Wednesday, April 27, 2011

Heillaóskir til Svanhildar.

Þá á mágkona mín afmæli í dag og ég rétt búin að loka blogginu þegar ég fattaði það. Maður er sko ekki með dagana á hreinu í fríi, ó nei. Ruglingur á öllu. Við reyndum svo í lengri tíma að hringja í hana en alltaf á tali. Svo hér kemur síðbúin kveðja-- Elsku Svanhildur mín. Innilega til hamingju með daginn. Við reynum aftur í kvöld að hringja í þig.

Og viti menn--hann Klaus er búinn að setja upp loftljósið! Sko þetta gat hann:) Við erum að fara til BS með honum þar sem hann á tíma í sjúkraþjálfun. Bara svona í skottúr. Rigningin reyndist lítil og léleg, en etv. rignir aftur í nótt.
Bestu kveðjur--ykkar gamla ÁA.

5 comments:

Kristín E. said...

Smá afmæliskveðja frá mér til Svanhildar :o).... er á netflakki og nenni ekki að fara að sofa hehehe
Bið að heilsa Margréti og Klaus...

Anonymous said...

Mikið var gaman að heyra frá ykkur...og Margrét! Við hlökkum til að fá þig til okkar þegar þú kemur til Íslands í maí :) Gangi þér vel að lesa.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Duglegur Klaus :D og auðvitað Margrét líka!!!!! A.H.

Anonymous said...

Já það var gaman að heyra í þér líka, Svanhildur. Hlakka rosa til að sjá ykkur og dúllu strákana :) Gangi þér líka vel með þessa ritgerð þína og við sjáumst
Margrét

Anonymous said...

Að styttast í skólahaldinu hjá mér, kennsla hjá 2. bekk í þrjá daga í næstu viku og prófin mín 12. mai. Spurning um norðurferð í sauðburðinn, þarf að reyna að púsla því saman. Annars heldur hryssingslegt veður í dag, kalsarigning og hvítt á höfðuborgarsvæðinu en mun betra hér við Vatnið.
Bk Diddi