Thursday, April 14, 2011

Og þá á litli bróðr afmæli.

Afmæli Sigurðar Ágústs í dag. Ekki er nú langt síðan hann var lítill í prestshúsi, með krullað hár og hrekkjasvip. Við hugsum til hans í dag og óskum honum alls hins besta.
Hér skín sólin eftir hvassviðri í nokkra daga. Leiðinlegt veður og greinabúnkinn dreifðist um allan garð. En ekki var þó svo slæmt að eitthvað skemmdist. Það er hlýtt núna þó að frosið hafi verið á bílunum í morgun klukkan 7. Og spáð hlýnandi.
Nú er allt á kafi heima í undirbúningi fyrir fermingaveislurnar í höfuðborginni. Arnhildur mín ætlaði að fara áðan, en kemst ekki út af verkjum og sýkingu í tannholdinu. Þetta er nú ekki eðlilegt. Mér skilst að konan, sem hún fór svo til eftir að hún gafst upp á kallinum, hafi sagt að hann hefði nú mátt gera þetta betur. En svona er það og hún komin á þriðja fúggalyfjakúrinn og ekki beint hamingjusöm.
KD farin suður með Fúsa og vonandi að hún muni allavega hafa það gott. Og hún er dugleg og getur aðstoðað og gert heilmikið.

Margrét var dugleg í dag og fór með mömmu gömlu í vinnuna. Við vorum í tvo tíma að undirbúa föndur og ganga frá á eftir. Fengi maður nú yfirvinnu borgaða værum við vel rík:) Ein mamman hjálpaði okkur í gær og aftur í dag. Svo ég ákvað að drífa í því að gera páskahéradósirnar mínar frægu. Bjóða þeim, sem vildu. Um 28 krakkar vildu gera þær. Hin fóru öll út og Diana var með þau. Við vorum sem sé 3 í föndrinu og í fyrramálið þarf ég að klippa og líma á einar 10 dósir, sem ekki tókst að klára að gera í dag.
Svo skrapp Margrét til Mariu að vinna við útskriftarbókina, sem gerð er fyrir árganginn. Hver og einn sér um sína síðu. Hún fór svo í búð fyrir mig og fékk afmælisgjöf handa Alexander. Flott að hafa einkabílstjóra og innkaupastjóra.

Við vorum í gær hjá Heilpraktiker í BS. Hún segir að Margrét hafi fengið "Drüsenfieber"--sem er eitthvað með "hita í kirtlum" þýði maður það beint. Finn hvergi neitt um þetta í handbókum. Allavega þarf að losa þennan visus úr líkamanum. Margrét fékk fullt af þessum kúlum, sem Heilpraktikerar nota, og á að taka þær í 9 vikur, -til 12 vikur. Svo kom í ljós að hún er með fleiri ofnæmi. Gegn hundum, --í lagi, hún þolir þá ekki,--baunum--öllum tegundum, rúgmjöli--ergilegt--hún búin að hlakka til að fá íslenskt rúgbrauð,- öllum litarefnum frá E 100 - 200 minnir mig. Og einhverjum fleiri efnum. Svo nú er að versla með stækkunargleri og hugsa betur um hollustuna.
Mjög fín kona, sem vekur traust. Ég pantaði tíma og fer 10.maí. Daniela, dóttir Susanne, er hjá henni og stelpurnar, sem Margrét hefur passað.

Við löbbuðum svo i bæinn og settumst á Starbucks. Með brúsana fínu! Margrét fékk sér einn gráan bol í H&M. Og ég fann reyndar skó, svona Sneaker, frá Ecco. 80 evrur, sem er ok. verð. Kíkt í Bodyshop og fleiri skemmtilegar búðir. Var svo gjörsamlega gengin upp að hnjám að ég var þeirri stund fegnust þegar við komum í bílinn. Enduðum kvöldið á þætti með Barnaby, sem tekinn var upp nýlega. Gaman ef allir þrír fjölskyldumeðlimirnir eru saman við eitthvað.
Þá er Margrét farin út að skokka. Ég gerði grindaræfingarnar mínar í morgun. Við erum á bestu leið að verða hraustar konur- en ekki hvað.
Bestu kveðjur til allra. Vildi vera heima í undirbúningnum og fjörinu, sem því fylgir.

5 comments:

Kristín E said...

Er að lesa bloggið í símanum hann Sigga Komum til Akureyrar fyrr í dag og gisti í Norró með mína fjölskyldu Við að heilsa þínum Gleðilega páska

Anonymous said...

Pfeiffersches Drüsenfieber - Symptome | NetDoktor.de
Þetta fann ég með því að gúgla, þú ættir að skoða þetta þar. Komin úr Mývatnssveit eftir frábæra ferð.

Anonymous said...

Gleðilega páska, þið vonandi búin að hafa það notalegt.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Gleðilega páska, þið vonandi búin að hafa það notalegt.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Unknown said...

Gleðilega páska öll sömul. Hér er bara sól en ekki mjög heitt, en vonandi ekki von á meiri snjó í bili. VÖ á leið suður og ég vona að hálkublettirnir á vestur landi og holtavörðuheiði nái að bráðna í dag !! Vinna svo aftur á morgun svo nóg er að gera.