Við Margrét vorum að skoða flug og verð í gær. Helst vildum við fljúga frá Berlin en það er óborganlegt. Ótrúlegt að það skuli vera lang dýrast. Hamborg með millilendingu--á lítilli rellu, ojbara, og Frankfurt er geðveikisvöllur. Svo okkur datt nýtt í hug. Erum að spá í Köben og taka lest þangað. Það munar ekki miklu á verði. Er skemmtileg leið. Alltaf góð tilfinning að koma til Danmark. Og kannski maður gisti eina nótt í bakaleiðinni. En þá kemur Margrét seinna en til stóð. Við færum þá saman með lestinni til Köben. Spáum í 23.-25., en eigum reyndar eftir að athuga hvort pláss sé og hvort verðið hafi haldist. Svo það eru enn nokkur ef í gangi.
Margrét var að spá í það upphaflega að stoppa smá í höfuðborginni, sem verður þá styttra. En við vildum gjarnan vera í útskrift Hildar og reyna að koma á einhverri famelíusamkomu hjá Didda í bústaðnum helst daginn eftir útskrift. Sjáum til.
Svo er Margrét að vandræðast með Au Pair starfið. Hún fékk gott tilboð á draumastaðnum. Milli Drammen og Oslo. En gallinn er sá að foreldrarnir eru þýskir. Og hana langar nú ekki mikið að vera hjá kannski típískri þýskri fjölskyldu. Svo hún ætlar að sjá til hvort hún fái fleiri tilboð.
Ég fór til læknis í gær. Fékk uppáskrifað 6 nuddtíma. Er ekki hrifin af nuddi, en þar sem hálsinn á mér er þessi típíski danski háls (eins og skakkt settur á ) fá ég oft verki í hann. Og er farin að fá hausverki, sem stafa vonandi af þessu og lagast þá senn. Svo fer ég i tjekk rétt áður en ég ætla heim. Hjartalínurit, þrekpróf og blóðrannsókn. Gott að drífa í því.
Vinnan byrjuð. Málað á fullu á eggjabikara og gifsmyndir. Miklu kaldara og ekki stuttbuxna veður. Sennilega rigning í dag, sem veitir ekki af. Og svo spáð 25 stiga hita um helgina.
Jæja. Hef þetta ekki lengra í dag. Læt ykur vita þegar við erum komin með flugið á hreint.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
HæHæ
Veit ekki hvort þú varst búin að sjá þessa frétt http://skessuhorn.is/default.asp?Sid_Id=24845&tid=99&fre_Id=115795&meira=1&Tre_Rod=001|002| smelltu á linkinn, ef hann virkar, eða afritaðu og þá sérðu voða fína frétt með Ástþóri Erni sæta frænda okkar :o)
Með mér vinnur Steinunn vinkona Svanhildar Önju og hún sýndi mér þetta :o)
Bið að heilsa og hlakka til að hitta ykkur... ég er að vinna alla helgina eftir útskrift Hildar :S en mamma reiknar með að vera hér þessa helgi en hún verður upptekin á sunnudeginum, söngur :o)
kveðja
Kristín E. í vinnunni eins og alltaf :þ
vonandi verðið þið komnar fyrir 27 maí svo ég sjái ykkur
Post a Comment