Við sendum litla frænda bestu kveðjur og líka stoltu foreldrunum. Hafið það gott í dag og njótið þess að eiga litla stráka. Þeir verða sko allt of fljótt stórir, sniff, sniff.
Vorið er í heimsókn hjá okkur, og við vonum að heimsóknin verði löng. Það var meira en átta stiga hiti í dag. Tók helling af snjónum þó að illa gangi að ná klakanum. Ég fór út í morgun og hjó og hellti sjóðandi vatni og bjó til rennu svo vatnið gæti runnið í burtu. Mokaði löng göng. Og Lukasi (5 ára) líkaði vel að labba eftir þeim. Spáin er hins vegar ekki spennandi. Aftur kuldi eftir helgi og ísregn og snjókoma. En ég vil ekki trúa þessu og held að hann hafi bara ruglast í veðurfréttunum.
Blái bílinn á verkstæði. Þeir gátu ekki fundið út hvað að væri. Fara aftur í það á mánudaginn. Akkurat þegar ég þori aftur að keyra:) Klaus fór á mínum í vinnuna í gær og dag. Hann kom snemma og tók Margréti með úr skólanum. Hér beið heita "eplakaka Stínu frænku" og te. Ég dreif mig svo í búðir, sem tók á annan klukkutíma. Fór með tómar flöskur og hitti líka konu, sem ég þurfti að spjalla við. Sem sé hið besta mál.
Stefnum á BS ferð á morgun. Og þá frekar í fyrra laginu.
Mikið er gott að mamma sé komin heim. Þetta var nú meira. Vonandi að hún sé eins hress og hún vill vera láta. Segist vel geta klætt sig ein, eða í næstum allt. Ég hefði nú viljað að það kæmi kona til hennar að aðstoða hana, en mér skilst að þau hafi ekki spurt um slíkt.
Gott að Arnhildur kom til þeirra og mokaði snjó af svölunum. Það er víst bara mikil hríð. Tja, veturinn að koma til ykkar þegar hann fer (vonandi) frá okkur.
Það var sól í tvo daga. Við vorum verulega hamingjusöm. Það var eins og að fá vítamínsprautu. Ekki nein sól í gær og lítið í dag, en hlýindin virka líka vel. Krokussarnir komnir með löng blöð undir snjónum og líklega verður sprenging þegar allt verður autt.
Það hefur verið hlé hjá Margréti í ökukennslunni. Konan var lasin. En hún hringdi í dag. Ekki neinir tímar á lausu í næstu viku, en 1.3. fer Margrét í 3ja tíma hraðbrautarferð! Og svo aftur í aðra slíka 3.3. Tja, maður verður víst að sætta sig við þetta, hehehe. Hún verður örugglega jafn góð og Arnhildur, ofurbílstjóri. Já, þær dætur mínar þurfa ekki að líkjast mér í öllu. :)
Bið ykkur öll vel að lifa og gerið eitthvað skynsamlegt um helgina:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Takk fyrir afmæliskveðjuna. Afmælisbarnið hélt bekkjarpartý í gær, mikið stuð og gaman!
Tíminn líður ansi hratt og árin fjúka fram hjá manni.
Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur
Gott að það hafi aðeins "vorað" hjá ykkur. Við erum súper sæl eftir góða ferð norður, sváfum fyrist 4 nætur í Mývó, svo eina á Ak svo tvær í Aðaldal og loks 2 á Ak. Mikið flakk sem sé en rosa gaman - 7 tímar í Hlíðarfjalli voru algjört ÆÐI!!! Mamma og pabbi pössuðu Álfhildi Ester og Kristján Örn- bara maraþon þegar þau fá að passa hehe.
blabla..bla bla blabla..datt bara ekkert sniðugt í hug sko....ástarkveðjur AH
Það snjóar hér út í eitt, komið álíka af snjó eins og um jólin svo nú er hreinsað af bílunum oft á dag. Mamma öll að hressast þó hún finni að sjálfsögðu eitthvað til í hendinni, og á svo að fara og láta laga gangráðinn eftir nokkra daga. Allnars allt ágætt bara, nóg að gera hjá öllum. Kv affí
Post a Comment