Wednesday, March 16, 2011

Og kominn miður mars.

Hlýindin um helgina voru bara skammgóður vermir. En samt er ekki hægt að kvarta því hér er um 5 stiga hiti. Reyndar spáð næturfrosti á sunnudaginn og eitthvað fram eftir næstu viku.
Það er ekki bjart, og raki er í lofti. Blómin kunna vel við þetta og vaxa og dafna.
Heilsan eitthvað slök í bili. Kannski líka út af svefnleysi. Margrét var í afmæli Birthe á mánudaginn og kom ekki heim fyrr en korter fyrir eitt um nóttina. Við á fætur korter yfir 6 svo þetta var stutt nótt. Enda vorum við báðar vel slappar í gær og lágum mest framan við sjónvarpið og slöppuðum af. Í morgun skellti ég mér aftur í bælið og fór ekki á fætur fyrr en um tíu. Ekki furða þó að rykhnoðrar séu um allt og ekki sjáist í sjónvarpsskerminn fyrir ryki:)
Það var rosa gaman hjá Margréti. Birthe fór með hana og 4 aðrar vinkonur til Hannover í kaffihús í golfklúbbi. Þær bjuggu til geðveikar súkkulaðimústertur. Margrétar terta er núna hálfnuð og mun endast eitthvað enn þar sem þetta er ekki smá seðjandi:)
Ég ók til Celle, og skrapp í bæinn í heimleiðinni. Aðallega til að kaupa gott brauð því þarna er eitt besta bakaríið, sem ég veit um. Frábært gróft hveitibrauð og beyglur.
Alina, sem fór með, tók myndir, og Margrét á eftir að fá þær og kannski hún setji nú nokkrar inn fyrir ykkur. Þessi stelpa er systir stráks, sem ég var með í gæslunni, og hann var minn helsti aðdáandi. Og mamma hans hefur mikið álit á mér síðan. Í dag komst ég að því að ég á nýjan aðdáenda. Fékk kort frá einni mömmunni þar sem hún þakkar mér fyrir mitt verðmæta starf með börnunum. Og textinn á kortinu er um að það sé hin sanna hamingja að finna fólk, sem ekki bara hlusti með eyrunum heldur með hjartanu. Ég er náttúrega svo montin að ég má til að deila þessu með ykkur.
En kannski aðrar mömmur séu ekki jafn hrifnar af mér eftir að ég refsaði 4 ungum piltum í dag eftir að þeir voru með hávaða og læti. Við eyddum síðasta korterinu úti á skólalóðinni og þeir urðu að sitja eftir inni í holinu, súrir á svip. Það getur bara ekki gengið að ekki sé hægt að syngja með krökkunum í korter eða fara í leki án þess að verða að skamma og reka út--. Eða fer ég fram á eitthvað, sem er óraunhæft? Ég veit að þau eru þreytt eftir 4 kennslustundir, en það réttlætir ekki alla slæma hegðun.

Margrét er búin að fara í skólann í 3 daga í einhverjum búningum. Bissness, Sport og í dag sem strákur/kall. Strákarnir sem stelpur og þeir voru æðislegir. Á morgun fer Margrét sem kántrísöngvari. Gaman að vera með svona þemadaga og tilbreyting í þessu. Bara eftir tveir kennsludagar. Svo eitthvað um að melda sig fyrir próf og þannig smotterí og þá hefst alvaran laugardaginn 26. mars. Þá má krossa putta og biðja til æðri máttarvalda að Margrét verði ekki lasin eða svefnlaus af stressi:) Ekki það að ég hafi nokkrar áhyggjur af henni.

Á morgun þarf ég með bókapantanirnar í báða skólana. Svo fer ég í skólann klukkan 11 til að lesa með Vanessu minni. Niklas kemur klukkan hálf þrjú að lesa og skrifa. Og ég fer aftur á kattavaktina á morgun. Líklega fram á sunnudaginn.
Komst að því í dag að hún Dísa gamla vinkona, mamma Gutta, lesi bloggið mitt reglulega -og kvitti aldrei. Kannski þið séuð fleiri, sem kíkið af og til---það væri æðislegt ef þið létuð heyra frá ykkur. Það er mun meira gaman að vera í sambandi við ykkur en að vera alltaf á eintali.
Jæja. Ætla í háttinn þó að ég geti sjálfsagt ekki sofnað snemma eftir svefninn í morgun. Svona lagað hefnir sín:) Þá held ég bara áfram að vinna á staflanum af gömlu kvennablöðunum, sem ég hef keypt síðustu 5-6 árin og aldrei tímt að henda. Veit að Arnhildur trúir ekki að ég sé svo dugleg að vera loks byrjuð á þessu verkefni.
Bestu kveðjur til allra, sem kunna að lesa þetta og þakkir til þeirra fyrir að vera dyggir lesendur.

6 comments:

Anonymous said...

kíkti hér inn - en ætti að vera löngu komin upp í rúm að sofa ;)
Hér suðurfrá er vorið líka aðeins farið að láta sjá sig, og allir tilbúnir að taka því opnum örmum. Allir búnir að fá meira en nóg af snjó, myrkri og kulda...
Bestu kveðjur og hafðu það gott.
Aldís B.

Anonymous said...

þá kíkti ég inn.... ég var svo oft búin að sjá sama bloggið efst og svo gleymdi ég bara að kíkja og þá eru komin 3 ný blogg :o)
Bið að heilsa Margréti, skoðaði myndir af henni á FB í gær og finnst þær systur orðnar svo ótrúlega líkar allt í einu.... og litla frænka í Þýskalandi bara eiginlega orðin fullorðin, voðalega líður tíminn hratt hehehe
Bið að heilsa Margréti þinni og Klaus.
kv Kristín að stelast í vinnunni hehehe

Anonymous said...

Hér snjóar og snjóar.Einar fór af stað kl.9 í morgun í rútu tilEskifjarðar að spila með Big b.Eg vona að veðrið sé betra fyrir austan.Er að fara að baka marengs fyrir kaffit.kirkjukórsins sem verða á morgun.Kaffi hjá Jonna í gær pönnsur og fleira gott.Arnhildur kom aðeins,Þórdís líka,Ingó að spila í gær.Ég að rembast við að ná mér eftir flensu sem ég fékk um s.l.helgi.Var heima mán og þriðjud.Þetta er vonandi allt að koma.Prjóna og prjóna það er það eina sem ég hef orku í.Kveðjur til ykkar allra.Magga móða.

Anonymous said...

Sæl. Hef ekki kíkt á þig um stund en í 13 stiga frostinu og stillunni hér við Álftavatn þegar allir sofa þó klukkan sé að verða hálfníu er gott að lesa skrifin þín. Allt í snjó hérna og krap í spegilsléttu vatninu og potturinn bíður þess að ég komi mér út. Reikna með að við förum í bæinn í fyrramáli eins og undanfarnar helgar. Friðrik er í bænum, var að vinna verkefni heima hjá vini sínum í gærkvöldi þegar ég heyrði í honum. Annars er þokkalegt af okkur að frétta og verður vonandi áfram þó vorið sé ekki komið í veðurkortin enn.
Bestu kveðjur að sinni.
Diddi

Anonymous said...

Les oft bloggið þitt.
Ég skrifaði þér nokkrar línur á póstinn þinn.
Kv. Hildur frænka.

Þorgerður said...

Kíki reglulega við líka :)