Monday, March 8, 2010

Engin frammistaða.

Hef sjaldan verið jafn löt við að blogga. Er bara yfirhöfuð löt þessa dagana. Jafn gott að Malla og Affí komi ekki í heimsókn og sjái rykið í haugum á gólfinu og drulluna á gluggarúðunum :)
Veðrið hefur óneitanlega mikil áhrif á mann. Sólin hressir mann við og snjókoman dregur mann niður. Hélt ég fengi áfall í morgun við að sjá alhvíta jörð, í annað sinn á síðustu 3 dögum. Undir fölinni var rest af klaka frá því á laugardaginn,--þá var hér tíu cm nýfallinn snjór !, - og ég var svo stressuð að ég ók Margréti bara að útjaðri þorpsins og hún labbaði svo restina að skólanum. En svo bránaði allt og færðin var fín. Spáð miklu frosti í nótt, en svo á að hlýna smám saman.

Það eru óskup litlar fréttir af okkur að vanda. Þó fór Margrét til Mariu vinkonu sinnar á fö., og gisti þar. Við Klaus fórum i góðan göngutúr á sunnudaginn, í sól og kulda. Hressandi. Við tókum aftur törn í að bólstra stóla. En takkarinn--hehe--heftibyssan okkar er alveg ónýt og þessi frá Gregor gaf upp andann eftir hálfnað verk. Kannski ég geti fengið nagla með breiðum haus og klárað verkið þannig :) Eins gott að deyja ekki ráðalaus.
Ég fékk mér krókussa og hiasyntur (stafsetningin?) og setti í gluggann til að fá smá vor. Það er greinilegt að blómin standa ekki lengi inni í hitanum. En við höfðum mikla ánægju af þeim meðan þau stóðu. Og ilmurinn, ummmm.

Blái bíllinn fór á verkstæði og er aftur í besta lagi. 1000 evru viðgerð. En hann Klaus minn, sem getur allt , --en gerir ekki allt--, seldi forrit fyrir 1500 svo það dugði fyrir bílnum og nýjum gleraugun handa mér. Mín gömlu biluðu illa. Það hreinlega brotnaði önnur spöngin af. Ekki gott að sjá með ruggandi gler. Margrét er ekki búin að mynda mig. En mynd kemur pottþétt. Hún er á fullu að læra og vinna verkefni. Annars vorum við bara latar í dag og enduðum á að laga til í eldhúsinu því okkur leiddist svo mikið. Horfðum reyndar á einn þátt af Pushing Daisies, yndislegur þáttur.

Heyrði í mömmu í dag. Finnst nú frekar aumt hljóð í henni, en held að hún reyni að bera sig vel. Hún er orðin leið á þessu ástandi. sem ég skil vel. Vona bara að ekki verði aftur vesen með þennan gangráð. Já, og pabbi að fara suður á sunnudaginn. Það hlýtur að vera hægt að biðja Arnhildi og Aldísi og nágrannana að kíkja með jöfnu millibili til hennar svo hún geti verið heima í sínu umhverfi og rúmi. Já, maður er svo oft svo langt í burtu.
Hvað úr ferð minni í maí lok verður er enn á huldu. Það er búið að vera ótrúlegt ástand í skólanum í vetur. Slys á kennurum, uppskurðir og veikindi. Skólinn fær svona og svona marga tíma til að ráða fólk í afleysingar og þegar það er búið,- já, þá er það búið! Veit ekki hvernig fer í sumar ef veikindin halda áfram. Hvort bekkjum verði kennt úti undir berum himni og þá tveimur saman, hahaha. En það er ekkert mál að ég fari í eina til tvær vikur, en ég vildi helst geta komið og verið fram í lok júlí í einni bunu.
Það að ég borgi bara sjálf einni, sem vinnur sem forfallakennari, gengur ekki upp--því hún væri þá ekki TRYGGÐ! Kæmi eitthvað fyrir hana er tryggingin hennar ekki í gildi ef hún er að vinna í skólanum- án þess að vera ráðin til þess af skólastjórn. Það er gjörsamlega ótrúlegt hvernig kerfið hérna er. Heima er maður tryggður hvar sem er og hvenær sem er. En hér er það þessi tryggin hérna og hin þarna og svo framvegis. En málið er í athugun.

Margrét hefur ekki ekið mikið undanfarið. Konan var lasin, svo var Margrét lasin. Komst einu sinni á hraðbraut, en ekki lengi. Fer svo aftur á hraðbraut í næstu viku. Við vonum að hún fari nú að verða komin með nógu marga tíma til að geta tekið prófið.

Við byrjum í páskafríinu þann 19.3. og erum í næstum 3 vikur, eða alls 18 daga. Þá á að gera svo margt að sennilega kemst ekkert í verk :) Allavega búið að fá tíma hjá húðsjúkdómalækni fyrir Margréti, fá miða á píanótónleika í BS, - þangað fer líka píanókennari Margrétar, og við tökum Frau Kühle með. Við mæðgur þurfum í klippingu, ætlum í bæinn--loksins í ró og næði!!! Ætlum að mála holið og stigaganginn. En þar sem Klaus tekur sér bara frí í 10 daga og við ætlum líka í góðan bíltúr, vinna í garðinum, fara í bió, -- er eftir að sjá hvað kemst í verk. Allavega eru verkefnin næg.

Það er æðislegt að geta hjólað--nema núna um helgina--og ég þarf að hugsa um kisa á fimmtudaginn fram á sunnudag. Ætla fara þangað sem mest á hjóli. Kílóin eru nærri 80 og ég er þung á mér. Frau Kühle er komin í megrunarkúr með grænmetisáti og 3 sprautum á viku. Spennandi að sjá hvort það dugar. Hún er orðin ansi feit.
Það er bara svona að maður liggur í nammi og jukki þegar manni leiðist. Sem er ansi oft. Það er ekki gott að vera svona mikið einn. Nei, maður er vissulega manns gaman. Margréti líst ekki á að skilja mömmu gömlu eftir eina þegar hún fer að heiman, en ég sagði henni að þá færi ég í samtalsmeðferð og þetta yrði allt í besta lagi. Líklega best að láta setja sig á biðlistann. Þessi indæla kona, sem er vinsælust, er alltaf fullbókuð. En sem sagt--gott að hafa eitthvað að stefna að.

Á morgun er svo fundur í foreldrafélaginu. Ég fer til kvennsjúkdómalæknis til Gifhorn. Þarf að aka Margréti þar á milli í píanótíma til Ohof. Og svo er að vakna klukkan 6 í fyrramálið. Gera grindar-botns æfingar--já, ég læri (ekki grindarholsæfingar!) Og svo vantar bollur og brauð í frystinn. Bakstur, strauja, ryksuga, þrífa baðið, --fullt af spennandi verkefnum :)

Hafið það sem allra best og njótið tilverunnar. Á kvennadeginum og afmæli Einars, svo og Teits frænda. Áfram konur !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

5 comments:

Malla said...

Ég var akkurat að hugsa hvaða grindarholsæfingar þú værir að gera, hehe. Hafið það gott í snjónum, hér munar svo um snjóinn því hann gerir allt svo bjart og fallegt finnst mér :) En nú er hann farinn í bili og vorið á næsta leyti eins og hjá ykkur. Kv. Malla

Kristín E. said...

Takk fyrir að minna mig alltaf á grindarbotnsæfingarnar, er að gera nokkrar núna :þ
Mikið eigið þið gott páskafrí, Sigginn minn tekur bara þessa 5 daga sem í boði eru hér (hann var reyndar að hóta því að vinna þá en það er ekki í boði hehehe)
Vertu svo duglegri að blogga (segi ég hehehe)

Þorgerður said...

Allt við það sama hér, hlakka til páskafrísins fyrir norðan. Nóg að gera að vanda, Hildur Valdís að fara á árshátíð Kvennó á morgun, Helga á leið í Vatnaskóg með KFUK, Dagur Elís hress og kátur - fer í sund x2/viku með skólanum og aðaláhyggjuefni foreldranna er hvort allt dótið skili sér með honum heim á daginn :)
Bestu kveðjur og vona að Hilla sé að jafna sig!

Anonymous said...

Sæl systir. Hér er enn eitt vorkastið í veðrinu, hlýtt og rigning. Ekki spennandi en kannski birtir til og þá verður betra fyrir sálina. Opnir dagar í Kvennó svo það er ekki kennsla. Var að kenna bridge þar í morgun. Fer tvisvar í viku í blóðprufu til að hægt sé að stilla blóðþynningarmeðalaskammtinn. Heyrði í þeim gömlu, pabbi að skúra eldhúsgólfið og mér þótti þau hin hressustu. Fórum í bíó í gær og sáum Loftkastalann sem hrundi. Gaman. Fer kannski austur á morgun einn, síðan á Selfoss og Kirkjubæjarklaustur á laugardag á vegum Rammaáætlunar. Ég skal síðan gefa þér 10 milljónir systir ef ég vinn ofurpottinn í víkingalottóinu á eftir. Bestu kv. Diddi

Anonymous said...

Vona að þið Diddi séuð að fagna Víkingalottói...nú annars gerist það bara næst!

Gaman hjá ykkur að fá langt páskafrí, vildi að framkvæmdagleðin væri jafn mikil hér og hjá ykkur en okkur gengur afleitlega að strika út af listanum okkar margt sem á að koma í verk hér.

Vona að þið hafið það gott. Bestu kveðjur héðan úr Kópavoginum. Svanhildur