Annar dagur í páskafríi. Var voða dugleg, bæði í dag og gær. Tók mig til og klippti allt Efeu-ið, sígrænu plöntuna, sem vex við húshornið framan við eldhúsgluggann. Það var mikið skemmt eftir frostið. En það sem verra var, var að allt var löðrandi í lúsasafa. Maður klíndist allur út. Svo ég barasta klippti allt niður og set svo hengipott á vegginn eða festi undir þakið.
Síðan komu Erika og maður hennar, Erika vinnur með mér í skólanum. Hann sagaði allt, sem eftir var af henni Herdísi, og þau tóku mest af viðnum með heim. Kanínurnar naga mjóu greinarnar og stóru stykkin verða þurkuð og notuð í arininn. Þessi hjón eru æðisleg. Ekki peningagráðug eða flott í tauinu, heldur hrein og bein og roslega hress. Kallarnir sáu um að fella og við konurnar að klippa og setja í vagninn.
Á meðan bakaði Margrét muffins. Tók til í eldhúsinu. Svo er hún búin að skrifa nokkrar blaðsíður í ritgerðinni. Hún er að skrifa um safn í London. Vantaði upplýsingar og skrifaði þeim og fékk straks svar. það væri "lovely" að hún væri að skrifa þetta, og endilega að hafa samband ef hana vanti upplýsingar. 15 blaðsíður eru slatti, og svo eru allar upptalningar á heimildum mikið verk.
Hann rigndi nú nokkrum sinnum á okkur, en ekki til skaða. Í gær var sól um tíma og betra veður en spáð var. Yndislega hlýtt, um 15 í gær. Og á fimmtudaginn voru 17 stig, og glampandi sól. Verst að ég var svo á fullu að koma húsinu í lag. Maria vinkona Margrétar kom og gisti. Og húsið var vel í skít og drullu svo ekki sé meira sagt. Þvottur og meiri þvottur eftir rigningatíð. Loks komst þetta út í góða veðrið.
Margrét var akkurat til fjögur í skólanum, ergilegt. En við erum happy að vera í fríi þó nó sé að gera. Tókum okkur hlé í Greys í gær, tvisvar tvo þætti. Æðislegt.
Frau Kühle kom í gær í heimsókn. Stansaði bara lengi og við gátum spjallað um margt. Margrét fór í næst síðasta ökutímann. Gekk vel, og hún ætti alveg að ná þessu ef ekkert óvænt kemur uppá.
Við enduðum gæsluna með vöfflubakstri. Christine, sem vinnur fyrir Ines, sem er veik, var með mér í þessu. Við stóðum sveittar við baksturinn ofan í ein 55 börn. Tók með mér síróp og súkkulaðirasp, og flórsykur. Svo fengu þau smá nammi. Voru vel sátt við þetta og án efa eru foreldrarnir líka hressir með sykurátið :):):)
Og hann Diddi fór sem sé í margfalt stuð og hjartað komið i takt. Þetta er nú meira. Spjallaði við hann á skype í gær, og það var voða notalegt.
Pabbi kominn heim og mamma flutt heim frá Lillu. Það var gott að hún gat verið þar á meðan pabbi var fyrir sunnan. En Affí situr enn uppi með Arnhildi. Er örugglega voða þreytt, eða þannig. Já, það er gott að eiga góða að.
Þá er bara að skella sér í bælið. Lesa um stund og sofa svo ánægð með sig eftir góð dagsverkin.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Jaja þá er bara setið og fylgst með fréttum af gosinu á Fimmvörðuhálsi. Ég er búin að halda því fram í um tvo mánuði að það verði gos beint upp af stórum fossi í fjallshrygg þar sem ekki er jökull. Er búin að segja öllum að þetta sé líklega Skógarfoss en fólk dregið það í efa vegna þess að þar er aðeins Fimmvörðuhálsinn sem ekki er undir jökli, en viti menn- gosið er á nokkurn veginn eina staðnum sem ekki er jökull, og upp af Skógarfossi !! Ég er norn....
Kv affí sys
Já já hér er gosið mál málanna...hjúkkit það fer þá aðeins minna fyrir umfjölluninni um allar manngerðu hamfarirnar á meðan.
Hafið það nú reglulega gott í páskafríinu, eruð nú aldeilis dugleg en munið nú að gera sem minnst líka!!
Affí! Þú kannski gaukar að okkur lottótölum svona við og við ef þú mátt vera að :o)
Bestu kveðjur, Svanhildur
Jaja þá er Margrét komin með bílpróf svo nú þarftu ekki að keyra hana um allt. Spurning hvort það létti af þér áhyggjum eða auki þær híhí. Arnhildur farin heim aftur, við höfðum það bara ágætt hér saman, lágum í leti og horfðum á marga þætti af Raymond, og öðru ámóta uppbyggjandi afslappandi sjónvarpsefni ! Páskafrí eftir morgundaginn, en fullt af heimavinnu, endalaus verkefni og ritgerðir að fara yfir, en allt hefst þetta vonandi að lokum. Alla vega ágætt veður þessa stundina, en aldrei að vita hvað verður á morgun :)
kv affí sys.
Post a Comment