Thursday, March 31, 2011

Allar þessar veislur--hvernig eru plönin hjá liðinu?

Smá um veislur vorsins. Við erum að spá í hvernig verði með ferðir okkar. Hvenær heim, hvenær norður, hvaða veilsur við förum í. Mér skilst að Hildur útskrifist 27. maí. Þorgerður var búin að spyrja hvort við kæmust svo ég tel okkur boðnar:)
Hvenær er útskrift Þórdísar--veisla eða ekki???? Og hvenær fer hún svo út? Ásta fer með pabba sínum út í byrjun júní--kemur 10.júní , skildist Margréti. Fermingin er 11.júní--svo líklega kemst Ásta ekki--og hvað með Þórdísi?
Margréti langar rosalega mikið í stúdentsveislu--eins og allir hinir fá! Hvenær væri best að drífa í því??? Hún er að spá í að fá að hafa frekar kaffi í Reykjavík því fleiri séu þar. Maddý líklega fyrir sunnan, strákar Didda líklega ekki farnir norður fyrr en í júní--? Arnhildur gæti komið suður.---Diddi-getur þú haft smá veislu eða Þórdís???---Væri nokkuð hægt að hafa eitthvað um að vera daginn fyrir Hildar útskrift? Eruð þið Kristín, Malla og Maddý ekki líka í undirbúningi fyrir Hildi? Margrét getur etv. komið 13. eða 14. maí. Ég ekki fyrr en 20. maí í fyrsta lagi og helst ekki fyrr en eitthvað seinna.
Margrét er að tala um veilsu með fjölskyldunni--svo hrikalega mörg erum við nú ekki. Etv. líka af pabba ætt. Ég get örugglega ekki bakað mikið fyrir þetta, en keypt eitthvað af kökum, og þarf eins og oft á hjálp ykkar að halda.
Hvaða uppástungur hafið þið um þessa stúdentsveilsu Margrétar?
Hver gæti bakað--gert eitthvað? Og hvaða húsnæði gæti komið til greina?
Endilega að koma með "Brainstorming" ---. Hugmyndir--uppástungur. Takk fyrir þolinmæðina með gömlu Áddu!
Og svo aðalspurningin-- Hverjir mæta í fermingu Kristínar???? 11.júní.
Auðvitað ekki mikilvægari spurning en veisla Margrétar:)
Vonast eftir mikilli umræðu. Hafið það sem best og njótið tilverunnar.

6 comments:

Þorgerður said...

Hildar veisla er 27. maí sem er föstudagur, og jú ég ætla að vona að systur mínar og mamma aðstoði mig eitthvað fyrir það. Væri ekki hægt að hafa veislu fyrir Margréti þá helgi? Veit ekki hvort mamma verður komin á fimmtudeginum suður, og hún myndi nú vilja vera í veislu nöfnu sinnar. Já og ykkur er að sjálfsögðu boðið :)
Frá okkar familíu kæmi Helga í veislu Kristínar Daggar, og Dagur sennilegast líka. Reikna með að Hildur verði að vinna, og við Gilli verðum í Stokkhólmi.

Anonymous said...

sæl, ég á að vera á Akureyri 28. maí að halda upp á að 20 ár eru liðin frá því að ég kláraði Glerárskóla, en fyrst HV er að útskrifast 27 þá veit ég ekki hvað ég geri. Er okkur boðið til KD í fermingu 11. júní?? EÖ á afmæli 10 júní og ég veit ekki annað en við verðum hér fyrir sunnan þá. Ég get eflaust aðstoðað eitthvað við bakstur hér á suðurlandi :) Kv. Malla frænka

Anonymous said...

Já elsku Malla mín --það eru allir boðnir til Kristínar Daggar þann 11.6., auðvitað. Ertu að vinna þá? Sorglegt ef þið komið ekki í ferminguna. Þorgerður kemur ekki, --hvað er svo með Kristínu?
Væri æðislegt ef Malla gæti líka eitthvað bakað fyrir Margréti. Mér finnst uppástunga Þorgerðar með helgina/helst þá laugardaginn góð. Og ætli maður gæti fengið far norður með Maddý?? Ekki ráð nema í tíma sé tekið--hehehehe. Ykkar Áslaug.

Kristín E. said...

Ég veit ekki hvernig staðan verður á okkur í júní... ég byrja í sumarfríi þessa helgi en veit ekki hvað ég ætla að gera... er að leita að helgi til að fara til Stokkhólms, fer eftir því hvenær ég fæ flug og helst hótel á punktum hvenær ég fer (ef ég fer :þ) Kemur allt í ljós en gott að vita að okkur verður boðið til elsku sætu nöfnu minnar :o)

Anonymous said...

Hæ,ég get lítið sagt um veisluundirbúning á suðurlandi,veit ekki hvenær ég kemst suður.Einar er í Færeyjum um þetta bil en verður rétt kominn svo ég veit ekkert hvernig okkar ferðalag verður en að sjálfsögðu verðum við í veislu Hildar.Frekari upplýsingar síðar. Kveðjur til nöfnu minnar það er verst hvað henni gengur örugglega illa í prófunum eða þannig.

Unknown said...

Ég skil ekki neitt í neinu- hvar eru veistlur, hjá hverjum og hvernær?? Eruð þið Margrét ekki að koma norður í fermingu og afmæli mömmu?? ...og hver segir að Hildur nái þessum prófum...... :)