Sunday, May 15, 2011

Plön.

Var að tala við Didda. Við erum mikið að spá í að halda smá hóf fyrir Margréti á laugardeginum eftir að Hildur útskrifast. Og það í sumarbústaðnum. Þar er nóg pláss fyrir börnin úti. Og gott pláss inni. Hvað haldið þið? Getur einhver mætt þangað? Er þetta of langt fyrir ykkur ???
Málið er bara að hittast smá og vera saman. Og sé veðrið gott er þetta paradís. Mér finnst líka gott að þið hafið ástæðu til að fara að Álftavatni og vera þar í þessari einstöku náttúrufegurð. Sé veðrið skaplegt, já.--- Allavega er hér komið PLAN, er það ekki frábært! Styttist í komu okkar og við spjöllum betur um hlutina.
Hafið það gott og eigið góða viku.

4 comments:

Þorgerður said...

Líst vel á þetta. Hefðum örugglega ekki komist ef þú hefðir haft þetta daginn fyrir Hildar útskrift.
Sjáumst :)

Kristín E. said...

Hæ... ég kemst ekki, er að vinna alla þessa helgi :S
kv
Kristín E. í vinnunni

Anonymous said...

Ég efast því miður um að við komumst austur. Hefðum þurft að vera fyrir vestan og svo er 15 ára stúdentsafmæli hjá mér þarna á laugardeginum með einhv. húllumhæi...veit ekki alveg hvað við gerum :/

En við sjáumst nú vonandi þegar þið komið. Bestu kveðjur héðan, Svanhildur og co

Anonymous said...

ég skal reyna að mæta með dóttur mína ;) A.H.