síðustu viku, sem haldinn var hjá mér. Og ég fór með bækurnar til mentskælinganna. Og loks var salat-sala hjá okkur í Leiferde fyrir krakkana sem fóru í skíðaferðina þetta árið. 6.bekkur fer árlega til Austurríkis. Fjör og maður hitti fullt af fólki.

Á laugardaginn var drungalegt framan af, en svo var aftur glampandi sól á sunnudaginn. Hitinn fer samt ekki hærra en í 3-6 stig. Við Margrét þrifum "Strandkorb", sumarstólinn góða, og settum hann í sólina. Sópuðum stéttina og drukkum svo kaffið úti. Ekki var verulega hlýtt í skugganum:)
Ég þurfti að gefa kisu og það var skafið á laugardaginn áður en ég gat ekið af stað. Þetta fer nú alveg að verða nóg í bili.

Það styttist í lok kennslu hjá Margréti. Hún fær vetrareinkunnirnar i lok þessarar viku og gæti tæknilega skrópað í næstu viku. En ætlar að mæta í þau fög, sem hún tekur sem stúdentspróf.
Á morgun er frí í fyrstu tveimur tímunum, hún skrópar í tveimur og þarf þá ekki að mæta fyrr en klukkan 1, frábært!!!!!
Ég er búin að fá frí í lok maí. Má vera í ca mánuð. Svo nú getum við athugað um flug og hvernig verði með ferminguna.
Hver mætir i ferminguna af ykkur--lesendur góðir??-----------------------Hún er samt sagt--
11.júní--og afmæli mömmu daginn eftir.
Hvenær er aftur útskrift Hildar--og í VMA??????

Nú er ég búin með skammtinn, sem ég tók út af þessum heli--bakteríum. Það var frekar ógeðslegt því ég fékk rammt bragð í muninn á eftir. Vaknaði allar nætur í þó nokkur skifti og þurfti að fá mér súkkulaði til að halda þetta út. Þetta voru --(fyrir Þorgerði-)-Clarithromycin og Amoxicillin-Trihydrat efni í þessu ógeði. Púff. Eftir 3 mánuði verður svo rannsakað hvort ég sé laus við þetta. En--ég er búin að frétta að þessar bakteríur séu bráðsmitandi og mér finnst skríftið að ath ekki hvort Margrét og Klaus séu með þetta,---og þið ættuð kannski líka að láta athuga ykkur??? Tengdamamma var með þessar bakteríur og líklega hef ég fengið þær frá henni-- hver veit.
Mér skilst að margir fái þetta í bernsku, t.d. í leikskóla,- úr glasi vinar síns, eða á klósettinu. Og svo hvíli þær lengi í maganum og komi ekki fram nema eitthvað sé um stress og vesen. Þannig var það sem sagt.

Það var fínn fundur með nýja skólastjóranum og hálfvitunum, sem vinna með mér. Það er gjörsamlega vonlaust að þær skilji hvað verið sé að gera í gæslunni. Þær nenna þessu ekki og vilja bara vera úti að spjalla meðan krakkarnir leika sér. En kannski við séum loks komin með konu, sem tekur á þessu. Það væri ekki slæmt.

Elli minn hennar Affíar búinn að eiga afmæli og ég skrifaði ekki einu sinni á Facebook. Vona að hann fyrirgefi mér þegar hann fær næstu sendingu af Mon Chéré, :) Og svo bíður Kinder-súkkulaðið eftir næstu ferð heim.
Jæja, ég er þá búin að humma fram af mér að strauja í morgun og styttist í vinnuna. Best að slökkva á tölvunni og hverfa aftur til daglegs lífs hér í Meinersen.
Hlýjar kveðjur til ykkar allra.

1 comment:

Anonymous said...

Sæl frænka.Hér er bara snjór og kuldi og gott að vera í vetrarfríi.Eg átti inni smá frí en best að tala ekki um það á feisinu!!Ég hef ekki farið út úr húsi í dag,verið aðeins að taka í kring og ganga frá þvotti.Reynt að vera samt ekki of dugleg,njóta þess að vera heima.Svo fer ég nú að taka upp prjónana þegar kvöldmat er lokið.Fór til Lillu í gær og er hún bara nokkuð hress,samt með verki og gengur ekki of vel að sofa.Hún er í þjálfun hjá Bjössa og hann sér vel um hana.Kveðjur til ykkar allra.Magga móða.