Monday, January 18, 2010

Hann rignir.

Allar götur þurrar í morgun. Hláka og tekur rosalega mikið. Svo kom rigning í kvöld, en þar sem við erum svo heppin að vera ofan við frostmarkið er engin hætta. Svo er að sjá hvað verður ef hann frystir upp úr miðri viku. Við tökum nú bara einn dag í einu og erum fegin þegar hann gengur upp.
Klaus flýgur á sunnudaginn til Oxford. Mig langar með!!! Kannski þessi frændi Ella þekki til hjá þessum, sem eru að fá Klaus í þetta mat. Verð að fá betri upplýsingar, og Affí svo að kanna hvar hann sé að læra, vinna ? Svo fer Klaus 3.2. eitthvert í burtu í tvo daga, og þá erum við Margrét í stuttu annarfríi. 2. og 3. feb. Dásamlegt!
Malla -þigg gjarnan uppskriftina. Æðislegt að heyra að Aldís B. fái heimsókn að heiman. Hljómar vel. Já, Kristín-ég myndi líka versla í Oxford, hahaha.
Margrét fór áðan að taka stutt próf í ökuskólanum. Hún náði því og getur nú tekið alvöru prófið, sem sé það bóklega, í Gifhorn. Það er bara hægt á miðvikudögum, og hún verður að fá frí í skólanum til að fara. Og ég þarf þá að aka henni. Já, við búum úti í sveit. það er víst alveg öruggt.
Jæja, einhver triller að byrja. Best að kíkja á hann. Svo var Rebekka Bakken í sjónvarpinu á rauða sófanum á NDR. Hún er æðisleg söngkona. Við skrifuðum nýja diskinn handa Þórdísi og sendum um jólin. Vill einhver annar fá hann líka?
Hafið það gott. Sakna ykkar.

2 comments:

Kristín E. said...

Flott hjá Margréti :o)

Anonymous said...

Dugleg Margrét, en ég er nú á báðum áttum með hvað þig langar mikið að losna við Klaus greyið...híhí AH