Wednesday, March 23, 2011

VOR -- og það bara með stórum stöfum!

Veit að þið verðið græn af öfund, -nema Þórdís, sem elskar íslenska veðrið og já pabbi líka, en þið hin vilduð örugglega vera komin hingað. Það var hlý og yndisleg nótt með 5 stiga hita! Undanfarnir dagar voru hreinlega frábærir og hitinn hefur farið í ein 14 stig. Vorið á dagatalinu kom í fyrradag eða daginn þar áður. Og svo tekur sumartíminn við á sunnudaginn. ( því miður fyrir okkur, sem viljum hringja í Íslendinga)
Manni líður eins og allt sé fimmtugum fært í þessari sól. Búin að ráðast á illgresi og planta nokkrum blómum í potta. Svo er komið að skápatiltektinni, sem ég elska. Rífa allt út úr og fara í gegn um og henda svo sem mestu. Allavega af dótinu hans Klaus, hahaha. Hann henti sokkum, sem mamma hans prjónaði og hann hefur ekki gengið í í mörg ár. Sokkarnir þunnir og úr sér gengnir. Nokkur pör af náttfötum hurfu líka og eftir er að kíkja á bolina. Að ég ekki tali um hvort megi henda nokkrum skyrtum með snjáða kraga. Og svo er það minn skápur,hmmm.

Margrét ósköp ánægð að vera heima og lesa úti í sólinni í Strandkorb. Golan er svöl, en í stólnum er logn að mestu. Hún tekur þessu með ró enda mest áríðandi að vera hress í prófinu og útsofin. Hér er ekki eins mikið spurt um staðreyndir heldur reynt að fá krakkana til að rökræða og skrifa um málið. En auðvitað þarf samt að vera þekking til staðar.

Í vinnunni er sama sagan. Ein lasin af okkur þremur, sem sjáum um gæsluna og við þá auðvitað úti með öll börnin. Milli 60 og 75. Svo verður hin skorin upp í hné á mánudaginn og verður í veikindafríi í tvær vikur. Og við sem ætluðum að föndra eins og vitlaus. Verður varla mikið úr því.

Fór í gær í krabbameinsskoðun. Þetta sig mitt er ekki eins stabilt og ætti að vera þrátt fyrir þessa aðgerð. Þar sem ég er með svo lélegan bindivef-(heitir það svo?)- þá hrynur allt smám saman niður. Læknirinn minn segir að það þurfi að setja net fyrir. Ég hélt að það hefði verið gert, en þar sem aðgerðin fór í klessu út af mínum miklu blæðingum, gátu þeir ekki gert þetta eins og planað var. Svo mín bíður sennilega önnur aðgerð, en kannski ekki fyrr en eftir 5, jafnvel 10 ár. Og þá verð ég sko komin heim og almennilegir læknar gera þetta, og hananú. Sagði lækninum að ég stykki í ána Oker ef ég þyrfti í annan uppskurð og hann bað mig að láta sig vita hvenær svo hann gæti hringt í slökkviliðið í Meinersen! Hann er frábær og við hlægjum alltaf mikið.

Við Margrét fórum í göngutúr í góðviðrinu í gær og ætlum að gera það helst daglega. Og svo er að draga Klaus í gönguferðir. Hann er ótrúlegur. Vill bara ekki drífa sig út. Hann fékk sér ný leikföng. Wetterstation, sem mælir hita úti, segir fyrir veðrinu og mælir mesta kulda á nóttinni og svona mætti lengi telja. Og hitt er tæki til að skanna slidesmyndir. Nú hefur hann nóg að dunda sér við. Já, og svo að fara í gegn um fötin:)

Á morgun skrepp ég í menntaskólann til að afhenda mynd af konunni, sem skólinn var nefndur eftir. Við í foreldrafélaginu gáfum mynd og létum skrifa um ævistörf þessarar konu, og setja í annan ramma. Við komum í blöðin og ég skal setja inn Link.
Á laugardaginn þegar Margrét situr sveitt yfir þýskuprófinu--nota bene -læst inni í einni álmunni, því ENGINN má koma nálægt þessari helgu stund,- mikið að þau skuli fá að fara á klósett, --þá fer ég með Frau Kühle og Brigitte, sem er líka kennari, í bíltúr til Hildesheim. Brigitte er frá þessu svæði og ætlar að fara með okkur í menningarferð.
Við fórum með Maddý og Einar þangað og seinna líka Kristínu og Arnhildi, eða var það ekki? Með Gunnari og Vilborgu. Maður er búinn að gleyma þessu öllu.
Klaus tekur sér frí á föstudaginn og þá verður vonandi gert eitthvað í því að koma upp gardínustöngunum, og vinna í garðinum. Listinn er allavega langur.
Fórum um síðustu helgi í byggingavörumarkað og keyptum ýmislegt. T.d. mauareitur, blóm, mold og skúfur fyrir gardínustengurnar. Verst að skrúfu-borvélin er ónýt. Ný kostar um 170 evrur. Svo nú er að leita að tilboðum.

Maria Heim hringdi í mig á sunnudaginn. (Þessi úr spilandi fjölskyldunni). Gunther er farinn til Spánar að labba pílagrímsveginn, Jakobsveginn, sem er tískufyrirbæri. Reiknar með að vera í 6 vikur. Maria er fegin því þau eiga í erfiðleikum í hjónabandinu. Hún er á þeirri skoðun að hann hafi lítið tekið tillit til hennar. Það eru víða vandamálin og hefur hver sitt um það að segja.

Jæja. Ekki dugar þessi leti i vortiltektinni. Og best að koma sér á kaf í næsta skáp:)
Vona að þið hafið það öll sem best. Hlýjar vorkveðjur til ykkar allra frá gömlu signu konunni handan við hafið. Og takk fyrir allar kveðjurnar. Glöddu mitt gamla hjarta.

5 comments:

Anonymous said...

HæHæ.... mig minnir að ég hafi farið til Hildesheim eins og þú talar um :)
Er aðeins að stelast í vinnunni áður en ég storma heim.
kv
Kristín E.

Anonymous said...

Hæ Auðvitað fórum við til Hildesheim og ég þekkti mig aftur síðan í skólaferðinni 66 með danska skólanum.Hér er allt við það sama,vinna og söngur.Ég slappa af með því að prjóna og gera sem minnst heima. Tek í kring reglulega en legg ekki aðaláherslu á það.Lilla er svona svipuð,finnst hún vera svo kraftlaus,en hún er nú ekki fræg fyrir að hvíla sig.Hef ekki heyrt í henni í dag en vona hún hafi farið á æfingu.Við fórum í fjallið með nemendur s.l.þriðjud.Veðrið var hund leiðinlegt en þetta gekk bara vel þurfti að aðst.börn við að komast í skó og skíði og svo að fylgjast með þeim,ég var á skíðum.Þetta var bara gaman og góð tilbreyting.Kveðjur til ykkar allra.Magga móða.

Unknown said...

ja hérna mín bara farin að blogga á fullu og ég hafði ekki hugmynd enda veit ég lítið hvað er að gerast utan skóla en hann er nú brátt á enda. já ég elska íslenskt veður svo sannarlega hehe nottttt

Anonymous said...

Yndislegt að vorið sé komið/alveg á næsta leyti hjá ykkur!
Oh...öfunda Klaus af veðurstöðinni.
Vona að allt gangi vel hjá Margréti, við sendum góða strauma héðan. Hafið það öll gott og góða helgi. Bestu kveðjur, Svanhildur

Þorgerður said...

Snjórinn loksins að hverfa hér, og styttist í páskafríið. Svo er að fara að huga að útskriftarveislu Hildar í lok maí. Hún er búin að fá vinnu við aðhlynningu í Boðaþingi sem er Hrafnistuheimili í hverfi hér fyrir ofan okkur í sumar, og getur svo vonandi verið þar áfram næsta vetur. Hún ætlar ekki strax í skóla, á eftir að ákveða í hvaða nám hún vill fara. Við hin höldum áfram að syngja, dansa og spila fótbolta. Kórinn minn mun ásamt fleirum syngja við opnun Hörpunnar (nýja tónlistarhússins sem mun kosta 8 milljónir á ári að þrífa að utan...) svo það eru ýmis spennandi verkefni framundan.
Bestu kveðjur í vorið og góða veðrið :)