Gleðilega páska þið öll, þó að ekki sé mikið eftir af þeim. Mér skilst á pabba og mömmu að þið hafið það gott heima og fjölskyldan sé búin að borða vel og komast í fjallið og gera ýmislegt skemmtilegt. Líklega hafa allir fengið páskaegg í gær og kannski við fáum að sjá myndir við tækifæri.
Hér var ekki páskalegt í þessu fríi. Við erum búin að vera í málningarstörfum í 9 daga og þetta fer að verða ágætt. Ég ákvað að sitja núna sem fastast við tölvuna í dag og láta þau feðgin fara þriðju umferðina yfir forstofuna. Hún er illa skellótt þar sem við reyndum að ná lakklagi af veggfóðrinu, en það tókst ekki vel. Svo það eru skellur þar sem veggfóðrið sígur misvel í sig þennan himneska himberjableika lit, ekki smá sjálfslýsandi!!! Veitti ekki af að fá hressilegan lit í allt þetta ljósa, til að hressa mann við þegar heim er komið.
Við elduðum svínasteik í gær, og Margrét bakaði pönnukökur. Engin egg og engar gjafir, sem eru þýskur siður. En við mæðgur förum í bæinn á morgun, og þá fær heimasætan að velja sér eitthvað í páskagjöf. Ég þarf að láta mæla þessa hnúta á skjaldkirtlinum, svo hægt sé að sjá hvort þeir stækki eða hafi frið. Mér skilst á mömmu að Arnhildur sé með eitthvað skjaldkirtils vesen. Held að allir afkomendur pabba ættu að láta athuga með sinn, þar sem þetta virðist vera vel ættgengt. Og hafa áhrif á geðið og sitt hvað fleira.
Hér er sólin að koma fram eftir frekar leiðinlega síðustu daga. En samt hafa verið ágætir kaflar inn á milli. Fengum tvisvar þrumuveður í þessu fríi, og það er óvanalegt á vorin.
Úti sprettur allt á mettíma. Liggur við að maður sjái grasið vaxa og páskaklukkurnar koma upp.
Ramona og Susanne komu með mosatætivél, en við höfum ekki haft tíma í það enn. Kannski Klaus geti farið í það á morgun.
Við höfum sem sagt ekki gert mikið annað en mála og taka til. Þrifa skápa og raða inní þá aftur. Færa til húsgögn. Settum kommóðu, sem var undir stiganum upp á pallinni, og færðum hilluna sem stóð þar inn í vinnuherbergið. Svo nú þarf að færa til hillu, sem var skrúfuð á vegginn þar. Sem sé ýmsir snúningar. Settum svo kommóðu, sem var í vinnuherberginu niður. Hún lyktar illa af olíu, og það þó að við séum búin að eiga hana í nokkur ár. Svo hún var þrifin vel, og lökkuð af okkur Margréti með glæru möttu lakki. En við þurfum að fara aftur yfir hana, og lakkið búið. Negldum líka áklæðið á síðasta stólinn með áklæðisnöglum eftir að heftibyssurnar gáfu upp andann!
Fórum einu sinni í góðan göngutúr í Ahnsen, næsta þorpi. Margrét ók okkur á bláa þangað, og við fórum með Klaus í n.k. sumarhúsahverfi, sem hann hefur ekki séð. Hann er nú ekki jafn oft á hjóli og við. Maria vinkona Margrétar kom báða fimmtudagana til að horfa á Germanys topmodel. Margrét ók henni heim í seinna skiftið. Ég má helst ekki fara út í bakarí nema láta hana keyra mig, hehehe. Hún er hinn besti ökumaður og ég hef ekki áhyggjur af henni. Ætla samt ekki með henni á hraðbraut:)
Doreen búin að vera mikið hjá ömmu sinni, en kom þó í fyrradag og þær stöllur sátu úti í Strandkorb og spjölluðu saman. Doreen klárar skólann í júní. Etv. kemst hún til VW í nám. Eitthvað í sambandi við að bera fram og þjóna á veitingastað. Hún bíður spennt, og fái hún þetta flytur hún til Wolfsburg í íbúð rétt hjá ömmu sinni. Svo það er þá einni færra um vinkonur hjá Margréti. En Birthe kemur nú í sumar frá Mexico.
Hef verið að spá í þetta með að koma í útskrift Arnhildar. Ef ég væri ekki svona flughræld orðin eftir síðasta hristiflug væri það allt ekkert mál. Við ætlum nú að koma í lok júní. Ég verð bara sterk, hmhm. Vesen með að fá frí fyrir mig í lok maí og það sem eftir er af skólanum. Spurningin svo hvort Arnhildur fari í staðinn fyrir að ég komi snemma, í ferð á eigin spýtur og heimsæki vini sína í Danmark ?- skilji KD bara eftir og komi til okkar og við rúllum til Belgíu í Strumpalandið góða ??? Og hún fljúgi svo heim með okkur. Æ, hata að taka ákvarðanir.
En það þarf að fara að ganga frá miðum því þeir hækka eftir því sem minna er á tilboði.
Jæja, mér er víst óhætt að fara niður. Þau feðgin eru búin að mála. hehehe.
Ástarkveðjur og hafið það gott og njótið síðasta dagsins sem þið eigið frí. Sakna ykkar .---
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
mamma, varstu virkilega að stinga uppá því að ég fengi að fara ein til Danmerkur til að heimsækja vini mína ?? vváááá...það yrði bara draumur að rætast sko fyrir mig :)
við erum alveg til í að koma og heimsækja ykkur :)
mér finnst bara leitt að þú komist ekki á þetta MA reunion dæmi....en ég henti hringnum þínum ekki í hraunið á Fimmvörðuhálsi svo ég skal koma með hann til þín og gleðja þig :):)
ykkar Arinhilla...
Hæ og takk fyrir kveðjuna! Þið aldeilis dugleg og páskafríið verið vel nýtt. Allt gott hér, veðurguðirnir að reyna að ákveða hvort að það eigi að stilla á vorprógramm eða hafa bara kveikt á vetrardagskrá áfram!
En í gær var hún Affa frænka ykkar í viðtali á Rás 1. Hér er slóðin ef þú vilt hlusta, mjög skemmtilegt - mig langaði mest að flytja bara til Seattle þegar ég var búin að hlusta!
http://dagskra.ruv.is/ras1/4484758/2010/04/07/
Bestu kveðjur til ykkar allra, Svanhildur
síðbúin Gleðilega páska kveðja :o)
Post a Comment