Langt hlé enda fátt um komment síðast, og ég tek þessu því með ró. Hér er skollið á vor númer tvö. Það var um 15 stig um helgina. Reyndar rigndi á laugardaginn og kom í veg fyrir að við Klaus gætum unnið í garðinum. Svo var rok, en við sluppum vel. Við notuðum þá bara sunnudaginn í garðvinnuna þó að slíkt sé ekki vinsælt hér í landi. Klaus klippti niður runna, og að vanda ef hann fer í slíkt, niður í tætlur :) Svo bundum við þetta saman. Á morgun þarf að setja knippin út á stétt svo kallarnir taki þau. Ég rakaði lauf, sem er mesta púl. Klippti svo rósasrunna niður. Hann vex um 2 metra á ári og er að gera mig vitlausa. Ætla að gefa einni í skólanum hann. Setja í staðinn Clematis, sem ber falleg blóm og er ekki eins "óð".
Prófaði nýja uppskrift. Svínalund-(eða segir maður það í fleirtölu ?), steikt á pönnu, vel snarpur hiti, sett í fat, púrra og sveppir á pönnuna og mallað vel, rjómi yfir og gumsið á kjötið og geymt í ísskáp í 12 tíma. Svo bara að steikja þetta í 40 mín og tilbúinn var hinn besti réttur.
Margrét vann í verkefninu sínu. Hún er búin að líma myndir og hluti, sem passa við þær. Doreen kom að hjálpa henni þar sem Doreen er lagin við svona dútl og eins átti hún almennilegt lím. Við þrjár fórum á kertakvöld til konunnar, sem flutti í hús Söndru, á fö.kvöldið. Kertin eru vissulega mjög dýr, en þarna eru æðislegar tegundir af kertailmi. Keyptum 3 pakka með tekertum. Það var gaman að htta fólk og spjalla smá.
Á laugardaginn hringdi Frau Kühle í mig eftir hádegið og bað mig að aka til Gifhorn að ná í meiri málningu. Hún er að mála og taka í gegn 3 herbergi. Vinkona hennar var hjá henni og þær voru á fullu og máttu ekki vera að því að fara. Svo auðvitað fór ég. Þó að mér sé verulega illa við að aka í rigningu. En allt gekk vel. Hef ætlað mér að hjálpa henni, en ég bara kemst ekki yfir það, sem ég þarf að gera sjálf, og hef því ekki málað neitt með henni.
Hef verið að taka skápa í gegn, bæði áður en Arnhildur kemur og líka að setja sumarfatnaðinn upp í skáp og taka vetrarfatnaðinn fram. Er að telja í mig kjark að byrja á geymslunni uppi!
Í gær var aðalfundur hjá foreldrafélaginu. Þjóðverjar eru ótrúlegir. Það mætti enginn að venju nema stjórnin, aðstoðarskólastjórinn og einn pabbi. Það þarf að lesa upp allar skýrslur og reikningsyfirlit þó að enginn hafi áhuga á þvi. Telja upp hver var kosinn í fyrra, hversu mörg atkvæði, hversu margir sátu hjá og svo framvegis. Held að Íslendingar hefðu stytt þessa athöfn! Við skruppum svo á veitingastað á eftir, 6 saman. Fékk mér salat. Var ekki búin að borða neitt því ég fór fyrir klukkan 6 til læknis, sem lætur mann bíða lengi, en hefur líka tíma fyrir hvern sjúkling. Ég fékk svo skrítin slög í magann að mér leist ekki alveg á það. En ekkert virðist vera að. Þetta er bara púls í æðum, sem etv. slá meira ef þrengist að þeim. Eftir uppskurðina er þarmavesenið ekki á sama stað og áður og hefur ekki eins mikið pláss. Var fært til. Og líklega þess vegna er stundum tregða í þeim. Við skulum vona það:) Það er ekki gott að vera mikið einn og grufla út í svona hluti. Já, það er eins gott að Arnhildur fari að koma.
Föstudaginn fyrir fyrsta í aðventu flýgur hún með I.Express. Ekki okkar uppáhaldsflugfélag, en það hækkaði stöðugt verðið á Frankfurt. Við vorum komin með flug þangað. En þá fóru þeir að fetta fingur út í að ekki væri sama nafnið á miðanum og vísakortinu. Vildu fá ljósrít af kortinu, og þetta var akkurat meðan Klaus var Ítalíu. Þeir kipptu þá bara pöntuninni út, og eyddu henni! Eiginlega frekja eða hvað? Við fengum ekki marga daga til að bregðast við þessari beiðni. En nú flýgur hún til Berlinar, sem er miklu betri völlur og við verðum þá að ná í hana á bíl þar sem það ganga ekki lestar til okkar seint á kvöldin. Svona er að búa út í sveit.
Ekki laus við heimþrá við fregnir af snjó og mokstri heima. Vona bara að þetta haldist og ekki fari allt í klaka og hálku. En vissulega er hætta á því. Hér má alveg sleppa snjónum og hálkunni::)
Nú, við mæðgur þurfum í dag til BS. Aftur tími hjá húðsjúkdómalækninum. Vonandi fær Margrét góð krem. Hún er miklu betri núna eftir að hún hætti að nota þetta bólukrem.
Við lítum öruggega í bæinn og eitthvað er eftir áður en pakkarnir fara af stað.
Svanhildur mín-- í hvaða stærð eru guttarnir á löppunum? Svo þægilegt að setja sokka í pakka :) Já, og eruð þið Sigurður hrifin af MonCheré, eða helst Duplo, --hvað með þetta Kinderschokolade?????
Diddi-hvað óskir eru með nammi til ykkar?????
Jæja, best að gera eitthvað í þessu kaosheimili! Eins gott að fá Arnhildi til að taka það í gegn!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hæ hæ! Var alltaf á leiðinni að fara að setja inn komment við hina færsluna...gúlp! Það hefði verið spennandi að heyra umræðurnar um muninn á skólunum hér og hjá ykkur. Mér hefur þótt athyglisvert að bera svolítið saman kerfið hér og svo hjá ykkur sem ég þekki í Þýs. Það var í það minnsta mjög vel upplýst og klár ung kona sem sat hér og spjallaði síðasta sumar...en ekki það að hún myndi standa sig vel hvar sem hún væri hún Margrét enda ekki allt kennt í skólunum einum! Og núna verður frábært hjá ykkur að fá hina frábæru stelpuna þína til ykkar, ef þú lest Arnhildur væri gaman að heyra hvort þú stoppir eitthvað í bænum-væri gaman ef þú gætir jafnvel litið til okkar á leiðinni út.
Og því miður sýnist mér mæting á foreldrafélagsfundi ekki mikið skárri hér...en kannski er þetta eitthvað að breytast örlítið þar sem fleiri eru að verða meðvitaðri um hlutverk sitt sem skólaforeldrar.
Ég held að það sé ekki til súkkulaði sem rennur ekki ljúflega hér niður en Duplo kemur einna sterkast inn myndi ég halda!! Já og sístækkandi herrarnir eru komnir í stærð c.a. 26 og 36.
Hafið það öll gott! Svanhildur
kvitti kvitt.... er að stelast aðeins á netið í vinnunni, byrjaði að vinna í síðustu viku og er endalaust þreytt, það tekur tíma að venjast breytingunni og svo er Margrét búin að sofa illa, kvefuð og endalaus stífla í nefinu á næturnar :s En hún svaf betur í nótt og ég náði 9 tíma svefni, var loksins skynsöm að fara snemma að sofa í gær :o)
Væri algjörlega til í að hitta Arnhildi allra-bestu-frænku á leið hennar til Þjóðverjalandsins.... ef hægt er elskulegust :D
kv
Kristín E.
Kvittikvitt!
Allir hressir, styttist í Parísarferðina og undirbúningur varðandi kjóla ofl. í hámarki :)
Takk kærlega fyrir upplýsingarnar fyrir Helgu, hún er búin að "ferðast" til Bretlands, vinnur verkefnið með 3-4 og svo fá þau einkunn fyrir frammistöðuna. Þau fá ákveðinn pening svo fínt var að fá fría gistingu hjá þér :)
Svo er aldrei að vita nema við látum sjá okkur í alvöru heimsókn hjá þér.
Tangókvöld um helgina, ráðstefna, frábærir tónleikar ofl. Tíminn æðir áfram... Keyptum nýja stærri jólaseríu utan á húsið um helgina, hlakka til að setja hana upp um næstu helgi.
Hafið það gott!!
Post a Comment