Sunday, July 31, 2011

Júlílok.

Sunnudagur og úti rignir og rignir. Ekki nema ein 13 stig og mér fannst frekar kalt í morgun þegar ég skrapp út í bakaríið. Hjá Margréti voru 30 stig í gær, og við eigum von á hitabylgju á miðvikudaginn með 30 stigum. Það er nú meira hvað veðrið sveiflast upp og niður.
Við Klaus komum heim á þriðjudagskvöldið eftir langa og stranga ferð. Það var erfitt að upplifa þetta, sem gerðist í Oslo. En ferðin okkar var samt skemmtileg. Við gistum fyrstu nóttina í þriggja manna herbergi á einu af Ibis hótelunum, sem eru nokkuð mörg í Svíþjóð. Vorum í Malmö.
Röltum um innbæinn og við Margrét rifjuðum upp minningar fra okkar fyrstu ferð þangað. Það var í ferðinni, sem við gistum í tvær vikur í húsi Eiríks á Amager. Frábær ferð, sem ekki mun gleymast.
Næstu tvær nætur vorum við í Jönköping.
Renndum í gegnum Kristianstad þar sem Ása fænka vinnur á sjúkrahúsinu, sem maður sér þegar ekið er inn í bæinn. Hún var búin að segja mér að hún væri að vinna eins og vitlaus og við reyndum ekki að hafa samband. Stoppuðum í eina klukkustund og fengum okkur að borða á teríu í innkaupamiðstöð. Bærinn ágætur og vinalegur.
Svo ókum við lang skemmtilegustu leiðina. Í gegn um Småland. Þar er Svíþjóð eins sænsk og getur gerst. Fullt af rauðum timburhúsum og hver bóndabærinn öðrum fallegri. Fullt af litlum þorpum með yndislegum húsum. Sérstaklega féllum við fyrir Korsberga, sem er norðan við Växjö. Svo líkar mér vel við vegina í Svíþjóð. Það eru oft bara 3 akgreinar. Járngirðingar við hliðarnar og milli akgreinanna. Alltaf til skiftis tvær í eina átt og ein á móti. Svo eftir svona 2 km breytist þetta og úr tveimur akgreinum verður ein og á móti verður ein akgrein að tveimur. Svo það er alltaf kafli, sem ekki er hægt að taka framúr. (á einu akgreininni) Og svo kafli, sem það er hægt. Afskaplega afslappað og ekkert stess.
Í Jönköping vorum við með tvö herbergi. Aftur hjá Ibis. Lítið hótel og rólegt. Skoðuðum innbæinn og svo var ekið langan túr meðfram vatninu, til Motala. Þá er maður ekki langt frá Linköping þar sem Dísa og Trausti voru. -Hvar var Affí?-Tókum svo krók til Mariestad, sem er við stóra vatnið. Ætli það sé ekki Vätteren? Og svo beint suður gegn um Skövda til Jönköping.
Margrét ók mikið þennan dag og var ekki í vandræðum með það. Verst er að ekki er hægt að sjá mikið á mörgum stöðum. Það eru bókstaflega hávaxin tré um allt:) Það var gott að Klaus ók fyrri hluta leiðarinnar og Margrét gat þá horft út og dáðst að landslaginu og húsunum. Hún fékk svo rosa skemmtilega leið upp og niður og í beygjum og ekið á hægum hraða enda ekki hægt að sjá langt. Það var tilbreyting og mesta fjör.

Síðustu nóttina vorum við utan við Gautaborg, í Lerum. Í nákvæmlega eins byggingu hjá Ibis og þeirri í Jönköping.
Skoðuðum Gautaborg straks á þessum fimmtudegi þar sem við vorum komin svo snemma um daginn. Okkur fannst Gautaborg ekki sérlega falleg borg.Það er ofboðslega mikið af blokkum og lítið spennandi húsum. En samt eru hverfi þar sem eru gamlar byggingar og svo við hliðina þessar leiðinlegu blokkir svo það er allt til. Innbærinn ágætur, en mannfjöldinn--maður minn. Við löbbuðum inn í innkaupamiðstöð og það varörtröð af fólki. Ætluðum eiginlega að taka rútu og vera alvöru túristar, en við komumst of seint að því hvenær hún færi og misstum af því. Svo við bara keyrðum um í staðinn. Fengum okkur pylsur, og Klaus fékk sér á sænskan máta-með kartöflumús yfir pylsum í brauði:)

Á fö.morguninn var svo lagt í löngu leiðina til Drammen. Þetta eru einir 8 tímar. Maður verður jú líka að stoppa smá. Við vorum ekki viss hvernig við kæmumst sem best til Stefáns Arnar. Létum garminn velja leiðina og án hans hefðum við nú lítð fundið! Við tókum því ferju í Moss yfir til Horten, og það var líka upplifun. Frekar lítil ferja, en stillt í sjónum og gaman að nálgast hina ströndina á þennan hátt. Svo sáum við að ekki var hægt að borga vegatollinn á nokkurn hátt og þorðum ekki að aka Autobahn. Sem reyndist vitleysa því Stefán Örn sagði að maður æki bara vegina og það væri tekin mynd og svo fengi maður rukkun-eða ekki. En út af þessu lentum við á lélegum vegum og vorum nokkuð lengi til Dramman.
Þar beið okkar nýbökuð súkkulaðiterta og brauð. Var tekið vel á móti okkur og gaman að hitta fólkið. Það var þvi áfall þegar hringt var í þau og við féttum af sprengingunni í Oslo. Framan af héldum við að þetta væri innrás hjá öfgamönnum, og það var léttir þegar við fréttum loks að þetta væri bara einn nágungi. Ekki það að það væri ekki hræðilegt, en maður vonar þá að þar með sé þessu lokið. Já, ekki skemmtileg upplifun.

Yngri dætur Stefáns Arnar gengu úr rúmi fyrir okkur. Erna Svava er heima og vinnur í herrafataverslun. Sara Rut er í skóla. Var nýkomin frá Spáni. S.Ö og Sigga hafa verið að taka efri hæðina í gegn. Mála allan panelinn í svefnherberginu, sem er mikið verk. Og hann frændi minn er mjög nákvæmur:) Ekkert verið að kasta höndunum að þessu.
Húsið stendur í brekku og það er bílastæði fyrir framan-neðan, sem tekur 3 bíla hlið við hlið. Þau leygja kjallarann. Eru þar með þvottahús og hol. Svo eru tvö svefnherbergi uppi, eina baðið, eldhúsið og stofan. Efst eru svo stórt hol og svefnherbergi hjónanna. Þau byggðu stórar svalir utan um húsið enda veitti ekki af því það er enginn gangur framan við. Og fyrir aftan húsið er smá skiki, svo tekur við brekka og aftur smá skiki. Á honum er t.d. stórt trampólin og rétt dugar plássið:) Það er stétt framan við húsiið og þó nokkrar tröppur upp að því. Og mér skilst að oft þurfi að moka snjó þarna á vetrum.

Guðrún Björg bý í húsinu við hliðina. Hún á 2 dætur og lítinn gaur. Öll voða sæt eins og öll barnabörnin eru.. Þau voru að byggja ofan á húsið, en eru ekki búin að innrétta enn. Vonast til að geta flutt í það fyrir jólin minnir mig. Þau eru að mála það að utan en þar sem hann hefur rignt í allt sumar eða þar til við Klaus fórum, hefur það gengið hægt.
Við borðuðum einu sinni morgunmat úti. Rétt náðum að klára áður en næsti skúr kom.
Sigga og Stefan Örn óku okkur um bæinn. Sýndu okkur hús Halldórs. Mjög fallegt splunkunýtt í nýju hverfi. Hittum hann, konu og börnin tvö.
Svo óku þau okkur upp á fjall í gegn um rosaleg göng, sem Dramman er víðfrægt fyrir. Frábært útsýni og fallegur veitingastaður uppi á fjallinu. Eins í gegn um bæinn, sem er ljómandi fallegur.

Arna Sigga kom með sína stráka og mann til okkar svo við sáum alla
famelíuna. það var mjög gaman. Ég vona svo að þau hafi einhvern tíman samband við Margréti og að hún þurfi ekki að betla um að fá að koma til þeirra. Allavega tóku þau vel í að halda uppi sambandi við hana.

Við fórum svo með Margréti á laugardeginum 23.7. til fjölskyldunnar. Það var gaman að hitta þau og sjá húsið, sem er náttúrlega líka uppi á hæð, með tvö bílastæði og miklu brattari uppkeyrslu en t.d. hjá S.E.:) Já, það er ekki mikið láglendi þarna. Það var ekki sérlega létt að kveðja Margréti, en við hittumst daginn eftir. Það er ekki auðvelt að vera ein hjá ókunnugum og hún er ótrúlega sterk að hafa þorað að stökkva út í þetta verkefni. Ekki allt eins og heima og fólkið öðruvísi og strákurinn ekki svo auðveldur. En hún gerir sitt besta og maður verður svo að sjá hvað út úr þessu kemur.
Við sóttum hana á sunndaginn og fórum í æðislega heimsókn til Hildar og Ásgeirs. Þau búa í "hina" áttina. Í Asker, Hvalstad. Öll þrjú börnin voru heima og Hans Óttar var með 3ja ára dóttur sína. Konurnar komust ekki. Kona Hans Óttars er ófrísk og með mjaðmagrindarverki. Og kærasta Björns Braga var upptekin. En Hulda er heima núna, og kærasti hennar var þarna líka. Hulda er í háskóla í Hollandi í

sjúkraþjálfun, og kynntist kærastanum þar:) Lítill heimur stundum.
Hildur mín er með brjóstakrabba og er að fara á morgun í næst síðustu meðferðina. Hún ber sig vel og er sterk. Talið að þeir séu búnir að ná fyrir þetta. Það ætla ég svo sannarlega að vona.
Hún tók ofsalega vel á móti Margréti og bauð henni að hringja í sig hvenær sem væri og hún gæti komið í heimsókn og gist. Þau eru með tómt herbergi. Ásgeir þurfti í vinnu klukkan 6 og við borðuðum með þeim kvöldmat og fengum ótrúlega góðan kjúkling og norsk jarðarber og bláber í eftirmat. Skoðuðum allt húsið, sem er hreinlega draumur. Gamalt timburhús, sem þau eru búin að taka alveg í gegn. Eru búin að búa þarna í tæp 20 ár. En nú ætla þau að flytja svo Ásgeir þurfi ekki svona langa leið í vinnuna í Oslo, og kaupa ódýrara svo hann geti það unnið minna. Þau ættu að fá gott verð fyrir húsið, sem er örugglega 6 miljón króna virði, norskra:)
Við fórum svo með Margréti heim til Lier-sem er ekki í bænum Líer, heldur úti í sveit. Hún þarf um 8 km í leikskólann ef hún ekur Joni þangað. Og korters akstur í bæinn Lier. Sem sé alveg úti í sveit. Svo það var frábært að hún fór í gær í strætó og lærði á leiðina. Fór alla leið til Drammen. 40 mín, nokkuð löng leið.
Og aftur ekki auðvelt að kveðjast og við söknum hennar mikið. En ef henni líður vel er allt í lagi og gangi þetta ekki, þá bara verður hún að breyta um fjölskyldu eða gera eitthvað annað. Hún er orðin sjálfstæð og vill þetta og við bara styðjum hana í þessu.

Mánudaginn ókum við svo til Malmö og gistum aftur í sama hótelinu. Og fórum svo heim á þriðjudaginn. Fórum aðra leið-í gegn um Danmark, fram hjá Odense, og niður í gegn um Flensburg.
Hér var allt í lagi. frekar kalt. En við erum búin að vinna í garðinum. Hreinsa gangstéttina, klippa greinar og slá grasið. Og í gær var tekið til inni og farið í gegn um pappíra og slíkt.

Ef ekkert hefur breyttst ætti Margrét að vera í Oslo í dag að heimsækja hans Óttar. Spennandi hvernig sú ferð gekk og hversu lengi hún er á milli. Um miðjan ágúst ætti svo norskunámskeiðið að hefjast og vonandi kynnist hún þá einhverjum.
Affí heldur að Sæmundur búi þarna í grendinni og ætli Sólveig á Arnarvatni búi ekki líka nálægt?
Mér finnst að við Affí og Þórdís-þessar með útþrána-ættum að flytja allar út og vera í sama bæ-Sigurður Ágúst líka, og lifa í svona fjölskyldusambandi eins og Stefán Örn. Það væri bara perfekt:):):) Spurning um Norge eða Sverige.
Er komin með verki í axlirnar og þið hafið örugglega þurft hlé inn á milli! Lofa að næsta blogg komi fyrr og verði stutt!
Hafið það gott og verið dugleg að kvitta hjá okkur Margréti.

8 comments:

Anonymous said...

Ætlaði að segja að ferðin frá Gautaborg hafi tekið um 6 tíma-ekki 8. Og svo meinti ég að ekki væri garður fram við húsið--ekki gangur:)
Áslaug

Anonymous said...

Jæja mamma. Þetta var ekkert smá blogg :) En ég var dulllllleg stelpa og las það. Ég fer á eftir til Hvalstad ekki til Oslo. Við ætlum bara að hittast aftur þar því að það er meira pláss þar :D
Við tölum svo saman fljótlega inn á skype.
Elska þig <3
Margrét

Anonymous said...

Þetta var alls ekki of langt blogg... svo gaman að lesa ferðasöguna :o) Svo fylgist ég spennt með bloggi Margrétar, þetta er allt svo spennandi hjá henni :D
kv
Kristín E. í vinnunni

Anonymous said...

'Eg bjó í Linköping og ferðaðist talsvert um svæðið, fór líka til Gautaborgar, og svo yfir til Norge alla leið til Bergen, en ´hef ekki farið norðar en þangað. Margret ekki í vandræðum með að keyra, hún er bara flott og á eftir að standa sig frábærlega og hafa gaman af þessu öllu. VÖ kom um helgina, bara dásamlegt að hafa alla heima. Pabbi að hressast, skrepp til þeirra á eftir. AD að vinna alla helgina ená frí á morgun. Gaman að þú skyldir hitta alla fjölskylduna hjá S.Erni. Já Sæmundur er ekki svo langt frá. Karen er að fara út með krakkana núna í vikunni, en hann er búinn að vera úti í sumar og redda húsi og öllu. Er í fínni vinnu og mjög ánægður, stutt á strönd og allir rosa ánægðir. Hafði það gott mín kæra og heyrumst fljótlega. Þín sys Affí

Anonymous said...

gaman að lesa ferðasöguna ykkar og ég vona að allir séu kátir og glaðir. Við erum búin að vera með Kristínu Ástu skottu sem er búin að vera æði. Ingó á balli í gær og allt gekk vel knús til ykkar allra Þórdís

Anonymous said...

Gaman að lesa ferðasöguna.Við Lilla vorum að koma úr messu í Dimmub.ásamt Ingibj.og Þorláki.Veðrið var fínt og við drukkum kakó í borgunum á eftir.Áslaug og Páll voru með en þau eru nýkomin en gista hjá Gerði.Siggi er hér með börnin en Kristín að vinna.Gerða og fjölsk.er í bústað í Húsafelli og Malla í heims.um helgina.Ég prjóna og prjóna eins og enginn sé morgundagurinn en Lilla tekur til,er nú að klára jóladúk svo hún gerir eitthvað annað líka.Kveðjur frá öllum.Magga móða.

Anonymous said...

já þetta var ekkert smá blogg :D en gaman að fá að lesa alla ferðasöguna.
ástarkveðjur Arnhildur

Anonymous said...

Gaman að lesa nýtt blogg og skemmtilega ferðasögu. Þetta hefur verið góð ferð og gott að Margréti líst vel á hlutina í Noregi. Þetta er ævintýri fyrir hana.

Hafið það nú gott. Bestu kveðjur, Svanhildur