Wednesday, April 14, 2010

Ný og betri plön!

Halló elskurnar mínar. Undanfarið höfum við verið að velta fyrir okkur flugi og ferðum í sumar. Það voru komnar hugmyndir um að KD og A. kæmu. Svo langar Arnhildi til Köben, sem ég vil endilega styðja. Verðlaun fyrir góðan árangur og dugnað í vetur. Spáð í að hún færi þangað eftir dvöl hér, við hinar 3 svo til Íslands. En--það kom svo upp að við gleymdum alveg Klaus ræflinum. Hann langar svolítið með til Íslands, skrítið en satt:) Og þetta voru nú að verða ansi mörg flug og lestarferðir. Margrét fer jú líka 13.6. til Rom. Og þá datt mér nú bara í hug að gerast eigingjörn. Taka skólastjórann á orðinu og fá vikufrí, -ekki í lok maí og þurfa þá að fljúga tvisvar. Heldur fara tímanlega og komast á hátíðina með 35 ára stúdentunum. Fríið okkar byrjar 24.júní. Þá myndu Klaus og Margrét fljúga heim þann dag ef þau ná fluginu, sem er á tilboði frá Düsseldorf, á 99 evrur. Ég hins vegar 15. júní. Eða 14., eftir því hvað ég get fengið frí lengi. Er ekki 16. aðaldagurinn í þessum hófum Diddi?
Nú, hún Kristín Dögg fær þá ekki að koma í sumar, og verður sjálfsagt leið. En hún var hér í fyrra, og getur þá bara komið næsta ár. --Þetta er sem sé planið.

Blessað rykið í stofunni hvarf í gær. Það var búið að vera þar í einar 3 vikur, og gólfið ekki betra. En ég er nú ekki að berjast við smá ryk, heldur drasl og skít, það er á tæru ::)
Bakaði sykurbollur handa prinsessunni minni, sem var frá 7.30 til 16.15 í skólanum í gær. Og í leikfimi! Svo píanótíma. Rétt búin að baka gerhorn, með súkkulaði. Ekki slæmt að vera með nútella með súkkulaðinu, gerir hornin mjúk !!!
En ég er nú ekki að liggja í þessu, ó nei nei. Bara einn kaffibolli í gær og dag, salat í hádeginu, enginn sykur í teinu. Og ég fór í hressilega gönguferð í hálftíma í gærkvöldi.

Veðrið er hið besta. Heldur kalt á nóttunni og m.a.s. frostí fyrrinótt. Allir á fullu í garðvinnu og allt vex og grænkar. Maja við hliðina fékk mosatætivélina hans Gregors lánaða í dag. Þau eru að gera margt nýtt og spennandi hjá sér. Ætla að setja trépall framan við húsið, og við megum fá rauðu steinana. Þá get ég gert eitthvað af köntum og klárað mín beð.

Talaði við mömmu í gær. Hún hin hressasta ein í kotinu. Nóg að gera, og svo er það púslið, sem hún dundar sér við.
Þarf að fara að heyra í Didda og frétta betur um hans plön í sumar. Ég þarf bráðnauðsynlega að komast í aðgerð vegna augnlokanna. Fer að hætta að geta séð nokkuð með þessu framhaldi. Og hún mamma þarf líka að koma með mér. Veit einhver hvert á að fara og hvort panta þurfi með löngum fyrirvara???

Jæja, hef þetta ekki lengra. Er bara komið annað gos???
Læt ykkur vita um framgengni mála og við vonum að allt gangi upp í því sambandi. Margrét vonast eftir rauðum dregli og móttökunefnd þegar hún kemur til Íslands. Veit að Guðný væri góð í því! Margrét ætlar svo að fá tíma með Guðnýju, uppáhaldsfrænkunni sinni !
Þórdís-getur maður fengið upplýsingar um þennan skóla, sem Margrét er smá að spá í , í sambandi við ferðamál? Og kannski þú gætir sýnt henni hann, allavega að utan og farið með hana í vinnuna???. Best að smíða járnið meðan heitt er, og koma henni í nám til Reykjavíkur, híhí híhí.
Takk fyrir kommentin og hafið það gott.

6 comments:

Thordisa said...

upplýsingar um skólann hvað vill hún vita? þetta er gamli skólinn minn svo ég veit allt um hann var auðvitað allt í öll þegar ég var þar og hann hefur ekki breyst svo mikið myndi ég halda :-) hún getur kíkt til mín í vinnuna það er ég nokkuð viss um. Rauður dregill mun bíða eftir ykkur öllum. Er reyndar í skólanum til 21 júní en verð búin þegar Margrét kemur og byrja ekki fyrr en 28 aftur. Veit að Guðný mun vilja fara norður og hitta frænku sína í sumar og eins Ásta ef hún verður ekki að vinna en kannski verður hún bara að vinna fyrir norðan hver veit.

Anonymous said...

væri alveg til í að fara í vinnuna með þér. og svo væri ég bara ótrúlega happy að fá að vera hjá uppáhalds frænkunum mínum rosa lengi og ekki jafn stutt og ég hef vanalega verið!! ég vona að ég sjái þig og Guðnýju og Ásta við flugvöllin þegar ég kem :D :D
Margrét

Anonymous said...

Margrét-ætlaðirðu ekki örugglega í Hogwarts skólann??...mig hlakkaði svo mikið til að heimsækja þig þangað :)
þín Ahhhhh

Anonymous said...

já en það eru svooo margir að sækja um þar að ég verð að hafa eitthver backup-plön :) ég meina, auðvitað er það óskin mín að fara í Hogwarts, come on!! :Þ
Margrét

Anonymous said...

Er stefnan tekið á Oxford? Er búin að skoða matsal Harry Potters, og ég væri sko alveg til í að vera í skóla þarna. Af hverju í ansk...... tók maður ekki stefnuna í almennilegan háskóla meðan maður var ungur?? Af hverju eru flestir svona vitlausir á unglingsárunum ?

Anonymous said...

Jahérnaja. Þetta er bara eitt merkilegasta spjall sem ég hef séð frá þér systir. Í því leynast miklar og merkilegar upplýsingar. Te án sykurs - stórfréttir. Þú kýst að vera EIGINGJÖRN jafnvel þó það þýði að einhver fái ekki eitthvað sem þá langi í. Það er von, það er alvöru von um þig systir. Nei þetta er án gríns frábært og löngu tímabært. Jú 16 er aðaldagurinn, en 14 er bekkjarkvöld, 15 ferð um Eyjafjörð. Þú getur fræðst um plönin mín með því að koma á skæpið. Hvaða skóla er Margrét að spá í? Um nóg að tala. Verðum í sambandi.