Og þá er fríinu lokið. Klaus var ekkert að flýta sér framúr í morgun, og ég lá til næstum hálf tíu. Kalt í morgun miðað við undanfarna morgna. Um 6 stig fram yfir hádegið, en nú er komin sól af og til, og hann fór í 11 stig eða um það bil. Ég er ein í kotinu þar sem Margrét fór með Mariu til BS. Þær ætla í bíó. Gott að hún hafi eitthvað samband við fólk. Við bíðum svo spennt eftir fréttum af vinnu fyrir hana og vonum að eitthvað fari að koma í ljós.
Fyrsti gæslutíminn í dag. Við Margrét bjuggum til gifsmyndir í gær. Meira stússið og þetta varð svo fljótt að harðna að maður mátti hafa sig við að setja massann í formin. Svo máluðu krakkarnir á þetta í dag. Á að vera mömmudagsgjöf á sunnudaginn.
Það er orðið langt síðan ég kíkti á Facebook, og bloggaði. Takk kærlega fyrir kommentin. Alltaf jafn gaman að sjá eitthvað frá ykkur.
Já, fríið fljótt að líða. Við komum einhverju í verk. Það mikilvægasta var að við drifum okkur þann 28. austur til ættingja Klaus, sem er um 90 mín akstur. Margrét ók og þótti það gaman. Það eru smá hæðir og hólar nálægt Helmstedt. Og í Schöningen eru krappar beygjur og fjör að mæta vörubílum:) Við byrjuðum á að koma við í kirkjugarðinum og fara að leiði Körlu. Klaus fann ekki leiði pabba síns--þessi maður. Okkur var tekið vel í Hötensleben. Ingrid var með kaffi og kökur. Eppi kom upp, en Gunther, bróðir Körlu, er svo slappur eftir áfall í des. að hann er mest í rúmminu eða á sófanum. Gunther varð 90 ára í des. Mér fannst alveg tími til kominn að Klaus heimsækti hann. Eina móðurbróðurinn, sem hann á. Svo kom Ingolf úr vinnunni og við borðuðum kvöldmat uppi hjá þeim Indrid. Þetta fólk er indælt og hresst og ég vildi svo óska að þau væru nær okkur. Við kíktum við hjá Gregor í bakaleiðinni því hann átti afmæli, en þau voru þá í BS með dætrunum. Svo við skildum Sherrysflöskuna bara eftir við bakdyrnar.
Við ætluðum að aka meira um, en ekki eru 10 dagar nein ósköp af tíma. Og við vorum svo sem að gera annað líka. Klaus setti upp loftljósið, já sko minn! Og festi handklæðahengi á baðið við sturtuna. Það var eiginlega of heitt til að vera mikið í bíl og við vorum því mest í að slappa af og njóta sólarinnar. Margrét heldur áfram að skokka annan hvern dag. Við Klaus drifum okkur í göngutúr í gær. Annars er frekar erfitt að koma manninum mínum af stað. Gott að við löguðum til í hjólaskúrnum og fórum allavega einu sinni í hjóltúr saman.
Og svo er ein frétt af þessari rugluðu konu! Ég lét setja skol í hárið á mér, sem varð miklu dekkra en ég átti von á. Er orðin dökkhærð og með rauðan bjarma! Svo klippti konan allt of mikið af toppnum og ég get ekki setta hann aftur fyrir eyrað. En þetta vex nú vonandi:)
Allavega öðruvísi. Er nú reyndar hrifnari af ljósu hári en Klaus minn langaði svo í rauðhærða konu:) Og hvað gerir maður ekki fyrir þessa eiginmenn!
Jæja, kannski maður hringi í þau gömlu og frétti af veðurástandi á landinu fagra. Skyldi vera snjór eða vor eða sumar hjá ykkar? Bestu kveðjur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Vona að allt hafi gengið vel hjá Margréti í BS...hvað varð um litlu stelpuna ykkar!??!
Og Klaus með puttann á púlsinum, nú eru alla vega allar skvísurnar í Hollívúdd að fá sér rautt í hárið :) Ert örugglega mjög fín og oft er það fínt svona eftir á þegar hárgreiðslufólk tekur aðeins völdin...en ég skil þig vel ég ætlaði einu sinni í mál í Danmörku en sá svo nokkrum dögum seinna að það var ég sem hafði rangt fyrir mér eftir þá klippingu!!!
Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur
Myndir takk :)
Post a Comment