Veturinn gerir ekki endasleppt við okkur. Í nótt voru um 15 stig, frost náttúrlega. Nú er farið að hlýna og von til að hann komist yfir frostmarkið á morgun. En í staðinn verður snjókoma næstu 6 daga samkvæmt spá. En hún kann nú að breytast oft og verulega. Mér er kalt og mig langar ekki í meiri vetur, brrrr. Reyndar hefur veðrið verið fínt undanfarið. Nokkuð stillt og kalt, og þurrir vegir.
Ég hef verið leygubílstjóri fyrir Margréti undanfarið af miklum móð. Alltaf að detta niður tímar og göt. Svo var píanókennslan í Ohof í gær.
Í gærmorgn var mér svo kalt þegar ég ók henni í skólann. Ein 13 stig og bíllinn jafn kaldur og gömlu óeinangruðu Landroverarnir. Þessir díselbílar eru nú meira tækin. Aldrei aftur díselbíll! Finnst ég vera að fá kvef og er eitthvað domm. En var rosa dugleg undanfarið. Kom miklu í verk og það var nú gott og blessað.
Klaus sótti ég svo í gærkvöldi á lestarstöðina. Hann var ánægður með ferðina til Oxford nema hvað hann gat ekki keypt nokkuð. Bæði kortin hans virkuðu bara ekki. Hann gat ekki einu sinni greitt hótelið. Svo háskólinn lagði það út. Það var fundað og svo boðið í fínan mat í boði háskólans. Þetta var um 12 manna grúppa, sem hittist þarna. Ekki spyrja hvað þeir gera :)
Við Margrét höfðum það notalegt á meðan hann var úti. Sjónvarpsgláp og spil, eplalummubakstur og hveitibrauðsbakstur. Hollusturéttur með brokkolí og blómkáli. Vantaði bara pabba :)
Arnhildur á leiðinn suður þegar þetta er skrifað, og ég vona að allt gangi vel. Búin að heyra í þeim gömlu og heyrist bara allt vera þokkalegt.
Á fö. fá krakkarnir einkunnir eftir fyrri skólaönnina og svo er löng helgi. Frí bæði á mánudaginn og þriðjudaginn, jibbí! Við Margrét stefnum á ferð til BS með tilheyrandi kaffi hjá Starbucks, svona til að halda upp á einkunnirnar hjá henni. En snjókomuspáin setur strik í reikninginn. Vorum að plana að fara bara með Klaus á mánudaginn klukkann korter yfir 8, og vera bara allan daginn í bænum:) Sjáum til hvað úr því verður.
Allt sem sé við það sama og ekkert sérstakt að frétta. Vona að þið hafið það gott. Bestu kveðjur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hér er búið að vera vorveður, en svo frysti í nótt og glæra yfir öllum götum í morgun með tilheyrandi skrapi og sköfun af bílum og bílrúðum. Elli skrapp suður á tölvuráðstefnu einhvers konar, fór í gærmorgun og var að koma aftur núna um kvöldmatarleytið. Annars allt þokkalegt, er orðin það góð í hnénu að ég er byrjuð að æfa aftur í líkamstæktinni, og var að flytja mig af Bjargi upp í íþóttahöllina hérna hjá sundlauginni en þar var verið að opna nýja líkasræktarstöð. Það er svo mikið stytra fyrir mig, spara bensín og tíma, en sakna samt þess að vera ekki á Bjargi, allir svo indælir þar,en þetta hlýtur að verða gott líka. Kveðjur til Margrétar og Klaus, þín sys affí :)
Búin að gera nákvæmlega ekki neitt skynsamlegt í nokkra daga, nenni engu hehe. Þarf að fara í skólann í dag og ljúka við smá vinnu sem ég hummaði fram af mér -hummm.. þarf svo að gera kennsluáætlun fyrir áfanga sem er að byrja á fimmtudag í málunardeildinni. Sem sé, ný törn að hefjast eftir frekar rólegan janúar. Er búin að vinna upp kennsluefni í tölvunni sem ég glataði í fyrra, margra daga vinna, texti og myndasjóv, hef held ég aldrei verið jafn pirruð, -en sem sé, búin að vera um 2 vikur að lesa listasöguefni, pikka inn í tölvuna og finna viðeigandi myndir á netinu. Er ekki mjög fljót á tölvuna heldur hehe. Mjög kalt úti, við Elli löbbuðum til m og p í gær, og ég var ekki nægilega vel klædd, ekki með nýju fínu húfuna mína eða neitt, alveg eins og api, og var að krókna. Ætlum í dag - ef við nennum- að taka bíltúr í Vaðlaheiði, og labba aðeins um þar. Verð að gera eitthvað ef ég á ekki að migla hér í norðrinu. Saknaðarkv, sys affí.- ( ertu búin að skoða áramótamyndir Svanhildar af strákunum, svo skemmtilegar).
Post a Comment