Það er alls ekki svo kalt úti. Voru ein 14 stig. En það er hvass vindur og af og til hressileg rigning. Held að ég verði að fá mér regnstakk, sem er betri í þessu veðri en minn gamli. Já, líklega að koma vetur.
Þrátt fyrir veðurútlitið skrapp ég í gær til Hannover með lest til að hitta Aldísi Björns. Þau voru hjá foreldrum Christoff með börnin, sem eru í vetrarfríi. Það gekk ekki átakalaust að komast á leiðarenda. Við tökum alltaf lestina í þorpi hér nálægt. Um 20 mín akstur. Þá erum við komin inn á Hannoversvæðið og fáum ódýra lestarmiða. Ég ók sem leið lá í áttina að þessu þorpi. En þegar ég er komin meira en hálfa leið er vegurinn lokaður. Og ég þekki ekki neitt til á þessu svæði. Ekkert, sem benti til þess að lokað væri, engar upplýsingar um aðra leið, og ekkert að gera annað en að snúa við. Stóð svo bölvandi í mígandi rigningunni og barðist við að fá miða úr sjálfsalanum, sem gekk í þriðju atrennu. Fjör hjá mér :) Miðinn kostaði rúmlega 11 evrum meira og mér finnst það bara ergilegt. En meðan ekkert verra kemur fyrir er það víst smámunir, ekki satt.
Aldís beið á lestarstöðinni. Fór með mig á huggulegt kaffihús, sem þær Ingibjörg fóru oft á í den tid. Ég þarf endilega að læra á Hannover því ég rata ekkert nema í innbænum, og m.a.s. bara örfáar götur. Þarna eru margir skemmtilegir staðir.
Við sátum góða stund á kaffihúsinu og höfðum það notalegt. Vildi svo óska að þau byggju nær okkur.
Hafði svo smá tíma til að skreppa í búð. Er heim kom var Margrét búin að hengja upp þvottinn, og kveikja á kertum í graskerunum á tröppunum. Gott að eiga stóra stelpu.
Á mánudaginn fórum við til BS. Þessi húðsjúkdómalæknir sagði að Margrét ætti ekki við bóluvandamál að stríða, heldur liti þetta út sem exsem. Það var tekið blóð og við þurfum að fara aftur í næstu viku. Hún fékk nýtt krem og vonandi fer þetta nú að lagast.
Við gátum klárað slatta af því, sem við ætluðum að gera. Og nú þarf að fara að koma einhverju af stað til Íslands. Vantar hugmyndir um gjafir handa KD. Æ, unglingar og þeirra smekkur :)
Niklas, sem kemur í lestur og stafsetningu til mín er búinn að koma þrisvar. 30 evrur þar, sko mína! Góður leðurjakki kostar um 200 til 300 svo það er nokkuð langt í land enn, hehe. Var með Vanessa í tvo tíma í morgun að æfa það sama. En í sjálfboðavinnu. Komst að því að Aldís gerir þetta líka. Hvað væru þjóðverjar án okkar útlendinganna, sem vinnum kauplaust við að koma börnunum áfram:)
Margrét var í skólanum til 16.15. Sótti hana eftir að ég var búin að versla í matinn. Klaus var kominn heim þegar við komum hingað. Svo það var drifið upp te, og Hattingvínarbrauð (danskt) sett í ofninn. Það voru víst einir 11 pakkar, sem ég keypti í allt þegar þetta kom í Rewe. 9 bitar í hverjum :) Vona svo bara að þetta hafi ekki verið í eina skiftið, sem þeir selja slíkar dásemdir:) Við áttum fjörugar umræður um stúdentspróf og mismun á námi heima og hérna. Eitt er víst að hér dugar ekki að læra utanað til að ná stúdentsprófinu. Aðalatriðið er að rökstyðja og koma máli sínu fram. það er ótrúlegt til hvers er ætlast af þetta ungum krökkum.
Jæja. Kannski við Margrét förum til Ikea á morgun. Fækkar föstudögum, sem við getum skroppið. Búið að færa leikfimi á fö. Margrét kom heim klukkan eitt á fö. Núna þarf hún að fara aftur klukkan 14.30 og vera til 16.15. ÖMURLEGT. Eða sennilega verður þetta svona.
Nú. Svo þarf ég á námskeið í hjálp í viðlögum, og verð frá 8.30 til 15.30 á laugardaginn. Spennandi, eða þannig. Og svo fer Klaus á sunnudaginn til Ítalíu.
Erum að ath. um flug fyrir Arnhildi, en ekki búin að kaupa miða enn. Vonumst eftir tilboði, sem verður nú kannski ekkert á næstunni. En þá verður það bara að hafa það.
Vona að gubbupestir fari að leggjast af á Íslandi. Það er ótrúlegt hvað þetta grasserar heima.
Hafið það gott. Saknaðarkveðjur.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
kaffibollakveðjur héðan að sunnan! Keyrðum heim í gær og þegar við komum á leiðarenda mætti okkur glampandi sól og fínasta veður! Þannig var það víst hér alla vikuna, á meðan við sátum uppi með rigningu og rok norðurfrá ;) En við erum nú ekki íslendingar fyrir ekki neitt, látum ekki veðrið á okkur fá.
Bestu kveðjur og þakkir fyrir notalega stund á miðvikudaginn, Aldís Björns
HæHæ.... er eitthvað voðalega lítið á netinu þessa síðustu dag amína í fæðingarorlofi, var bara búin að missa af tveimur bloggum :o) Þú ert svo dugleg að blogga elsku frænka :D
Post a Comment