Mánudagur að kvöldi kominn. Aftur farið að snjóa. Ekki mikið enn sem komið er. En spáð snjókomu fram að sunnudeginum. Einhver smá von um eitthvað hlýrri daga eftir helgi, en ekki hægt að segja vel til um það. Svo við sitjum enn í hvítu fangelsi, og löbbum á klakanum. Það var æðislegt að hafa fallega snjóinn, sem Klaus tók myndirnar af og eru á undan þessum skrifum. En það hætti að vera gaman þegar klakinn tók við. Í fréttum var sagt frá mikilli aðsókn á slysavarðstofurnar. Ekki hægt að taka við fleiri sjúklingum á sumum sjúkrahúsum. Margt skrýtið, sem frostið hefur í för með sér. T.d. að ferjur komast ekki á milli árbakka. Skólabörn á vissu svæði þurfa að aka í tvo og hálfan klukkatíma þar sem þau komast ekki yfir ána.--Ekki er nú verið að sleppa þá bara að senda blessuð börnin í skólann og láta þau læra heima, -í dag á tímum internetsins ætti það nú að vera framkvæmilegt.--
Ég gat ekið Margréti í skólann í gær og sótt í dag. Slapp svo með vöffludeig til kellanna í stjórninni, sem seldu kaffi í skólanum í dag. Foreldrafundir, og aftur á morgun líka. Ég slepp við að mæta og er fegin því. Á leiðinn heim var farið að snjóa svo mikið að gatan varð hvít. Ók á 15 heim frá Netto og hef örugglega glatt þá, sem voru á eftir mér, hehehe.
Á morgun fer Margrét með Frau Kühle til Gifhorn. Hún ætlar að taka bóklega prófið í ökuskólanum. Ég er að vinna, og gæti hvort sem er ekki ekið eftir nýju snjókomuna. Svo átti hún að fara i ökutíma og aka til BS og vera í 3ja klukkustunda ferð. En kennarinn er veik. Ég var ekki leið yfir því! Hraðbraut er hræðilegt fyrirbæri eitt og sér, og hraðbraut og snjór og frost er skelfilegt. Svo maður bara vonar að ekki verði úr þessu fyrr en allt er orðið þurrt.
Já, veðrið tekur huga manns allan. Ykkur finnst sjálfsagt að ég sé allt of neikvæð út í hálkuna. En það er ekkert grín að vera með paniska hræðslu út í eitthvað. En þeir, sem ekki þekkja slíkt af eigin reynslu, skilja það ekki og segja bara að maður verði að herða sig upp og láta ekki svona. En það eina, sem hægt er að gera er að fara í meðferð. Og ég stefni á að fara í tíma til Kinesologiekalls þegar ég held að hægt sé að panta tíma og óttast ekki að verða stopp vegna hálku. -Við mæðgur þurfum báðar, Margrét út af innilokunarkend , sem hindrar hana í að kafa. Já, við gerum eitthvað í þessu sem fyrst.
Ekki kemur maður miklu í verk. En ætti að nota tímann og gera vorhreingerningu. Búin að klára smá af eldhúsinu, en bara brot. Svo erum við að spá í að mála loksins holið og eru miklar umræður um liti og framkvæmd.
Klaus fer sennilega til Berlinar í ágúst á enskunámskeið í tvær vikur. Það er tilhlökkunarefni. Kannski við Margrét getum skroppið með lest til hans og stoppað yfir helgi.
Ég veit ekki hvort hann hefur hugsað sér að fljúga til Íslands í sumar, eða vera hér einn.
Arnhildur útskrifast þann 22.5.-- 11 dögum eftir afmælið, -22 eins og afmæli mitt. Held að þetta séu góðar tölur! Á eftir að ath. hvernig verður með að fá frí. Og best að fara að gera eitthvað í því
. Hafið það öll sem best og verið ekki of pirruð á gamalli konu, sem er hrædd við eitthvað, sem ekki er áþreifanlegt. A.m.k. viðurkenni ég gallana mína. - ástarkveðjur þið öll.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hæ- er alveg jafn paranoid og sturluð af hræðslu í hálku og þú, eða réttara sagt, geri mér grein fyrir þeirri miklu hættu sem hálka hefur í för með sér: Sko- við erum ekkert bilaðar, bara ótrúlega skynsamar :) Hér er enn frost á Fróni, alltaf jafn hrímaðir bílar á morgnana, fer út og starta mínum vel áður en ég legg af stað, svo það sé auðvelt að skafa. Er hálf löt þessa dagana, erfitt að vakna á morgnana, en farið að birta upp úr 9 sem er æði. Verða komnir páskar áður en maður veit af. Baráttu bílprófskveðjur til Margrétar.
Kv affí
Gott að þú gerir þér grein fyrir því að þetta sé vandamál og ég styð þig í því að leita þér hjálpar. Það verður mikill munur fyrir ykkur Margréti þegar hún verður komin með bílpróf og getur brunað eftir hraðbrautum í hálku og snjó ;) Þú verður bara að passa að hræða hana ekki upp úr skónum!!!
vildi að snjór væri vandamálið mitt þessa dagana en ekki leiðinlega önnin sem ég er á. mikið verður gott þegar þetta er búið
nú snjóar smá hér... smá föl komin... vona að runnarnir mínir fari ekki illa út úr því að fá vor í jan/feb :S
Post a Comment