Þriðjudagur, og aftur skóli. Við vorum svo heppnar að skólum var aflýst í gær út af ófærð á vegum. Strætóar komust ekki greitt yfir og hann snjóaði allan daginn. Enn er frost þó að ekki séu nema ein 2 stig. Það er frábærlega fallegt, en ekki hægt að hjóla með góðu móti. Svo við erum í vanda með að ná í Margréti úr skólanum. Ég hef ekki snert minn bíl frá 18.des. Já, það eru kostir og gallar að búa úti í sveit. Meira en hálftíma labb í skólann, og þegar skóladagurinn er frá 7.30 til 16.15 eins og tvisvar í viku hjá M. er ekki furða þó krakkarnir séu þreytt og langi ekki mikið að labba heim. En stundum veður bara að hafa það þannig.
Við tókum niður skrautið að mestu um helgina. Eftir eru þó seríurnar og útiskrautið. Hef ekki nennt að pilla það af frosnum trjám og moka upp úr snjónum. Hef aldrei upplifað svona mikinn snjó hérna.
Það var sem sé heilmikil törn. Svo var eldað lasagne á sunnudagskvöldinu, og slappað af yfir krimma. Ekki verra að hann gerist og er tekinn upp á Gotlandi og leikur Sólveig dóttir Arnars leikara og Þórhindar í þessari seríu. Hún er með dásamlegan þýsk/íslenskan hreim. Vel harðan!
Í gær var svo verið að setja hreint á rúm, þurka af og þvo gólf. En við Margrét tókum okkur góðar pásur inn á milli og horfðum á Greys Anatomy (finn ekki kommuna til að setja eftir y ! )
Sólin er núna komin fram úr skýjunum og það er æðislegt um að litast. Klukkan að nálgast þrjú.
Ég átti að fara á fund í gærkvöldi í foreldrafélaginu, en honum var frestað vegna hálku. Svo fer ég að hitta nokkra kennara á eftir. Frau Kühle hættir að kenna í lok jánúar. Hún er með boð í skólanum. Við ætlum að sýna smá leikþátt til gamans. Kemst á æfinguna með píanókennara Margrétar, sem tekur Margrét líka. Þannan mánuðinn eru æfingar í Ohof, hjá Jöndru. ( 5 km?) Svo verður M. að bíða eftir pabba sínum, sem er í sjúkraþjálfun. Hún er búin klukkan 18, hann kemur klukkan 18.45. Passar aldrei neitt saman.
Mig langar svo að flytja í borg með strætó!!!!!!!
Í gær keypti ég kvennablaðið Brigitte. Það er ágætt blað, sem birtir oft athyglisverðar greinar. Það var tekin sú ákvörðun að hætta að nota fyrirsætur til að kynna nýjustu tískuna. Alls konar fólk myndað í staðinn. Í þessu blaði er Didda Jónsdóttir, listakona frá Íslandi, sem gerir víst texta. Þið kannist etv. við hana? Hún er í kvöldkjólum við Lónið, og talað um hversu vel þetta passi við þessa "morbide" náttúru.
Kannski Sigyn ætti að hafa samband við þýsk blöð og láta þau taka myndir af Mundatískunni. Það væri hægt að gera það undir yfirskriftinni " móðir ungs listamanns--" og svo framvegis. Sigyn væri nú fín á síðum heimsblaðanna.
Ég fór í morgun í skoðun hjá tannlækninum mínum. Allt í lagi. Ótrúlegt en satt. Kannski árið ætli að vera okkur betra en það síðasta. Mér nægir að fá tann-brú á margra ára fresti! Ekki gaman.
Jæja, best að gera eitthvað af því, sem bíður mín. Valið er erfitt. Á ég að strauja, hengja upp þvottinn, baka, þurka af, setja í uppþvottavélina eða þrífað baðið. ? Spennandi verkefni og gefandi, ekki satt!!!
Hafið það öll sem best og njótið hins nýja árs, sem verður pottþétt þrusu gott.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
já það er alltaf erfitt að ná Margréti úr skólanum því hún vill helst vera þar allan daginn...Not!!
Skólinn að komast í gang hjá mér og lítið heimanám enn sem komið er, en það á sko eftir að breytast...
Saknaðarkveðjur ykkar Arnhildur
endilega bakaðu, held það sé einna mest gefandi af þessum blessuðu verkefnum ;-)
Kveðja úr suðrinu, nýbökuð eplakaka í eldhúsinu, en þvotturinn óstraujaður í balanum ... Aldís B
Segi eins og Aldís - ég myndi baka og láta hitt bíða ;) Við Kristín skelltum okkur niðr'í bæ í dag, hittumst á Hlemmi. Við tókum strætó með vagnana þangað og löbbuðum svo Laugarveginn, kíktum í hádegismat á Vegamót og þetta var alveg æði ;) Á meðan biðu öll heimilisstöfin, en þau fara víst ekki langt........ kv. Malla
HæHæ... baka, ekki spurning. Ég t.d. strauja bara nánast ekkert nema perlið hjá börnunum mínum :þ
En varðandi kommuna sem þú finnur ekki, þetta er sama komman og yfir t.d. á nema að ef þú setur kommu á undan samhljóða þá kemur hún fyrir framan stafinn en ekki ofan á stafinn, skilurðu :þ Svolítið erfitt að útskýra þetta með orðum hehehe
kv
Kristín E.
Til hamingju með daginn Margrét!
Bestu kveðjur, Svanhildur og co.
Post a Comment