Thursday, January 7, 2010

Hverdagsleikinn tekinn við.

Úti eru um 5-6 stig frost. Hann er farinn að snjóa og spáin verulega slæm. Hvasst og mikil snjókoma. Salt að ganga til þurrðar. Hefur verið pantað frá útlöndum, en það sem er komið, er bara dropi í hafið. Enda þarf ekki lítið á allar þessar hraðbrautir og svo hina vegina.
Vinna og skóli tekinn við. Margrét lendir akkurat á versta deginum sem fyrsta skóladegi. Hún er frá 7.30 til 16.15. Klaus fór með hana í skólann og hún kemur með mömmu einnar, sem er í síðasta kúrsinum með henni. Það er nokkurn veginn vonlaust að fara á hjóli. Hálk á stéttunum og ekki gott að keyra á miðjum götum og vera í samkeppni við bílana um einu þurru blettina. Þetta er sem sagt alvöru vetur !

Við erum búin að hafa það rólegt og notalegt. Í gærkvöldi horfðum við mæðgur á síðustu tvo þættina með Veronica Mars, sem eru ansi góðir þættir. Þá eru eftir næstu tvær þáttaraðir, sem Margrét lét Danielu frænku sína kaupa í BS á tilboði. (12 evrur á þáttaröð í stað yfir 40 ) Við tókum okkur til og bökuðum loksins horn í gær. Vantaði bara Arnhildi, sem sá um það með systur sinni í sumar. Settum ostafyllingu og súkkulaði til skiftis. Þá er eitthvað til í frysti í skólanestið.
Við röltum svo til Netto að versla, og vorum með kaldar kinnar er heim kom.

Á þriðjudaginn ók Klaus með okkur til Gifhorn. Margrét þurfti að láta laga gleraugin sín, Klaus á pósthúsið. Svo var verslað í matinn í Real. Annars höfum við sama og ekkert farið.
Ég skrapp þó til mömmu Enno í fyrrakvöld á Tupperkvöld. Pantaði hvítlauskpressu, sem ég vona að sé eins góð og sagt er. Fámennt en hressar konur. Carolin, sem á Lukas og Leonie, á von á þriðja barninu í ágúst. Þess vegna ætla þau ekki aftur til útlanda þó að Marco gæti fengið starf í USA eða Rússlandi. Hann vinnur hjá VW verksmiðjunum og þegar þeir senda fólk út fær það miklu meira kaup. En peningar eru jú ekki allt í lífinu. Þau eru búin að vera í Mexico og nýkomin frá Spáni.

Frau Kühle kom í heimsókn og færði okkur járnstöng með glerkúlu til að stinga í blómabeð. Í þakklætisskyni fyrir kattarpössunina. Hún var ekkert að flýta sér. Gaman að sjá hana, og fá einhvern í heimsókn.
Við erum búin að fara í þó nokkrar gönguferðir. Ég fór líka tvisvar til bakarans á tveimur jafnfljótum, sem tekur um hálftíma. Gott að hreyfa sig. Það er afskaplega fallegt um að litast. En það er samt komið nóg af snjó og hann mætti alveg sleppa þessu, sem er að byrja að koma niður núna. Já, við erum aldrei ánægð með neitt, eða ? :)

Við ætlum ekki að taka niður skrautið fyrr en um helgina. Það er svoddan vinna við þetta allt. Mín bíður tiltekt og hreingerningar þar sem ég kom litlu í verk fyrir jólin. Það er alltaf nóg að stússast.

Ég fékk aftur hringingu frá Arne, þessum, sem hringdi þegar greinin um jólasveinana birtist í blaðinu. Hann er í íslenska hellakúbbnum, þekkir Leif Hallgrímsson vel, kannast við Didda, og líka Herdísi vinkonu, sem bjó hérna úti. Björn Hróarsson, formaður hellafélagsins, vantar einhvern til að þýða heimasíðuna um ferðaskrifstofu, sem hann rekur og eins um hellafélagið, yfir á þýsku. Arne spurði hvort ég væri til í það. Sem ég er náttúrlega, en veit ekki hvort Björn vill borga eitthvað fyrir það. Hann bauð nefnilega upp á ókeypis gistingu, mat og ferðir, sem mig vantar nú ekki. En það væri gaman að fá verkefni og kannski Björn hafi nú samband. Hver veit.

Ekki var mikið sofið í nótt. Ég hélt að ég myndi aldrei sofna. Og var svo vöknuð um fjögur og vakandi þar eftir. Vakti Margréti til að taka töfluna, og lá svo í bælinu fram til 6.20. Klaus dreif sig snemma á fætur og ég hreinsaði bílinn, og þau voru farin tímanlega af stað. Sennilega verið kaos við skólana þar sem krakkarnir komast ekki á hjóli. Í venjulega veðri er allt fullt af bílum , engin stæði og þvílíkt ástand. En þau litu á þetta svo ævintýri-eða svo sögðu þau. Gott að hafa jákvætt fólk í fjölskyldunni, ekki satt!

Á Gamlársdag komu flestir nágrannarnir út, og það var þó nokkuð af flugeldum,-svona á þýskan mælikvarða. Við elduðum beinlausa fugla, eða svo er það víst kallað heima. Nautarúllur með beikon, gúrkum, lauk og sinnepi. Rosalega gott. Svo bjuggum við Margrét til Panna Cotta búðing, en hann varð ekki stífur. Dugði vel sem n.k. sósa á hinn eftirréttinn, sem var súkkulaðimúss, án eggja. Fín uppskrift. Við neyddum Klaus til að spila við okkur. Margrét elskar að spila, en við gömlu erum ekki svo æst í það. Henni þótti það afar merkilegt að pabbi hennar hefði gert mikið af því að spila þegar hann bjó í Hannover. Og eins að frétta að hann hefði búið í kommúnu! Já, hann var nú einu sinni ungur, blessaður.

Jæja. Ég ætla að baka brauð og elda ofan í dótturina, sem verður án efa dauðþreytt eftir fyrsta daginn. Mikið er gott að það séu bara tveir dagar skóli og svo aftur helgi !!!!

3 comments:

Anonymous said...

Sæl systir. Gaman að sjá að lífið er að komast í gang á nýjan leik. Hér eru hlutirnir líka að færast í fastar skorður á nýjan leik. Ég er þó ekki almennilega kominn í gang. En það kemur. Jólatréð enn í stofunni, verður eins lengi og ég fæ að hafa það uppi. Steindi gisti hér 3 nætur, tók FAF í tvo langa ökukennslutúra og það gekk mjög vel. Hann hlustar nefnilega á fyrirmæli sagði Steindi. Flugeldasýning á þrettándanum á Ægissíðu, við fórum þangað. Sigyn með köku í búðinni í gær í tilefni af afmæli Gumma. Matarboð hjá Helgu Lár (af Einimel) á morgun og síðan líklega farið austur. Og svo eplaskífur hjá Birnu á sunnudag. Gott prógramm. Bestu kveðjur í bili og farðu nú að koma oftar á skæpið.
Diddi

Anonymous said...

Hér var jólunum pakkað niður í gær, og jólin þvegin burt. Fer um helgina til m og p að taka niður úr loftinu. Elli á leið í Bárðardal á þrettánda brennu bílaklúbbsins sem er alltaf haldin helgina eftir 6.jan, gistir í tvær nætur. Ég fer ekki með, bæði út af fætinum og hef annað að snúast. Hér er komin hláka svo nú þarf að fylgjast vel með öllum niðurföllum svo ekki flæði inn í hús og skúr. Annars allt ágætt, VÖ komst heill á húfi suður, og ADE bara ánægð í skólanum segir hún.Sendi þér bréf um helgina, svona til að segja frá jólagjöfum sem maður fékk og þess háttar skemmtilegheit:)
Þín sys, Affí

Kristín E. said...

kvitti kvitt :o)
aðeins að slaka á á netinu... er með Margréti í svefnþjálfun, hún þarf að læra að sofna án þess að hanga á spena :S Svona er að eiga bara eitt barn í einu, byrjuð að spilla henni strax og ekki orðin 4 mánaða hehehe