Hvernig getur tíminn liðið svona hratt? Í gær átti Svanhildur afmæli og dagurinn var bara búinn áður en ég vissi af. Svo hérna koma síðbúnar kveðjur--innilega til hamingju með daginn í gær elsku mágkona. Gangi þér allt sem best og vona að þú verðir áfram svona dugleg í höndunum og dugleg að taka myndir.
Það er náttúrlega VOÐA mikið að gera eins og alltaf. Gekk frá kommóðunni í gær. Skrúfaði skúffurnar í og raðaði vettlingum, treflum og öðru í hana. Sorteraði bókainnkaupalistana, og merki fyrir hvað bekk hver stafli er. Svo fór ég klukkan 9 í morgun með þetta til Leiferde, í þá 8 bekki, sem þar eru. Og svo fer hitt núna hingað í Meinersen þegar ég skutla Margréti.
Klaus gisti í fyrrinótt á hóteli í mið/suður Þýskalandi. Sótti hann svo á lestarstöðina í gær fyrir kaffi. Og neyddi hann með mér í stuttan göngutúr meðan Margrét var að spila. Síðasti tímann hérna í bili, og næst þarf hún til Ohof til Jöndru.
Frau Kühle hringdi og sambýlismanni hennar líður betur. Þau koma líklega á laugardaginn. Þá þarf hann í geislameðferð til Celle. Sem er víst bölvaður óþverri því manni líður eins og maður sé með sólbruna í hálsinum. Hættið að reykja--eða viljiði fá bölvaðan krabba í munninn!!!!!
Hér skín sólin glatt. Spáð rosa hita á morgun og svo rigningu, þrumum, öllum pakkanum og kólnandi. Ég sótti allar Dalíurnar mínar til Krimmeike hjónanna, og þarf að koma þeim niður sem fyrst. Klippti allar Klematis-klifurjurtirnar mínar niður, sniff, sniff. Þær lifðu ekki af veturinn. En ætti að koma aftur. Og allar Hortensiurnar mínar líka þurrar og klipptar niður. Það vaxa straks nýjir angar, en verður bið á að þetta verði flottur runni eins og það var. Já, svona var veturinn.
Best að koma sér í skólann með dótið. Og svo í vinnuna. Hafið það sem best.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Takk fyrir kveðjuna. Hafið það gott. Þú setur inn myndir af dalíunum þegar þær verða komnar í stuð!
Bestu kveðjur, Svanhildur
Á ekki til orð yfir sendingu, datt ekki í hug að þetta væri til mín, var alsæl með afmælisgjöfina og fannst það nú meira en nóg. En sem sé- takk takk, nú er það bara mon cheri, kaffi og huggulegheit. Þúsund þakkir elsku systir. Við vorum að koma úr VMA, sýning á listnámsbrautunum, fullt af fallegum vefnaði og saumaskap, og sérstaklega flott efni sem Aldís er búin að lita og sauma úr. Montin af henni og aðal kennarinn hennar hrósaði henni mjög mikið. svo er allt á fullu í myndl.skólanum, er að setja upp vorsyninguna, jafnframt er fornámið í lokaverefninu sínu, er líka að undirbúa skólaferðina 5-8maí til Rvíkur, svo er sýningin 13-16. Lítið labbað þessa dagana, bara hlaupið :)
Kv affí
hæhæ hér er bloggsíðan hans Halldórs í Noregi kíktu á þetta
http://www.knive19.com/
Post a Comment