Úti er nokkur vindur, sólarlítið og mun kaldara en undanfarið. Ekki er þó þörf að kvarta. Annað slagið kíkir sólin fram úr skýjunum og allt er grænt og fallegt. Enn grænt að minnsta kosti, en fari hann ekki að rigna hressilega er hætta á að litirnir breytist í brúna liti. Við settum pumpuna í gang í gær í nokkur skifti og vökvuðum allt, sem við gátum. Svo fengum við okkur mulinn trjábörk, sem er kominn yfir nokkur beð. Verst að okkur vantar meira. Klaus fer í fyrramálið til Stuttgart og gistir eina nótt. Kannski Margrét geti dröslað nokkrum 70 lítra pokum í bílinn. Ég má jú ekki lyfta þungu.
Ég fékk 6 tíma í nuddi út af hálsinum. Fór á stofu hjá rosalega góðum sjúkraþjálfurum, sem búa í næsta þorpi, en eru að flytja stofuna hingað. Þau kenndu mér nokkrar æfingar, sem ég á að gera oft á dag. Svo vilja þau að ég fari í líkamsrækt þar sem vitlausa öxlin sé ekki nógu sterk-þar sem ég hlífi henni enn of mikið. Og svo fór ég til Heilpraktiker í vikunni með Margréti. Tíminn var ekki fyrr en 9 um kvöldið. Við eyddum deginum í bænum í BS. Keyptum nokkrar afmælisgjafir og boli handa Margréti. Settumst við borð úti og fengum okkur ís. Veðrið hefur verið hreinlega ótrúlegt miðað við árstíma.
Ég fékk dropa og töflur, sem munu vonandi styrkja öxlina, bindivefina og hjálpa mér í gegn um breytingaskeiðið, sem ég er víst á fullu að fara í gegn um. Með tilheyrandi kvillum. Erfiðleikum að sofna, vakna oft, stressköstum. Vonandi laga töflurnar þetta, og ef ekki þá fer ég bara út í eitthvað sterkara:) Er komin með pillur til að taka ef flugið verður mjög slæmt, og þær eiga að verka straks. Vonandi þarf ég ekki á þeim að halda, en gott að hafa í vasanum:)
Margrét búin í síðasta prófinu. Fékk 12 af 15 mögulegum í munnlegu líffræðinni. Það var bara fjör hjá henni og henni var þakkað fyrir skemmtunina á eftir. Gott að vera hress, ekki satt. Þann 9.6. fær hún svo einkunnirnar. Pabbi hennar þarf þá ð ná í þær uppi í skóla, eða vinkona hennar. Og bæði þurfa að fá skriflegt leyfi til að ná í þetta, típískt! Af því hún er 18 ára.
Og hún bíður núna eftir að fá vinnusamninginn frá Au Pair skrifstofunni frá þýsku norsurunum! Þau eru búin að skrifa henni nokkrum sinnum, tala við hana á "skæp" og henni líst vel á þau. Hvernig þau eru kemur hvort sem er ekki í ljós fyrr en í daglegri umgengni. Allavega erum við fegin að leitin bar árangur og hún komin með dagsetningu. Fer 22.7. til þeirra. Hvernig er ekki á hreinu. Hitt og þetta sem athuga þarf. T.d. fær hún líklega of mikið greitt til að vera áfram tryggð hjá Klaus og þarf að tryggja sig ein. Og sennilega fáum við ekki barnabæturnar á meðan hún er þarna út af tekjum hennar. Hvort hún stofni bankareikning, hvernig best sé að senda henni dót og svo framvegis, eru hlutir, sem spáð verður í í júlí þegar við komum aftur út. En sem sé-við erum spennt og hún hlakkar mikið til.
Í gær tók hún allan fataskápinn í gegn. Komin hrúga, sem KD getur líklega notað, en maður veit aldrei með þessa unglinga:) Klaus sló grasið. Í dag verð ég að kíkja á stutterma skyrturnar hans og pressa sparibuxurnar og ath hvað ég þarf að koma í stand áður en ég fer. Hringja í konuna, sem þarf að sjá um að panta bækurnar fyrir menntaskólann meðan ég er heima. Hringja í safnaðarheimilið út af blaðinu, sem bera á út í júní fyrir kirkjusöfnuðinn, koma þvegnu viskastykkjunum og tuskunum til einnar í stjórninni í foreldrafélaginu. Svo eru 3 tímar í nuddi, ein ferð til BS og tiltekt í dótinu mínu í skólanum á döfinni. Sem sé alveg nóg að gera.
Þá er dóttir mín komin úr baði. Ilmandi og fín. Ég ætti líklega að gera hið sama. Lykta enn eftir að baka kartöflulummur í gær:) Maja við hliðina klippti hekkin mín í gær með rafmagnsklippum. Við fengum á okkur tvo skúri, sem við létum ekki aftra okkur í að byrja bara aftur þegar hlé varð. Gott að koma sem flestu í verk.
Við létum okkur hafa það að hlusta á Eurovision í gær, en ekki var ég sérlega hrifin. Íslenska lagið var fínt og strákarnir góðir. Megum vera ánægð með þá.
Hafið það gott og leggist á bæn fyrir okkur að flugið gangi vel. Enginn hrystingur og læti og engar tafir. Sjáumst næstu helgi!!!!!!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
góða ferð heim og njótið dvalarinnar :)
Kv. Aldís B
Post a Comment