Jæja, þá er endanlega komið í ljós að ég er með graut í heilanum. Ekkert minni. Þannig var að Margrét fékk bankabók í sumar. Fannst þessi bók ekki þrátt fyrir mikla leit. Auðvitað var ég viss um að Klaus hefði sett þetta eitthvert og týnt milli pappíra. Bókin var i möppu, A4, og tók sitt pláss. Í nótt meðan ég var að berjast við að sofna eins og flest sunnudagskvöld fór ég að pæla betur í þessu. Og allt í einu kviknaði á perunni. Eftir að ég fór í bankann skrapp ég í Netto. Og vildi ekki láta möppuna blasa við í bílnum og stakk henni undir ábreiðuna, sem ég hef á aftursætunum. Þar er hún búin að liggja í hálft ár. Alsheimer eða ???
Af okkur hitt og þetta að frétta. Margrét lögst í pest. Komin með 39 stiga hita. Var lasin fyrir hlegi, en fékk ekki hita. Og Arnhildur var hundslöpp i dag. Verkir í hálsi, hósti. Svo ekki var nú mikið gang af þessum dætrum mínum í jólaundirbúningnum í dag, hehe. En þær voru á fullu um helgina og þetta tekur vonandi fljótt af.
Ferðin mín til Berlínar gekk vel og flugið hjá Arnhildi var fínt. Það er yndislegt að hafa hana hérna og vera ekki ein á morgnana. Margrét fór í skólann í morgun. Kom heim klukkan eitt og neyddist til að fara í leikfimi hálf þrjú eftir hádegishléð því hópurinn hennar var að sýna frumsaminn dansatriði. Það hefur sennilega farið endanlega með heilsuna.
Klaus þurfti til Frankfurt í morgun. Ég með á stöðina klukkan 6.15 til að geta fengið bílinn, þann eina með vetrardekkjum. Svo sótti Arnhildur hann áðan upp úr tíu. Mér leist ekki á snjókornin, sem voru farin að falla. Getur hann ekki verið með 9 stiga frost eins og í fyrrinótt, hrím og sól á daginn, ó nei. En við verðum að taka þessu mð léttri lund og gott að hafa bílstjóra, sem er alvanur í hálku.
Svo þurfti ég að bera út blöðin fyrir söfnuðinn í okkar götu. Kom því loks í verk í dag. Og á morgun fer ég með bækurnar, sem ég pantaði fyrir menntskælingana. Til allrar lukku fæ ég far með konunni, sem vinnur þar á bókasafninu. Hún ætlar svo að taka við af mér þegar ég hætti í stjórninni. Meðan ég var að ná í Arnhildi til Berlínar, gekk Margrét frá öllum bókapöntununum. Sorteraði og batt saman. Það var ekki lítil hjálp.
Það var fundur á mánudaginn hjá stjórninni og vöflusala á fimmtudaginn. Nóg að gera.
Við áttum indæla helgi saman. Systur drösluðu dótinu ofan af háaloftinu. Settu upp jólaþorpið, ljós í glugga og seríur í glugga hjá Margéti. Trjádrumbar með jólasveinaandlitum og fleira komið út. En ekki hægt að stinga nýju seríunum í mold-þar sem hún er pikkfrosin :) Klaus mátti ekki vera að neinu út af þessari ferð í dag. Vann látlaust við eitthvað í tölvunni. En gekk þó frá tölvuborðinu. Við settum það inn til okkar. Nú hefur Arnhildur meira pláss. Og getur sofið lengi um helgar og Klaus samt komist í sína heittelskuðu tölvu:)
Fórum til Gifhorn á laugardaginn að versla fyrir vinnuna mína. Föndurdót og fleira. Keyptum greni til að skreyta. Kíktum í bæinn og Arnhildur m.a.s. keypt sér nærföt. Gaman að sjá jólamarkaðinn, þó hann sé ekki stór. Komin stemming í tilveruna.Og svo í gær ók Arnhildur okkur til Müden á jólamarkaðinn. Alltaf gaman að koma þangað. Hitti nokkra, sem ég þekki. Arnhildur fékk Bratwurst og Margrét kleinubita í flórsykri. Svo var eldaður núðlubakstur og allir ánægðir með þessa fyrstu aðventuhelgi. Júlíuskönnurnar komnar í eldhúsið, kertin í aðventustjakann og dagatalskertið í annan stjaka. Þegar ég er laus við bókastaflana fer ég að baka.
Fegin að flugið hjá pabba og mömmu gekk vel suður. Mamma var bara góð með sig í dag og sagði að þær Guðný hefðu bakað tvær sortir af smákökum. Vona að Malla, Kristín og Þorgerður nái svo í þá gömlu til að hún fari nú ekki að ganga daglega fram af sér. En henni þykir þetta nú svo gaman.
Arnhildur kom með afmælisgjafir til mín. Kertastjaka, sem er með óróa. Og skemmtileg kort frá Hulduheimum. Og fyrsta kortið, sem ég tók í hendina, var um að hætta að burðast með fortíðina!!! Líklega hlægja einhverjir og segja--já, hættu því bara :) Svo fékk ég uppáhaldið-konfektflöskur. Þórdís sendi mér sturtu-skrúbb, með æðislegri lykt. Og fullt af nammi. Lilla sendi okkur súkkulaði og lakkrís, æði. Og í dag kom pakki frá mömmu og pabba með hinu og þessu góðgæti. Og eitthvað spennandi er í pakka frá Maddý, sem mátti opna straks. En við bíðum nú með það. Vonandi nammi!
Jæja, Klaus hrýtur við hliðina á mér, Margrét er sofnuð, Arnhildur að lesa sínu fyrstu Camilla Läckberg bók. Best að hætta að sinni og óska öllum gleðilegrar aðventu. Hafið það sem best.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Lífið hljómar afskaplega vel hjá ykkur í Þýskalandi, þrátt fyrir smá veikindi. Ég er alveg til í að hitta mömmu þína... næ því vonandi, kannski um helgina.... væri svo til í að vera ekki farin að vinna og geta hitt hana bara í dag hehehe
kv
Kristín E.
Gaman að lesa hvað þið eruð að bralla, njótið aðventunnar og þess að eiga þennan tíma saman.
Bestu kveðjur héðan að sunnan, Aldís B.
Post a Comment