Friday, April 8, 2011

Hvasst og sólarlaust.

Ekki sérlega hlýtt í morgun. Um 5 stig klukkan 7.30. Spáin samt góð og kannski hann birti með deginum. Af okkur allt gott að frétta. Margrét að læra fyrir enskuprófið á morgun. Síðasta skiftið, sem við vöknum klukkan 6 út af skóla, húrra! Og svo er bara eftir ein kennsluvika. Þá byrjar tveggja vikna páskafrí. Klaus tekur sér frí eitthvað af tímanum. Og Margrét bara að dúlla við að læra fyrir munnlega prófið í líffræði.

Í gær fékk ég gamla liðið úr þorpsskólanum í kaffi. Reyndar kom ein ekki. Hún þurfti með mömmu sína til læknis og það hefur greinilega tekið lengri tíma en hún reiknaði með. Ein er flutt í burtu. Býr nálægt Celle. Kom með dóttur sína, 5 ára gamla. Gaman að hitta þær. Þau færðu mér æðislega körfu með blómum, sem stendur úti á verönd. Kannski Margrét miskunni sig yfir mig og taki mynd og birti!
Bakaði marens, sem þurfti 3 tima áður en hann var þurr í gegn. En smakkaðist vel. Ætli ég baki hann ekki líka þegar fjölskylda Klaus kemur í kaffi laugardaginn fyrir páskadag. Ramona er svo upptekin að hún getur ekki komið í hádegismat, sem ég er mjög sátt með.
Nóg að gera í vinnunni. Búið að mála á 70 blómapotta og í dag á að setja bómull og Kresse--hvað, sem það heitir á íslensku. Svona græn jurt, sem vex eins og brjáluð og er sett sem álegg á brauð og í mat. Svo mætir vonandi sú veika í næstu viku og við getum verið með okkar hópa í okkar stofu.
Fór á fund í skólanum á þr. Gaman að vera með og fylgjast með hvað verið sé að plana. Hollustuvika framundan.
Maria vinkona Margrétar kom í fyrradag og þær bökuðu eplaköku. Margrét skrapp til hennar í gær og þær horfðu á mynd fyrir prófið. Og svo kom Maria í gærkvöldi að horfa á Topmodels.

Mér virðist allar líkur á að Margrét komi straks eftir munnlega prófið, 12.maí. Og ég seinna. Væri ekki slæmt ef upp gengi að ég mætti ca miðvikudaginn fyrir útskrift Hildar, undirbyggi smá útskriftarveilsu fyrir Margréti á laugardeginum
og mætti svo í veilsu Hildar. Og við svo norður í síðasta lagi á sunnudaginn. Ef Arnhildur getur komið suður og þetta rekst ekki á hennar plön. En nógur er tíminn svo sem enn í planleggingar.
Klaus kemur ekki með i þetta sinn.

Jæja, stutt blogg í bili. Þarf að mæta snemma í dag í vinnuna til að sortera pottana eftir hópum. Vona að þið hafið það öll sem best. Góða helgi!

1 comment:

Þorgerður said...

Þórdís hefur ekkert kommenterað, en hún verður farin út þessa helgi sem þú ert að spá í útskriftarveislu fyrir Margréti.
Hér teljum við niður í páskafrí :)
Hagl og vorveður til skiptis...
Verið að ferma hjá vinkonu minni á morgun, bakstur í dag og undirbúningur á morgun. Helga að koma frá Reykjum í dag (skólabúðir í Hrútafirði þar sem hún er búin að vera í 5 daga).
Góða helgi!