Tíminn æðir áfram. Það er kominn nóvember. Mér finnst ekki langt síðan ég var heima í sumar. Já, víst best að huga að jólagjöfum og öðru slíku. Og koma í verk að senda kort á þessu ári. Ferleg að gefast upp á slíku og koma ekki helmingnum í verk, sem ég ætla mér. En batnandi manni er best að lifa og öll gerum við helling af mistökum, ekki satt.
Helgin var æðisleg. Það var fínasta veður straks á föstudaginn. Við vorum úti með krakkana og fórum í látbragsleiki með þeim. Við Margrét tókum svo efri hæðina í gegn eftir hádegið. Margrét tók flugnanetið úr glugganum og pussaði rúðurnar. Setti hreint á rúmin, þreif baðið og gerði allt þetta, sem tilheyrir góðri helgartiltekt.
Á laugardaginn fórum við Klaus út. Hann klippti runna. Ég klippti greinarnar í passlega stærð og við bundum þetta svo saman í knippi. Þann 18.11. koma kallarnir að ná í þetta. Klaus klippti uppáhaldsrunnan minn og var eitthvað óánægður með árangurinn svo hann endaði bara með að klippa runnann alveg niður í ekki neitt! Rosa skarð í runnaþyrpinguna. En nú komst ég að til að hreinsa illgresið, sem óx undir þessu, og í gær var ég úti í eina 5 tíma bara við tiltekt í garðinum.
Margrét bakaði skúffuköku á laugardaginn. Við elduðum eplalummur í matinn í gær, og á laugardaginn voru bara sænskar kjötbollur með pasta í ostasósu.
Það var æðislegt að vera úti í 12 stiga hita og logni. Eftir hádegið í gær kom sól. Sat úti með kaffibollann og lét mig dreyma. Hreinsaði vel illgresið í beðunum fram við veröndina. Allt fer að komast í lag fyrir veturinn. Klaus setti nýju byssuna okkar á nýjan stað. Við erum sko komin með músabyssu! Hún er sett í gatið, og á að virka vel. En fram að þessu hefur hún ekki hleypt af í nokkurt skifti. Ég er að finna göng eftir mýsnar um allt. Hér er bara plága eftir þennan snjóþunga vetur. Snjórinn hélt kuldanum frá og undir honum döfnuðu mýs og maurar af bestu getu. Ef ekkert gerist með byssuna, fæ ég mér sko eitur. Þær eru búnar að éta slatta af íslenska valmúanum mínum. Hingað og ekki lengra.
Við Margrét förum eftir skóla beint til BS. Hún fékk tíma hjá húðsjúkdómalækni. Hefur fengið krem til að bera á ennið á sér til að losna við bólurnar. En var komin með stórar rauðar skellur eftir það. Vona að þessi læknir finni út hvað gera skal. Hennar læknir er í Gifhorn og vinnur bara á morgnana. Og ekki nema 3 morgna. Fari Margrét til hennar þarf hún að skrópa í skólanum. Svo við ætlum að prófa þennan í BS. Síðan er meiningin að kaupa jólagjafir og fara að koma þessu í kassa.
Það var erfitt að vakna fyrsta daginn til að fara í skólann eftir fríið. En nú er kominn vetrartími, loksins. Mikið að gera i síðustu viku. Margrét fór á tvö "Kurs"-kvöld. Hún er ekki í bekk, heldur í kúrsum. Ég þurfti á fund í stjórn foreldrafélagsins. Hugsaði um kisa um helgina. Og á fö.kvöldið fékk Frau Kühle mig til að koma á lestur úr nýjum krimma. Bróðir vinkonu hennar skrifaði hann. Gerist í Hartzfjöllunum. Það var ágæt tilbreyting.
Þáttaröð númer tvö með dönsku löggunni, Lund, er nýbyrjuð. Hef horft á það þó að þættirnir séu til næstum 12 á sunnudagskvöldi og ég þurfi á fætur klukkan 6 morguninn eftir. Hafa þeir verið heima??? Mjög spennandi. Ég sá aldrei fyrri þættina. Verð líklega að kaupa mér diskana þegar þeir lækka.
Klaus flýgur á sunnudaginn til Ítalíu, til Turin. Hann gistir þar í tvær nætur. Alltaf á ferð og flugi. Mikið að gera hja honum. Í næstu viku fer Margrét í æfingapróf. 6 klukkutíma próf eins og stúdentsprófið verður í vor. Þetta er náttúrlega klikkun eins og svo margt annað hér í landi.
Ég hringdi í Lillu í gær og talaði lengi við hana. Það hefur örugglega verið góður matur á boðstólum þar og eftirrétturinn ekki af verra taginu. Gott þegar fjölskyldan kemur saman og á góðar stundir.
Á víst eftir að segja hvað ég fékk í afmælisgjöf. Pabbi og mamma gáfu mér einn af þessum dýru hnífum. Og ég á að kaupa mér smotterí til viðbótar. Margrét gaf mér heklaðan trefil, sem ég er alltaf með síðan. Þau feðgin gáfu mér hnésokka, og Barnabyþætti, og tvær bækur eftir Camilla Läckberg. Á þá fyrstu 3 bækurnar. Frau Kühle og Herra Albrecht gáfu mér tvo kertastjaka í Iittala, einn af mínum gömlu var brotinn. Þetta eru þeir, sem eru lágir. Svo nú á ég þrjá. Susanne gaf mér smásögur. Aðventukrimma, ein saga á dag. Og langan dúk á borðið þegar það er útdregið. Ramona og Daniela gáfu mér hreinsiklúta og baðolíu. Svo fékk ég rauðvín frá skólanum og rauðvín frá Renötur, mömmu Doreenar. Sem sé allt hið besta.
Takk fyrir kommentin ykkar. Þið fáið sko ekki að sjá myndina af okkur Klaus. Arnhildur laumaðist inn þegar við vorum saman í baðkerinu! Já, á þessum tíma pössuðum við bæði í eitt baðker! Held að það gæti ekki gerst í dag :):):)
Flott með tangódansinn hjá Þorgerði og Gilla. Spennandi að frétta hvernig fer með dansinn í Frakklandi hjá Helgu Margréti. Malla var í útlöndum og þetta fór alveg fram hjá mér. En allavega keypti hún sér leðurjakka. Flott Malla mín. Já, ekki meiri tími í bili. Þarf í sturtu, að læra með Vanessa núna klukkan 11 í skólanum (ókeypis aðstoð svona til að gera smá góðverk svo Guð hugsi kannski um mínar dætur í staðinn, eða þannig ), vinna, og af stað til BS klukkan eitt eftir að Margrét er komin í bílinn.
Hafið það sem allra best.
Hildur frænka, bréfið kom ekki. Skil það ekki. Reyndu endilega aftur. Skrifaði þér stutt bréf-mail.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Þú átt við Forbrydelsen með Lund lögreglukonu, er það ekki? Snilldarþættir. Hér liggja Dagur og Helga í ælupest, hundslöpp en þetta fer nú vonandi að ganga yfir og óskandi að við hin sleppum.
Helga ánægð eftir helgina, vann 2 gull á afmælismóti DSÍ á laugardaginn, og vonandi á þessi Parísarferð eftir að ganga vel.
Skítakuldi hér, snjóaði í gærkvöldi, fallegt að horfa út, en rigningin búin að taka yfir í dag.
Já og Hildur er frábær (innskot frá henni sjálfri)!
Bestu kveðjur úr gubbustöðum...
og svo áttu eftir að fá afmælisgjöf frá mér þegar ég kem :)ég hlakka alveg gífurlega til að vera hjá ykkur í des, og kannski get ég hjálpað við að skrifa utan á umslög fyrir jólakortin þín :)
kveðja eldri dóttir þín a.h.
Post a Comment