Í fyrramálið þann 18. júlí leggjum við af stað til Malmö. Gistum þar eina nótt og höldum svo til Jönköping. Verðum þar í 2 nætur. Svo eina í Gautaborg. Komum til Stefáns Arnar á fö., og verðum þar um helgina. Vonandi hittum við Hildi og Ásgeir. Er búin að hafa samband við Hildi á netinu. Við ætlum ekki að panta gistingu fyrir bakaleiðina fyrr en við sjáum hvað okkur langar til að vera lengi. Ætti ekki að vera erfitt að fá eitthvað fyrir bara tvo. Kannski við komum heim á þr. 26., eða ekki fyrr en 27. --Sjáum til. Væri gaman að fá SMS og svo geta nú einhverjir eins og Diddi og Þórdís hringt í Stefán Örn meðan við erum þar--eða er það ekki:)
Komumst þá líka örugglega í tölvu:)
Hafið það öll sem best. Vona að þið hugsið hlýlega til okkar á þessu löngu ferðalagi.
Bestu kveðjur frá Áslaugu og heimasætunni.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ hæ! Góða ferð og knúsaðu heimasætuna frá okkur sem er að leggja af stað í ferðalag sem ég er handviss um að á eftir að verða skemmtilegt, þroskandi og lærdómsríkt. Ég er búin að reyna að leggja inn komment á fínu síðuna hennar en þau vilja bara ekki birtast. Við hlökkum til að fylgjast með síðunni hennar.
Hafið það gott! Bestu kveðjur, Svanhildur
Góða ferð :o)
Post a Comment