Hér kom vorið í heimsókn á laugardaginn og gladdi okkur með sól og blíðu. Í gær var minna um sól, en hitinn fór samt í ein 14 stig. Það var hlýja í lofti og manni leið betur eins og alltaf þegar vorið nálgast eftir kaldan vetur. Akkurat núna er svo veturinn á Íslandi að halda aftur innreið sína. Já, öfgar á báða bóga. Hugurinn er mest í Japan og skelfilegt að sjá og heyra hvað er að gerast þar. Eiginlega má maður ekki pæla of mikið í þessu því það er svo margt, sem ekki er í lagi og engu um það breytt. Maður verður víst að horfa fram á við og vona það besta.
Gott að finna hressilegar lýsingar á bekkjarpartýi hjá FAF, og gleðja sig yfir því að til séu svona hressir og efnilegir krakkar. Þau eiga eftir að skapa okkur betri framtíð en þessir nútíma stjórnmálamenn, án efa.
Og Ásta orðin 18 ára. Hvað varð af tímanum spyr maður sig í hvert sinn. Og finnur ekkert svar.
Nú er síðasta kennsluvikan hjá Margréti byrjuð. Þau eru með ákveðið fataþema á hverjum degi. Í dag var það viðskifti. Hún fór í svörtu pylsi af Doreen, dökkri blússu og sokkabuxum og spariskónum. Á morgun er það Sport. Í dag á vinkona hennar, hún Birthe, afmæli. Ég skutla henni og Alinu til Celle á eftir. Og þær koma heim með vini Alinu. Birthe ætlar með þær til Hannover á eitthvert kaffihús þar sem maður getur búið til hitt og þetta út súkkulaði. Hljómar vel. Kannski eitthvað fyrir næstu heimsóknir frá Íslandi? Hver þarf pössun í sumar? Opið hús hér!!!!
Á fö.kom Maja og spurði hvort hún ætti ekki að kaupa gardínustangur hjá Ikea fyrir mig. Ég var búin að kíkja á hennar gluggatjöld og segja henni að mig langi í tjöld í stofuna. Til að fá smá lit og tilbreytingu. Klaus setti svo upp stöngina yfir litla glugganum , en vantar betri skrúfur. Svo hinar bíða næstu helgar. Maja segir að þeir hjá Ikea ættu að draga fram rauðan dregil þegar hún kemur því hún sé búin að versla svo mikið hjá þeim:) Þau eru alltaf að breyta og laga. Sem sagt stangir komnar og nú er eftir að velja og kaupa gluggatjaldaefni og sauma eða fá einhvern til að sauma. það fer í tíu ára áætlunina, hehehe. Bráðum komið ár frá því við máluðum holið og ekki enn búið að hreinsa klessur af gólfinu og laga í hornum og við stigafestinguna, hmhm.
Ég bakaði pönnukökur á fö. með aðstoð Margrétar. Svo bakaði ég franska súkkulaðitertu og gallopstang (með döðlum og rúsinum) á laugardginn. Núðlubkastur um kvöldið og i gær kartöflugratin og svínasnitsel. Hm, ekki lagði maður af. Vann lengi í garðinum við að þrífa burtu visið lauf, raka, hreinsa illgresi og planta niður nokkrum stjúpum. Maður er kominn með mikla þörf fyrir blóm og sól. Og ég vokenni ykkur að þurfa að bíða lengi eftir íslenska vorinu. En snjórinn er jú lyftistöng fyrir þá, sem fara í fjallið.
Frau Kühle kom við eftir hjóltúr og fékk sér vatn og að reykja á veröndinni. Mamma hennar er mjög slöpp og hún óttast að þessu fari að ljúka. En þegar fólk er komið yfir nírætt má það nú fara að kveðja og fá hvíldina ef það vill. Við erum bara ekki tilbúin að skeppa hendinni af þeim, sem okkur þykir vænt um. Hún fer á fimmtudaginn og kemur aftur á sunnudaginn svo ég verð aftur á kattavaktinni.
Það var fundur hjá skólastjóranum með okkur gæsluliðinu, og við hittumst svo þessar þrjár, og sömdum áætlun fram á sumarið. Ég tók það svo saman og pikkaði í gær, eða öllu heldur gerði Klaus það fyrir mig. Enda átti hann vel gera eitthvað eftir að hafa horft á sjónvarpið allan daginn. Ýmist skíðamót eða fréttir frá Japan. Margrét tók allavega bók út og lærði þar um stund.
Ég fer á morgun í síðasta skiftið í líkamsrækt. Fór á fimmtudaginn í ógeðslegt tæki. Það var settur rafmagnsstraumur í mig og maður titrar allur. Ótrúlega óþægilegt
og ekki ætla ég í það aftur. Sennilega fæ ég mér ekki mánaðarmiða/ársmiða fyrr en í haust því ég veit að ég fer ekki í páskafríinu og ekki í 4 vikur meðan ég er heima og hver veit hvernig sumarið verður. En verð að drífa mig í haust og fara þá reglulega. Núna fer meður allavega að hreyfa sig mikið úti i garðinum og hjóla oftar.
Þarf endilega að heyra í Didda á skypinu bráðum og kannski pabbi geti farið inn á það einn og aðstoðarlaust. Verst að Diddi hefur frekast tíma um helgar en þá er ég mest upptekin og Klaus í tölvunni.
Líklega fer Þórdís aldrei inn á þetta blogg mitt, en skyldi svo ólíklega vilja til þá óska ég henni hjartanlega til hamingju með stóru dóttirina!!!!
Og skyldi hún stóra dóttir mín fara að lesa þetta rugl og skrifa komment--undur og stórmerki gerast!
Hafið það sem allra best. Vorkveðjur úr drunganum hérna á Vorfeldweg í hlýjunni.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
ég mun fara að lesa þetta núna vissi ekki að þú værir að skrifa :-)
Post a Comment