Og þá kom að því að blessað barnið fengi að útskrifast. Eftir að síðustu prófin voru í maí hjá henni:) Í morgun var hátíðleg athöfn að þýskum sið í samkomuhúsinu okkar hér í Meinersen. 60 stúdentar, sem skólinn útskrifaði í fyrsta sinn í sögu þessa menntaskóla, Sibylla-Merian-Gymnasium.
Athöfnin fór fram klukkan 10 og ég fékk frí í vinnunni, ásamt 3 öðrum mömmum, sem allar eiga nýstúdenta í dag. Skemmtileg tilviljun, en ekki fyrir skólastjórann, hahaha.
Umsjónarkennararnir, Tutoren" héldu smá þátt um "plöntur", sem þeir höfðu vökvað og hlúið að á undanförnum árum. Bráskemmtilegt og hlegið mikið. Þrír efstu,-sem voru reyndar 4 því Margrét og Marvin voru jöfn með 1.4, fengu viðurkenningu og 200 evrur frá Sparisjóðnum og 30 evru bókaúttekt frá Foreldrafélaginu. Inga var efst með 1.1, og númer þrjú var svo Celina, með 1.7. Svo við getum verið voða ánægð með hana Margréti okkar. Ekki það að mér finnist einkunnir svo merkilegar, en alltaf er gott að fá viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Mest finnst mér um vert að hún er ljúf og góð og ótrúlega hress miðað við út af hverjum hún er komin, hehehehe.
Já, við sem sé komnar heim aftur og var ferðin góð í alla staði. Flugið gekk rosa vel og ekkert hristist að ráði þó að við lentum í allra öftustu sætunum í vélinni:) Reyndar smá hrystingur við lendingu í Köben en ekkert slæmt. Þar biðu svo Nina og Svend. Heima hjá þeim fengum við smurt brauð og köku. Svo var farið í göngutúr í Frederiksberg-garðinum, sem er fallegur og frá höllinni er frábært útsýni. Kvöldmaturinn ekki af verra taginu. Nina gerði svo æðislega svínalundir að ég vildi óska að ég gæti gert svona líka. Nýjar danskar kartöflur og ný jarðarber. Og ekki má gleyma forréttinum, brauð með laxi, aspas og baunum og þvílíkt góðri sósu!
Við vorum þreyttar eftir lítinn svefn og vorum háttaðar klukkan 7 að íslenskum tíma, já grínlaust. Og duttum út af. Enda morgunmatur 7.30 morguninn eftir, sem sé 5.30 á íslenskum tíma, og svo óku Nína og Svend okkur á Hovedbanegården, þar sem við settum töskurnar í geymslu. Það var æðislegt að vera hjá þeim og þau tóku svo vel á móti okkar. Ætla svo sannarlega að heimsækja þau aftur við fyrsta tækifæri. Gott að eiga Ninu og Svend að.
Við röltum um í bænum. Margrét keypti myndaramma í Lisbeth Dahl og gollu í Gina. En hún hætti snarlega við að kaupa hettupeysu á 80 evrur, sem hana langaði svo mikið í. Bara millar eins og Ásta og Guðný eiga slíkt!:) Svo keyptum við bollur og vatn og sátum á tröppunum á Kongens Nytorg og nutum lífsins. Lestarferðin gekk glimrandi að undanskildu því að Klaus ruglaðist á síðustu stund og fór á stöðina hjá okkur að ná í okkur klukkan 11 um kvöldið. En við vorum í Celle, hálftíma akstur í burtu:) En hann brunaði eftir okkur og það fór ekkert illa um okkur á meðan.
Heima beið illgresi og blóm, sem vaxin eru úr sér, hafa lagst á hliðina í ofsaregninu og nóg starf til margar daga. Þvottur í nokkrar vélar, og ryk um allt. Mætti í vinnu straks daginn eftir og það var eins gott því nú er Ines lasin. Við erum sem sé alltaf ein frá vinnu í einu og eftir eru tvær með alla krakkana í einu úti og engin almennilega starfsemi hefur farið fram síðan ég fór. Tja, ég lét þau nú föndra þrátt fyrir fjölda nemanda og veikinda starfsmanna, en svona er það nú bara.
Klaus flýgur svo á mánudaginn til Englands í tvo daga. Ég á eftir 8 daga í sumarfríið. Og næst er svo ferðin með Margréti til Norge. Já, nóg framundan.
Það var yndislegt að vera með ykkur öllum heima í sumar, og þrátt fyrir öll vandamálin, sem fylgja þessari fjölskyldu eins og skuggi fylgir sólu er alltaf best að muna eftir því að erfiðleikarnir eru til að kenna okkur og hann birtir upp um síðir.
Þakka ykkur öllum fyrir alla hjálpina og fyrir að vera góð og jákvæð gagnvart mér og mínum. Ekki síst á Maddý þakkir skilið eftir alla vinnuna, sem hún lagði í veisluna og líka fyrir að redda ókeypis sal-- og bara fyrir að vera Maddý!
Takk takk takk--allir og hafið það gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Gott að allt gekk vel á heimleiðinni og gaman koma við á Fredriksberg hjá Ninu og Svend.
Það var yndislegt að sjá ykkur aðeins en mikið væri gaman að hafa ykkur nær.
Og til hamingju aftur með frábæran árangur Margrét! Já, einkunnir sem slíkar segja ekki allt en það er gaman að uppskera vel.
Það hefur verið notalegt að koma heim en vonandi að við sjáumst sem fyrst aftur. Hafið það gott, vonandi að ferðin gangi vel hjá Klaus...gott hvað hann færi að ferðast mikið í vinnunni af því hann elskar að ferðast svona! Ha ha.
Hafið það nú gott. Bestu kveðjur, Svanhildur
Takk fyrir samveruna elsku frænka, það var yndislegt að hitta ykkur og ekki síst að sjá Margréti og Margréti ná svona vel saman. Til lukku með nýstúdentinn ykkar :o) Hún á eftir að standa sig glimrandi vel í Norge.
Kveðja frá Kristínu í Mývó
Gott að sjá að þetta var allt eins og við var að búast, fínt hjá Nínu og úrsérsprottið í garðinum. Loks komið sumar hér við Mývatn og náttúran hefur gjörbreyst á 3 dögum. Vonandi fáum við þokkalegan hita og sól áfram. Tónleikar með Út í vorið í kvöld, hitti Ásgeir og Ólöfu aðeins í gærkvöldi í dyrunum hjá Jóka og Ingigerði. Hress.
Bestu kveðjur í bili.
Diddi
Post a Comment