Barasta kominn föstudagur og helgin framundan. Tíminn flýgur og vorið mætt á staðinn. Ótrúlegt að það var snjór fyrir örstuttu. Allt að springa út. Stjörnumagnolíurunninn hennar Margrétar lifði af frostið, og fyrstu blómin sprungin út. Vonandi förum við í mosatætinguna í dag eða morgun. Gott þegar eitthvað er frá, og líka gott að losna við tækið úr pínulitla skúrnum :)
Vaknaði klukkan 5 og er skelfing þreytt. Svaf reyndar eitthvað eftir það, en klukkan hringdi svo klukkan 6.30. Það verður aldrei minn uppáhaldstími, hehe. Ók Margréti í skólann þar sem ég þarf hvort sem er að fara til kisu.
Já, hann Eckerhart, sambýlismaður Frau Kühle, var skorinn upp vegna krabba í góm og kjálka í fyrradag. Hann er í Oldenburg, sem hefur sérhæft sig í þess konar aðgerðum. Frau Kühle gistir i Bremen hjá Ute, dóttur sinni, og er bara um 35 mín að fara til hans. Hún kemur ekki heim fyrr en eftir næstu helgi. Ég sé um köttinn, tvisvar á dag, og blómin, nágrannakonan um póstinn. Sennilega kemur svo Kíki, sonur hennar, eftir þessa helgi og verður eitthvað í húsinu. Verst að það er sprungið á hjólinu mínu og ég þarf alltaf á bíl. Væri svo tilvalið að hjóla.
Aðgerðin gekk vel. Var mjög mikil. Þeir voru í eina 11 tíma með hann. Hann var svo settur í kóma, og vakinn í gær um miðjan dag. Já, það er ótrúlegt hvað til er.
Nú eru komnar nýjar upplýsingar um fitu. Hættuleg fita er bara sú, sem er um mittið og í maganum.--Séuð þið með breiðara mitti og maga en 88 cm eruð þið í hættuhópi hvað varðar hjartasjúkdóma. Svo ég er svo sannarlega í þeim hópi, með 94 í mitti, og 100 og eitthvað yfir magann. Svo eitthvað verður maður víst að gera, hmhm. Drakk bara einn kaffibolla í gær (kaffi merkir enn hjá mér 3 tsk af sykri), og fékk mér bara einn mola af Mon Chere, -er að spá í föstunarkúr með saft úr apótekinu, en best væri jú breyting á matarvenjum. En hvernig getur maður framkvæmt það? Maður er svo fastur í gömlum venjum. Og nógu erfitt að finna eitthvað, sem fókið mitt vill borða. Æ, sama vesenið alltaf og sama klessan hérna, sem sé þessi undirrituð :) Vildi vera hjá ykkur og fara í líkamsrækt og skokka, fara á skíði og í sund.-- En maður verður víst að sætta við sínar aðstæður og gera það besta úr þeim, ekki satt. Svo það er bara meira grænmeti, stafaganga, --ekkert vesen gamla lufsa!!!!! Komdu þér af stað.
Ég veit ekki hvernig þið reddið vinnu, börnum og heimili. Ég er alltaf með allt í óreglu. Íbúðin á hvolfi eftir málningardagana, ekkert til í frystinum og engir gluggar pússaðir :) (sem er náttúrlega aðalmálið, hehe)
En var að taka utan af rúmunum, og svo er að starta ryksugunni, sniff, sniff.
Og svo að lakka kommóðuna um helgina, færa til eina hillu ,sem er föst á veggnum í vinnuherberginu, berja bækur, klára að betrumbæta það síðasta í forstofunni, baka, skokka, ---- og og og.
Í gær var bara snatt. Típískur fram og til baka dagur. (Út í bakarí klukan 6.30, morgunmatur, æfingar, með bækurnar til Leiferde, heim í sturtu, taka bensin, versla í Aldi, hitta Kremmeike hjónin fyrir Frau Kühle (sonur þeirra er að vinna í garðinum hennar ), með bækur í skólann í Meinersen, í vinnuna, heim, corn flakes i matinn, telja peninginn fyrir bækurnar, vinna í garðinum, sækja Margréti, kartöflustautar í matinn, (klukkan 16.30 ), laga til, gefa kisu, --og svo kvöldmatur og sjónvarp.) Já, það er ekki jafn spennandi hjá mér og ykkur. Það vantar alveg--hitta vinkonur og svoleiðis. En sem áður segir--maður velur sér víst sína ævina.
Úti er sólarlaust, og smá kaldur vindur. Spáð kólnandi, en þetta er samt hið besta veður. Margrét til hálf þrjú í skólanum, og svo á hún tíma hjá húðsjúkdómalækni í Gifhorn klukkan 4. Það var tekið blóð hjá henni á miðvikudagsmorguninn, og við förum í viðtal eftir helgi. Ég líka eftir rannsóknina á skjaldkirtlinum. Annað ekki planað, og allt í rólegheitum að venju.
Vona að þið hafið það gott. Allir hressir og kátir, er það ekki ? Góða helgi og slappið vel af.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
Sæl systir. Gott að farið er að vora hjá þér eftir langan vetur. Hér er rok og rigning og sést ekki til gosstöðvanna, sem er það sem skemmtir manni mest þessa dagana. Hvernig við förum að því að gera allt og sjá um allt án þess að allt sér í rusli. Það er nú einfalt mál. Við gerum það einfaldlega ekki. Ekkert að marka hvernig lítur út þegar koma gestir. Svo slakaðu á og njóttu þess að hafa allt í rusli.
Bestu kv. Diddi
Talaðu við VÖ um matarræði, hann veit allt um það. Hann er búinn að léttast um 21 kíló. Hann borðar fyrst og fremst prótein, en forðast sykur. Ekki drekka neitt gos og ekki úða í sig brauði, og svo verður að hreyfa sig hressilega líka. T.d. hægt að borða mikið af kjöti, kjúkling og þess háttar, sleppa sósum sem eru feytar. Fáðu hann til að senda þér upplýsingar við tækifæri. Gugga helgi, Kristjana og Reynir öll hér núna á Akureyri, borðuðum öll hér saman í kvöld, elli grillaði í rokinu og 9 stiga hita sem er ´núna
Kv affí
Feitar sósur átti þetta að vera .
feitar sósur átti þetta að vera systir góð
Sammála Didda... það er mun betra að hafa smá drasl en að gera ekkert annað en að þrífa :þ svo bara ef von er á gestum þá er fínt að henda sér í 5 mínútna frágang :þ
Þú ert nú alveg met!! Ég held að allir séu löngu hættir að berja bækur, tihi. Ég held húsinu bara þokkalegu og er sátt við það, fer mikið út að labba og hjóla og nýt þess í botn :) Sund um helgar með alla familíuna, þægilegt að þvo alla í einu þar. Hafðu það gott frænka og hættu að horfa á þetta ryk og farðu bara út í vorið.
Hér er allt að fyllast af geitungum þó búið sé að vera frost....
kv affí
Post a Comment