Wednesday, February 3, 2010

Kennsla féll niður vegna hálku.

Veturinn er upp á sitt besta. Hríðaði svo mikið í sumum héruðum að aldrei hefur mælst meiri snjór frá upphafi mælinga. Við nokkuð heppin með veðrið. Hér var reyndar rosalega hált i gærkvöldi og nótt. Allir skólar í Gifhorn héraðinu lokaðir í dag. Þriggja stiga hiti og vindur. Allar aðalgötur núna auðar og vonandi verða þær það áfram. En hvað nóttin hefur í för með sér veit nú enginn. Ég skóf snjó og mokaði í meira í klukktíma í morgun. Og bar sand á klakann, sem er undir öllu. Það verður fjör að sópa sandinum svo þegar þurrt er orðið :)
Það var yndislegt sólskin hér í langan tíma. Við Frau Kühle skruppum i heimsókn til Herra Albrecht, sem handleggsbrotnaði fyrir jólin. Hann komst ekki í kveðjuhófið hennar. Við notuðum góðu færðina og veðrið til að bregða okkar á bæi, og komum við í verslunum að kaupa í matinn.
Margrét heima að baka gersnúða. Lennert var að koma í latínu tímann.

Klaus komst án tafa til Oldenburg. Eckerhart og Frau Kühle sóttu bílinn, sem stendur úti á sínu stæði. Mikið er ég fegin því. Vonandi verður ekki frost og hálka svo ég þori að keyra Margréti klukkan 7 í skólann. En akkurat svona snemma á morgnana er oft frost og hált. Og svo þarf ég að koma bílnum á stöðina svo Klaus komist heim. Hann er væntanlegur um 6 annað kvöld. Kannski við verðum heppin og færðin verði aftur góð. Salt að verða búið í mörgum bæjum. Helmstedt fær t.d. ekki salt fyrr en eftir nokkra daga. Þar féll niður skóli straks á föstudaginn.
Okkur þótti voða notalegt að sleppa við skóla í dag. Lásum báðar í rúminu í morgun um stund og horfðum á einn þátt af Grey´s A. Nú er ég loks búin að ná Margréti. Hún er ekki búin að sjá næstu 7 þætti. Fjör :)

Hvað er Kristín Einars að þvælast í Reykjadal og á Húsavík--hélt að hún væri bara í því að kenna Arnhildi stærðfræði, hehehe. Gott að heyra að þið hafið það gott frænka sæl. Njóttu dvalarinnar sem mest má.

Fór í gærmorgun í skólann og tók til í eina tvo tíma. Þreif líka skápa og hillur. Nú er þetta svo tip top. Finn allt í hvelli. Svona þangað til ég kem öllu í órelgu næst :)

Við Margrét tókum svo efri hæðina í gegn í gær. Þrifum gólf, þurkuðum af, tókum baðið í gegn. Og svo ryksugaði ég neðri hæðina í dag.
Stutt vika-- gott mál. Bestu kveðjur úr vetrarríkinu.

4 comments:

Anonymous said...

alltaf jafn dugleg. 'otrúlegt hvað snjórinn ætlar að endast hjá ykkur. Er að fara í kennslu, heyrumst síðar. Kv affí

Þorgerður said...

Var búin að skrifa heillangt komment í gær, en það hefur ekki komið inn - taka tvö...
Dreymir um snjó og ætla að vona að ég komist á skíði á Akureyri eftir viku. Þá er vetrarfrí í skólunum í Kópavogi og ég ætla norður með yngri gríslingana tvo. Annars er allt við það sama, tíminn flýgur áfram, nóg að gera. Helga Margrét vann gull í sínum flokki á Íslandsmeistaramóti í samkvæmisdönsum um síðustu helgi í ballroom dönsum, Dagur Elís ánægður í fótboltanum og varð auðvitað að prófa handboltann líka eftir að hafa horft á EM, Hildur Valdís alsæl á bíl Sigga og Kristínar meðan þau eru fyrir norðan og sést lítið heima.
Gilli í vinnutörn í endurskoðuninni og ég búin að vera á bólakafi í svínaflensubólusetningum ásamt fleiru...
Leikhús í kvöld, við Gilli og Hildur + Tinna vinkona hennar að sjá Faust í Borgarleikhúsinu, hlakka mikið til!
Góða helgi öllsömul!!

Anonymous said...

Þið fáið aldeilis stóran skammt af vetri, vorið verður vonandi ekki allt of seint á ferðinni eftir allan þennan snjó og kulda.

Eftir hálfgerða vordaga hér með roki og rigningu er aftur orðið kalt og stillt veður, mjög notalegt.

Góða helgi til ykkar í Meinersen. Bestu kveðjur, Svanhildur og co

Anonymous said...

Sumir fá allan snjóinn. Ósanngjarnt. Hér kemur ekki föl þessa dagana og fátt sem gleður annað en fallegur himinn kvölds og morgna. Mikil vinnutörn um helgina, 28 tímar í Rammaáætlun og þeir ekki aldeilis auðveldir. Mjög erfitt og krefjandi mat þar sem verið er að reyna að bera saman virkjunarkosti - hvort er betra að virkja í Kverkfjöllum eða breyta vatnsrennsli í Gullfossi með virkjun? Auðvelt ekki satt? Svo ég var alveg búinn, dreif mig í bað eftir 11 klst. törn og hafði kerti, koníak og súkkulaði með mér. Svo var líka forval VG um helgina og mér líkuðu niðurstöðurnar stórilla, lenti sjálfur í 10 sæti á eftir 18 ára skólastelpu og 3 manneskjum sem hafa aldrei unnið neitt fyrir flokkinn. Skemmtileg þessi forvalsaðferð. Er enn að melta úrslitin.
Læt duga að sinni. Bk. Diddi bró