Og tíminn flýgur. Arnhildur orðin 33 ára, Álfhildur eins árs í dag, og fleiri og fleiri eldast, ekki satt. :)
Við erum í löngu helgarfríi. Klaus líka með frí á morgun. Veðrið ekki skemmtilegt. Kalt og vindur af og til og liggur við úrkomu. Spáin ekki góð. Og þetta eftir að við héldum að vorið hefði sleppt komu sinni og sumarið væri mætt í staðinn. 24 stig í apríl eru nú meira en maður á að venjast og engin þörf á slíku. En maí má nú vera hlýrri.
Langt síðan ég hef pikkað fréttir. Sitt hvað að gerast. Við komin með flug, en ekki lestarferð enn. Svo er bara að vona að askan komi ekki í veg fyrir heimkomuna.
Diddi búinn að selja ofan af sér og er á götunni, nei í sumarbústaðnum, hehe. Margrét vil ólm fá að flytja með þeim. Við eigum eftir að púsla saman þessum vikum heima. Virðist ekki vera skárra með ferðir fram og til baka en fyrri daginn. En eftir að sjá hvað verður. Helst vill Margrét stansa fyrir sunnan þegar við komum. Og þar sem Arnhildur flýgur út til Danmark í langþráða ferð í lok júní er svo sem ágætt að vera fyrir sunnan. Fara í bústaðinn með Sigyn eða pakka, ?, og hitta ættingja og vini--ef þeir eru þá á svæðinu????
Svo flýgur Klaus út 16.7., og ég fylgi honum sjálfsagt norður. Hvort við getum kíkt á Nesið til Sigurðar í einhverri ferðinni er svo spurning. Okkur langar rosalega mikið að hitta frændurna kátu og sjá sveitadýrðina.
Margrét er að verða búin í prófunum. Hún ætlar svo að hætta í píanótímum eftir maí. Þær Jandra hafa víst nóg að gera við að læra undir hið dásamlega þýska stúdentspróf næsta vetur.
Hún ekur bíl eins og ekkert sé, og er miklu betri í því en mamma gamla.
Í kvöld er Maria hjá henni og þær eru að horfa á Heidi Klum og næstu fyrirsætur, já ekki mín deild!
Við vorum í hádegismat hjá Gregor. Hann átti afmæli í lok apríl, en þar sem þau hjón voru á fullu að flytja með Ramonu gafst ekki tími til að halda upp á það. Ramona fékk vinnu í Hannover og er hin ánægðasta. Hannover leynir á sér. Við ætlum að kanna borgina betur við tækifæri. Maður þekkir bara innbæinn.
Margrét ók báðar leiðir, en þegar við vorum hálfnuð heim varð henni skyndilega óglatt. Varð að stoppa og láta Klaus taka við. Hún er svo aftur hress og ekkert varð úr þessu.
Ég er nýbúin að fara með bókablöðin í skólana og ná svo í pantanirnar. Svo var fundur í stjórninni á mánudaginn hjá mér. Hressa liðið mætti allt. Við kláruðum 3 Prosecco, freyðivín, og mikið var hlegið. En þessar kellur plús einn kall eru góðar í víninu þó að þær séu ekki fullar. Verið var að skipuleggja sölu á ávaxtasalati og vöfflum, sem er á dagskrá á fö. fyrir hvítasunnu. Þá er hið árvissa Meinersen-kvöldmaraþon. Ég er svo búin að redda 4 konum að skera niður í salatið og við verðum við það hjá mér--þar sem ég bý svo nálægt staðnum, sem hlaupið er. En hef allra minnsta eldhúsið. Verðum að skera inni á stofuborðinu. Reddum því nú einhvern veginn.
Frekar erfitt í vinnunni. Mjög mikið stress vegna stráka í 2.bekk, sem eru að flippa út. Er með tvo af þeim hressustu. En maður fer í gegn um þetta og næsta ár verður betra. Það verða örugglega ekki aftur 56 í tveimur hópum. Ef svo verður segi ég stopp.
Hef skroppið af og til til Frau Kühle. Sambýlismaður hennar var skorinn upp við krabba og hann er að ná sér, en er mjög langt niðri. Hann þyrfti að fá geðlyf, en þar sem hann er jú karlmaður er það ekki auðvelt. Hann er ekki auðveldur í umgengni þessa dagana, og skiljanlegt eftir allt, sem á hefur gengið. En ekki gott að hann láti það bitna á henni.
Við höfum ekki klárað að setja niður sumarblómin. Keyptum nokkur í gær en bíðum eftir hlýrra veðri. Nennum ekki að vera úti í kulda við garðstörfin. Maður er jú svo góðu vanur hérna. Klaus bíða ýms verkefni, en það gengur hægt að venju. :) Kannski hann komi einhverju í verk á morgun, en þá stefnum við Margrét á BS bæjarferð. Loksins höfum við tíma til að fara. Margrét kemst svo sjaldan út af skóla, píanói og latínukennslunni.
Heyrist alltaf nóg um að vera hjá ykkur á Íslandi. Kórferðir á fullu, próf og lestur. Afmælisveislur, sauðburður, myndlistarsýningar, og svo daglega amstrið.
Bara rúmur mánuður í flugið mitt!!!!!!
Vona að Eyjafjallajökull hætti þessum öskusendingum og fara að koma með almennilegt hraun í staðinn.
Óska ykkur góðrar helgar og hafið það sem best.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Átti náttúrlega við að ég fylgdi Klaus suður þegar hann flýgur heim.
Ég skildi þetta alveg... segi svo oft að ég sé að fara norður þegar ég er að fara suður :þ
Ekki hafa áhyggjur af fluginu og öskunni, bara hugsa jákvætt um þetta og þá hlýtur það að verða allt á góðu nótunum :o)
Hlakka til að hitta ykkur öll
kv
Kristín E.
Það hlýtur að fara að draga úr gosinu, þ.e. öskufallinu. Kannski verður bara komið hið flottasta túristagos þegar þú kemur og þá verður ekki leiðinlegt að fara með ykkur þarna austur. Ég er að berjast við síðustu prófin, næ vonandi að klára í kvöld. Svo þarf víst að fara að taka til hendinni við að pakka og slíkt. FAF er í prófun, þýska á morgun og sjúkraprófið hans í íslensku á fimmtudag. Þá er hann búinn í þessu. ÖF er í prófum þessa viku og EHF byrjar í næstu viku. Svo er eitthvað að hlýna núna, kannski vorið sé komið - eða sumarið?
Halló krútta mín.
Ég taldi mig ekki hafa upplýsingar um bloggsíðuna þína, en mér til mikillar gleði var ég að finna þetta og ákvað að henda á þig nokkrum línum. Vonast til að sjá þig sem allra fyrst.
Knús Anna Þ.
Post a Comment