Wednesday, May 19, 2010

Líklega að koma aftur vorveður.

Miðvikudagskvöld og frekar kalt enn úti. En sólin sást í örstutta stund. Fer svo hlýnandi á morgun og ku verða orðið fínt um helgina. Eins gott að hann verði með gott veður á föstudaginn þegar hið mikla Meinersen Abendlauf, árlegt hlaupakvöld, fer fram. Allir þrír framhaldsskólarnir verða með köku og drykkjasölu. Ég á von á 4 konum til að skera niður í salat og ávaxtateina. Verð að taka myndir og fara að koma einhverju á netið.
Margrét fer í síðasta prófið á morgun. Það hefur allt gengið vel fram að þessu og gott að þessi vetur fer nú að enda. Þá er bara eftir einn og sá mest stressandi. En það reddast nú eins og allt hitt.

Er að reyna að koma húsinu í lag. Klaus festi loks upp hilluna í vinnuherberginu um helgina. Var að raða og færa til og þrífa þar. Og berja bækur--Malla mín :) Tók eldhúsgluggann í gegn og þessar leiðindagardínur, sem eru utan við gluggann. Og þreif gler í stofuhurðunum, spegla og sitt hvað annað.
Prófaði nýja uppskrift af skonsum, sem var ágæt. Nýja snúðauppskrift, sem var líka fín.

Klaus kom hjólinu mínu loks í lag. Er alveg ónýt án hjólsins míns. En hef ekki haft tíma í vikunni til að gera neitt af viti. Ætla að fara í hjóltúra til næstu bæja og þá fara nú kílóin, pottþétt. Þurfti að skreppa til Hillerse á sunnudaginn og taka eina með mér. Vorum að panta, aftur og enn, bækur fyrir skólanemendurna. Þar fóru einir tveir tímar. Svo ókum við mæðgur til BS á laugardaginn.
Leiðindaveður, en sluppum við regnið að mestu. Settumst niður á Starbucks eftir að við gátum ekki ekki lengur staðið uppi vegna þreytu í löppunum. En vorum voða sparsamar enda að spara fyrir Íslandsferðina. Það gengur hægt að saxa á listann fyrir ferðina en smá þó.
Við Margrét komum svo blómunum niður, sem voru búin að bíða um tíma. Nenntum ekki í það í kulda og regni. Alltaf jafn gaman að planta niður blómum.

Nóg að gera í vinnunni. Ines, sem sér um annan gæsluhópinn, er veik þessa vikuna. Var því ein með ein þrjátíu börn í fyrradag og fór því út með hópinn. Í dag var rigning og við urðum að vera inni. Þau voru 44! En gat sett þau í tvo hópa, í tvær stofur,-mína og þá, sem er á móti. Í annarri voru þau hljóðlátu að læra eða lesa, og í hinni voru þau, sem föndruðu. Og ég fékk aðstoð frá einni mömmu, sem átti frí í dag. Það var eins gott. Það eru bara allir að verða búnir með kvótann sinn, og ekki eftir nema fáir tímar fyrir forfallavinnu. Tja, og hvað gera menn þá. Samt fæ ég mína 5 tíma í frí, og sú, sem vinnur þá fyrir mig, er látin geyma þá sérstaklega fyrir mig. Hann Winkelmann, aðstoðarskólastjórinn veit nú að það er eins gott að hafa mig góða, hehehe.

Arnhildur náði ekki að taka stúdentsprófið núna. Veikindi að fara illa með hana. Lugnavesen og kvef. En hún fékk samt fína einkunnn í heimspeki, og munnlega viðurkenningu frá kennaranum fyrir að vera besti nemandinn í kúrsinum. Þetta getur hún! Margrét tekur hana svo í gegn í stærðfræðinni og íslenskan er ekkert mál. Hún fer létt með að klára fyrir (eða eftir ?) jólin. Í fjarnámi líklegast.

Og þau gömlu farin á flandur. Þórdís að sjá um hús og silfureignir, og vonandi ekki búin að selja það allt er pabbi kemur heim:) Svo heyrist mér að margir stefni norður um helgina og það verður nú fjör. Hlakka svo til að komast til ykkar!
Skelfilegt að Valdemar sé kominn til Tælands þar sem þeir eru að verða brjálaðir. Færi ekki þó mér væri borgað fyrir það. Aldís komin í vinnu austur hjá Höfn. Spennandi og vonandi líkar henni það vel. Affí og Elli búin að selja litlu íbúðina og Diddi sína stóru. Meiri lætin í þessu fólki. En svona er það þegar kreppa er ríkjandi. Og svo fellur evran akkurat þegar ég kem, svindl :) Það er að segja ef við komumst - er þessi öskuframleiðsla ekki að hætta? Þarf að fórna einhverju eins og í gamla daga, t.d. Davíð konungi :):):)

Jæja, best að fara í bælið. Klukkan hringir klukkan 6 í fyrramálið. Hafið það gott.

1 comment:

Kristín E. said...

Askan er hætt :D í bili allavegana en vonandi bara alveg.... þeir segjast vita það eftir 7-10 daga hvort eldgosið sé að taka hlé eða hætt... vonum það besta :D