Styttist í að þessu fríi fari að ljúka. En samt eru eftir 5 dagar með deginum í dag svo ekki er ástæða til að kvarta. Við höfum það notalegt og ósköp rólegt að vanda. Veðrið hefur verið alveg ótrúlegt. Ekki eðilegt veður í apríl, og hver veit hvernig veðrið verður svo í sumar. Spáð votu sumri, en hvort það nú stendst. Í þetta skifið áttum við engin íslensk páskaegg og enga málshætti. En okkar bíður risa egg heima hjá mömmu og pabba. Á laugardaginn fyrir páska komu Susanne, Gregor og dætur í kaffi. Ég bakaði marens, sem tókst vel. Og skúffuköku og döðluköku með karamellusósu.
Þau fóru svo heim fyrir kvöldmat. Færðu okkur páskaegg, rauðvínsflösku, te, blóm í potti til að setja út og Margréti muffinsuppskriftabók. Við gáfum þeim hvítvínsflöslu, eina á mann. Ég kaupi rosaleg gott hvítvín frá vínbúgarði, sem allir eru hrifnir af.
Engin páskagjöf var á borðinu hjá Margréti á páskadagsmorguninn. En við Klaus fengum bók og CD. Margrét fékk nefnilega að velja sér föt og fleira í bænum fyrir páska. Hér eru gjafir um páska mjög algengar. T.d. fá margir krakkar línuskauta eða hjól.
Vorum með beinlausa fugla í matinn, og aftur upphitaða daginn eftir. Maður er svo sem ekki í miklu stuði að elda lengi í þessum hita. Hitinn fór í 27 stig á laugardaginn. Það var nú næstum of mikið af því góða. Hefði gjarnan sent ykkur ein tíu stig :)
Já, við Margrét byrjuðum fríið með lestarferð til Hannover á mánudeginum. Hún fann einhverja gönguskó, sem koma upp að framan og aftan og er eins og hún sé að vega salt! En eiga að vera rosa góðir og spenna vöðvana. Gaf henni tvö armbönd og náttföt. Við settumst inn á Möwenpick og fengum okkur himberjatertu með slatta af rjóma:) Arnhildur og Þórdís hefðu mátt vera með-báðar hrifnar af þessum jellyberjatertum. Settumst út, en golan var vel svöl, enda ekki komið að þessum hita þarna. Höfum ekki farið til Hannover frá því við skruppum með Arnhldi í jan. eða des.
Klaus fór í frí á fimmtudaginn. Hann er búinn að klippa greinar og setja niður nýja festingu fyrir þvottasnúrurnar. Jólatréð var vaxið svo mikið að þvotturinn slóst alltaf utan í það. Það fór langur tími í að klippa trén og bera greinarnar út í bíl og aka með þetta að bálkestinum, sem slökkviliðið sér um. Fór tvisvar með fullan bíl. Gott að hér skuli vera páskabál og allir geti farið með greinar þangað.
Í dag ætlar Klaus min að festa nýja loftljósið upp ofan við stofuborðið. Hmmm, sjá til hvort hann kemur því í verk.
Margrét er að læra fyirr líffræðiprófið, en tekur því afar rólega. Hún fékk hringingu frá Au Pair konunni um að ekki væru miklar líkur á því að hún fengi pláss í Danmark. Og er nú búin að sækja um Noreg. Það er betra upp á margt. T.d. borga foreldrarnir þar norskunámskeið straks fyrir hana. Svo er boðið upp á að hittast í þremur borgum, allar Au pair stelpur, sem geta komið. Meiri samgangur sem sagt. Margrét er búin að breyta umsókninni og senda, og við bíðum nú spennt. Þið leggist vonandi á bæn að hún fái frábæra fjölskyldu.
Hún er komin í stuð að skokka og við förum saman, ég á hjóli og hún skokkandi.
Við rendum til Rewe í gær(aðalbúðin hérna) og keyptum okkur sólbekk með sólhlíf fyrir andlitið. Margrét lá svo lengi í gær á bekknum og lærði eða slappaði af. Við fórum með þann bláa í bílaþvottahús. En eftir er að ryksuga báða bílana og líklega endir það nú á mér að vanda.
Ég var á kattavaktinni í nokkra daga og sótti svo son Frau Kühle til Dedenhausen á lestarstöðina. Manni leggst alltaf eitthvað til. Var að gera baðið uppi hreint, ekki veitti ef. Bera olíu á kommóðurnar og taka skúffurnar í gegn, þvo veggi og svo framvegis. Svo tókum við Klaus til í hjólaskúrnum. Pumpuðum í hjólin og fórum öll í hjóltúr í fyrradag.
Þarf svo að búa til gifshluti svo krakkarnir í gæslunni geti málað á þá eftir helgi og gefið mömmunum á mömmudaginn. Fæ Margréti í það með mér.
Var að skoða myndir hjá Svanhildi. Frábærar myndir af listaverkum hjá Ástþóri. Þvílíkur munaður að geta fengið að fara á svona námskeið. Hlakka til að hitta þessa dúllufrændur mína.
Erum ekki búnar að panta flugið heim. Prófið hjá Margréti er á fö. 13.maí. Líklega flýgur hún á undan mér og þá um þessa helgi. Diddi er búin að segja að hún geti komið í bústaðinn helgina, sem Hildur útskrifast og þar verði haldið smá stúdentshóf fyrir hana. Ætli það væri ekki bara gaman fyrir ættingjana að fá að koma þangað og vera saman um tíma??? Sé veðrið gott er þetta himnaríki. Og líklega ekki slæmt að komast í vatnið að sulla og vera í Víkingaspilinu á flötinni. En við athugum þetta betur er nær dregur. Og svo verður stefnan tekin norður í fermingarundirbúning.
Vonandi verður Arnhildur þá orðin heil heilsu eftir þetta tannvesen. Mikið var nú gott að pabbi hennar var hjá þeim um páskana. Þau hafa ekki sést oft í vetur út af lasleika og slæmri færð.
Og nú eru allir gestir farnir og tómt í kotunum. Þá er að bíða eftir sumrinu og hlakka til næstu endurfunda.
Hafið það öll sem best. Gleðilegt sumar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Gleðilegt sumar móðir góð og sytir góð, gaman að heyra hvað þið eruð að brasa. Já hún Margrét mín er sko fínn bílstjóri, og þegar hún kemur fæ ég bílinn lánaðann hjá Fúsa og læt hana keyra, og þá meina ég sko svarta hlunkinn, híhí :)
kveðjur ykkar Arnhildur Hell
Post a Comment