Fór til læknisins míns og fékk þær upplýsingar að ég sé með nokkurn veginn ok maga. Það sé að vísu eitthvað að-kann ekki að nefna það, og þess vegna þarf ég að taka magatöflur áfram og er með viðkvæman maga. En ég er aftur/eða ennþá með þessar heli--- bakteríur, sem ég man aldrei hvað heita. Þarf að fá fúggalyf og taka í viku og eftir 3 mánuði getur maður séð hvort þær séu farnar. En það ku vera mjög erfitt að ná þeim í burtu séu þær komnar í magann.
Hvernig maður fær þær, hvort þær séu smitandi--hvort dætur mínar séu þá etv. með þetta--veit það ekki, en kannski Þorgerður hjúkkan mikla geti frætt okkur eitthvað um þessar sérstöku bakteríur. Það væri nú gott,-takk frænka:) Eða Kristín?
En þetta hefði nú allt getað verið verra og maður bara sáttur við þetta.
Hér var minna frost í morgun og ekki neitt frost á rúðunum. Svo á víst að fara eitthvað hlýnandi.
Ekkert í sjónvarpinu að vanda. Var komin upp í fyrir 9 í gærkvöldi og það lýtur út fyrir að ég verði komin aftur í bælið með blað eða bók enn þá fyrr í kvöld:)
Vanalega hlakkar maður til að fá að sofa lengur á fö., en Margrét þarf í prófið í fyrramálið, sem hún komst ekki í þegar hún brenndi sig á litla puttanum. Það er nú gott að hún geti lokið því af og þurfi ekki að mæta á laugardegi eins og síðast þegar hún mætti í endurtekningapróf.
Vona að skíðakapparnir á Akureyri hafi það gott. Maddý líklega himinsæl með allar heimsóknirnar. Og vona að mamma og pabbi séu að ná sér eftir áfallið út af bílnum. Sendi ykkur öllum hlýjar hugsanir og hafið það gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Sæl frænka.Var að enda við að eta lummur sem ég útbjó fyrir fjölsk.Það var ekki fjallafært í dag,rok í Fjallinu svo það var bara grautur í Norró.Þau fóru reyndar líka niður í Hof að hlusta á afa Einar spila með bigbandinu en það er kynning á Tónó í dag.Margrét var voða glöð að sjá afa spila.það eru allir hressir og Lilla bara ótrúlega dugleg,þetta er ansi mikið betra en síðast.það er búið að vera alveg dásemd að hafa börnin en auðvitað tómlegt þegar þau fara öll.En þau koma aftur um páska.Allir biðja að heilsa heyrumst síðar.Magga móða.
Post a Comment