Thursday, March 25, 2010

Páskafrí, þvílík dásemd.

Þá er fyrsta vikan liðin af þessu yndislega fríi. Ef hægt væri nú að stoppa tímann um stundarsakir. Það væri bara hið besta mál. Við erum á fullu og manni finnst ekki mikið klárast, en þetta smá hefst. Á laugardaginn get ég losnað við greinar og er því að klippa sem mest ég má. Get farið með þær á bálköstinn hjá slökkviliðinu. Maður gefur svo smá upphæð til styrktar þeim. Klaus hefur mikið að gera í vinnunni og er á morgun enn að vinna. En er svo kominn í frí. Svo það er lítið gagn að honum enn sem komið er. Eins og stundum áður, hmhm.:) Hrúgan er orðin stór af nýklipptum greinum og greinum frá í haust.
Svo er maður að þrífa og laga beðin, setja niður nokkur blóm og dúlla sér við hitt og þetta. Þvotturinn allur þveginn, en sú gleði stendur ekki lengi. Allt straujað-og sama athugasemd fylgir því :)

Margrét komin með bílpróf, og er afskaplega hamingjusöm. Ég náttúrlega líka. Hún fór í það á þriðjudaginn, og allt gekk ljómandi. Við kítum smá í bæinn, Gifhorn, og renndum svo heim. Svo var ekið-Margrét ók!-til Ikea í BS., og verslað þar. Margrét átti gjafabréf,og keypti sér kúlulampa og myndaramma. Ég gaf henni skrifborðsstól, sem var sannarlega kominn tími til. Hennar var allt, allt of lítill. Auðvitað rataði ein súkkulaðiterta í innkaupatöskuna og grafinn lax, saft, sósur og fleira. Við settumst inn á teríuna, en þá voru bara ekki til neinar spennandi kökur, sniff, sniff. En ég fékk mitt ókeypis kaffi þar sem ég er með Ikea family kort.

Í gær fórum við aftur til Gifhorn -hver haldiði að hafa ekið! Það þurfti að laga gleraugun hennar Margrétar. Keyptum hettupeysu og gallabuxur á KD, og svo fengum við okkur fyrsta ís sumarsins.
Í dag var unnið í garðinum og straujað, og skroppið í búð. Splæsti aftur ís á okkur. Það var 20 stiga hiti !!!!!Og svo fórum við í gegn um bókapantanirnar frá skólakrökkunum. Reikna út upphæðirnar, bera saman, telja peninginn. Og í því rákumst við á tvö umslög með skilríkjum! Sama dag og ég var í Leiferde í skólanum að ná í þessar pantanir, var verið að safna saman skilríkjum fyrir krakkana, sem voru að fara það kvöld í skíðaferð til Austurríkis. Og einhvern veginn hafa þessi tvö umslög lent ofan í stóra umslaginu mínu. Sennilega legið á borðinu hjá einkaritaranum. Hringdi í hvelli í mömmurnar, sem voru heldur fegnar að fá þetta. Komu straks að ná í þetta. Enginn skilur hvernig þetta gerðist. Og þar sem við Kerstin ætlum ekki að panta bækurnar fyrr en á sunnudaginn var ég ekkert að flýta mér að fara í gegn um þetta. Enda átti ég ekki von á slíku.

Við mæðgur stefnum á ferð til BS á morgun. Það er orðið langt síðan við höfum verið þar í næði. Næst er svo að fara í byggingavörumarkað og velja lit á holið og stigaganginn. Og fara að mála það sem fyrst. Stefnum á gráan lit eða sandlit, -kemur í ljós. Og kannski við drífum litlu forstofuna af í hvelli líka. Himberjarauður er óskin. Þyrfti að mála eldhúsið, vinnuherbergið----og ---og. En í bili er mikilvægt að koma trjánum frá, og fá mosatætivélina hjá Gregor. Þau fara í frí að Norðursjónum á fimmtudaginn eftir viku. Ramona kemur norður til að leita að íbúð. Hún fær vinnu í Hannover 1. maí. Það er æðislegt.
Vona að vorið koma fljótt til ykkar líka. Við eigum nú að fá rigningu á morgun og ekki er nú allt búið með næturfrost og slíkt. En þessi harði vetur er liðinn, eins gott.
Hafið það sem best. Vonast eftir mörgum kvitt, kvitt :)

6 comments:

Kristín E. said...

Vor í lofti hér í dag, þó ekki væru 20 stig :þ
Þurftum að skafa bílana í morgun en svo var 10 stiga hiti um miðjan daginn og sól og fíneri... enda var ég lengi úti í göngutúrum í dag. Svo stefni ég á Akureyri á laugardag með börnin mín, Siggi kemur ekki fyrr en á skírdag, fær enga aukafrídaga þessa páska frekar en aðra, alltaf nóg að gera í vinnunni hjá honum (sem er jú gott líka :þ)

Malla said...

Gott að Margrét er komin með bílpróf - þið getið þá kannski farið að leggja í fleiru en einu bílastæðahúsi, tihi. Ég er að pakka niður (gubb!!) og legg af stað til Akureyrar með krakkana um 3 leytið. Össi flýgur norður á miðvikudag og við förum þá í sveitina og verðum um páskana þar. Gleðilega páska.

Anonymous said...

hérna er yndisleg blaut snjókoma-get ekki beðið eftir að komast í fjallið á skíði :) það verður ættingja sprenging fyrir norðan um páskana og það verður æði!! hlakka svo til að hitta allt liðið, kveðja Arnhildur

Anonymous said...

Rólegheit - eða þannig. Stefnum austur á eftir, snemma til að losna við umferðina að eldgosinu. Förum svo í Fljótshlíðina seinnipartinn og fylgjumst með gosinu í ljósaskiptunum. Svo eru það 3 fermingar með 5 börnum á morgun, norðurferð okkar feðganna á eftir (komi eftir miðnætti) og Mývatnssveit á fundi á mánudag, Varmahlíð á þriðjudag, heimferð frá Akureyri á miðvikudag að Álftavatni og þá koma þessi rólegheit - vona ég.

Anonymous said...

Til hamingju með bílprófið elsku Margrét, gangi þér vel :o)

Gleðilega páska til ykkar, hafið það áfram gott í fríinu.

Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Gleðilega páska elsku systir, frænka og mágur.