Monday, February 28, 2011

Febrúar að renna sitt skeið.

Kominn mánudagur og helgin fljót að líða að venju. Aldrei þessu vant var eitthvað um að vera hjá okkur. Á fö.kvöldið var opnuð sýningin á verkunum, sem hópur Margrétar vann. (Remember Meinersen.) Hún bakaði eplaköku og þau fengu 120 evrur ca í kassann, sem þau léta standa við kökuborðið. Meira að segja Klaus kom með. Hann þekkti ekki marga, og fór fyrr heim og sótti okkur svo. En ég þekkti fullt af fólki, þar sem foreldrar og kennarar mættu vel. Doreen kom með okkur og hún og Margrét afgreiddu kökur og drykki. Og þvoðu upp. Enginn af svala liðinu mætti í eldhúsið í síkt, enda var liðið að fara á ball á eftir. Það var reglulega gaman að hitta fólk og geta spjallað smá.
Svo kom ég Klaus í bæinn og hann keypti sér buxur. Ótrúlegt en satt.
Við stoppuðum svo í matvælaverslun og versluðum fyrir helgina.
Margrét hjálpaði mér að bera út blöðin fyrir kirkjusöfnuðinn. Það var æðislegt veður á laugardaginn og við fórum á hjólum. Svo dimmdi í gær og rigndi af og til. Í morgun var þoka og hráslagalegt. Bara tveggja stiga hiti. Ekki næturfrost.
Við Margrét gengum frá bókapöntununum og settum teygjur utan um bækur og sumar pantanirnar í poka. Sumir panta allt að 15 bækur. Fór svo með bækurnar í löngu frímínútunum í skólann hérna. Og á morgun fer ég með hitt til Leiferde í 5. og 6.bekk. Svo er stjórnarfundur hjá mér annað kvöld. Fer að fækka þessum stundum og ég mun örugglega sakna þess að vera ekki að vinna fyrir skólann og hitta þessar konur.
En kannski þær séu til í að hitta mann áfram. Hver veit.
Fer svo á miðvikudagsmorguninn í Líkamsrækt. Fékk gefins miða í tvær vikur. Og þarf að byrja á að mæta í kynningu á tækjunum. Þarna er gufubað, sem ég hlakka til að nota líka.
Á eftir förum við Margrét til BS. Hún var verulega slæm í húðinni fyrir helgi. Ég pantaði tíma fyrir hana hjá Heilpraktíker í BS í apríl. Held að það sé sú sama og hefur verið með Danielu og hjálpaði henni mikið. Frétti af öðrum, sem eru mjög ánægðir með hana.
Svo fékk ég tilvísun á geðlækni eða sálfræðing og er að leita mér að einhverjum, sem er ekki bara með privat-sjúklinga. Og ekki er sú leit auðveld. Hér líka mikið af fólki, sem vantar aðstoð og jafn lítð af sérfræðingum. En--ég gefst ekki upp.
Klaus fékk smá hækkun á kaupinu. 100 evrur á mánuði og við pöntuðum straks loftljós til að setja yfir stofuborðið. Það er hægt að toga það niður og ýta upp. Mikill munur.
Í vikunni ætlar pabbi Kristínar Draheim, þessara, sem var skiftinemi heima eitt árið, að koma að líta á mygluna í sílikoninu í baðgluggunum og horninu í glugga Margrétar. Hann vinnur á heilsustöðinni í sambandi við slíkt.
Við erum nýlega orðin vinir á Facebook. Jæja, ég þarf að búa til skyrdrykk til að taka með handa Margréti. Tek hana straks eftir skóla klukkan eitt og við brunum til BS.
Hafið það sem allra best og njótið þess að vorið nálgast.

3 comments:

Anonymous said...

kíkti hér inn hjá þér á meðan ég sötra kaffið mitt :) alltaf gaman að lesa hvað þið eruð að brasa. Hér gengur allt vel, vinnan er mjög fín. Mikið nýtt sem þarf að læra og stundum kemur maður heim og er alveg búin á því ;) Gott eitt um það að segja! Er svo að fara á bókasafnið í kvöld, nokkrar konur ætla að stofna leshring saman og ég held það verði mjög skemmtilegt og fróðlegt. Sumsé, allt fínt hér fyrir sunnan. Vonandi hafið þið það sem best! Kv. Aldís Björns

Kristín E. said...

Mikið er ég ánægð með blogg-dugnaðinn hjá þér :o) ég þyrfti að taka þig til fyrirmyndar. Var heima í dag með lasna Margréti, endalaust kvef hjá henni og komin með sýkingu í eyrað en ekki slæma eyrnabólgu þar sem hún er með rör í eyrunum... sem er gott. Hún fékk samt sýklalyf og líka dropa í eyrun litla snúllan.
Höfðum það svakalega gott á Akureyri, hlökum til um páskana... hitti elsku Arnhildi í smá stund, alltaf brjálað að gera í þessum norðurferðum... náðum smá stund á Húsavík og í Aðaldal.
Bið að heilsa Margréti og Klaus

Anonymous said...

Hér er leiðinda rok en hlýtt.Er að taka mig til fyrir ferðalag á morgun með kirkjuk.í æfingabúðir.Við förum á Blönduós og það verður örugglega fjör að venju.Auðvitað verður líka æft stíft en ...Lilla er bara ótrúlega hress,auðvitað enn með verki.Fór í heimsókn á söngæfingu í dag og svo homu Garðshjón í heimsókn og ég líka.Kveðja til nöfnu og Klaus.