Monday, December 6, 2010

Dagur hins heilaga Nikulásar.

Kominn 6.des., afmæli Össa og dagur Nikulaus, þýska jólasveinsins. Hann kíkti við hér og skildi eftir gjafir til heimilisfólksins. Margrét fékk köflótta mussu, nærbuxur og súkkulaðijólasvein. Í fyrsta sinn enga bók þar sem jólaundirbúningurinn hefur ekki farið fram af þýskri nákvæmni.
Arnhildur fékk föndurbók, sokkabuxur og brók. Og súkkulaðijólasvein. Fyrir þá, sem elska Kinder-súkkulaði skal geta þess að þessir kallar eru úr sama súkkulaði! Og þær systur smjöttuðu og voru happy:) Klaus fékk tvö stykki af fínu núggat. Og var líka sæll með það.

Hér hefur verið alvöru vetur. Snjóaði og snjóaði, og við Klaus og Arnhildur höfum haft mikið að gera við að moka og skafa snjóinn af stéttunum. Skítkalt og smá vindur oft með. En í gær og dag var þó þítt, og tók slatta af snjónum. Ekki stóð sælan lengi yfir og spáð 4 stiga frosti í nótt.

Margrét er enn með hósta. Vaknaði í nótt og hóstaði endalaust. Arnhildur líka með verki í hálsi. Fór með þær báðar til grasalæknisins í dag. Hún heitir Christine, og er eldhress. Hún mældi Arnhildi á sama hátt og okkur Margréti í vor. Vill meina að hún sé ekki neitt þunglynd heldur eigi við sjokk að stríða frá í den tid, og þurfi að vinna úr sínum málum og losa sig við kvíða og óttaköstin. En hún hafi 70 af jang--sem er karlorkan- móti 30 af jing-ef ég skildi þetta rétt, og sé full af orku og ætti að geta rutt sér sína leið í lífinu. Benti henni á hvað veiku hliðar hún hafi og prófaði með kinesologiu sitt og hvað. Spennandi. Og Klaus hristir hausinn :)Alltaf gaman að heyra eitthvað gott um sig og sína, ekki satt. Vonandi fer nú Margrét að komast yfir hóstann.

Hún fór í 6 klukkustunda prófið á laugardaginn. Var frá 8-12, þurfti ekki meiri tíma og við sóttum hana svo. Komumst svo í afmæli til Ramonu. Ágæt ibúð, og gaman að sjá hana. Klaus varð svo eftir og spjallaði við Susanne og liðið. En við mæðgur fórum í rútu í bæinn og versluðum fram til átta. Þá tókum við lestina heim og Klaus sótti okkur svo á stöðina.

Í gær var svo verið að setja upp seríur á jólatréð úti í garði og á annað tré. Og setja pinna með ljósum í moldina, sem var ekki alveg pikkfrosin. Systur bjuggu til skreytingar úr greni og kertum. Svo var eldað. Kjúklingur a la Arnhildur með ýmsu gúmmelaði. Búið að baka súkkulaðibitakökur og Mariukökur. En annars gengur undirbúningur seint. Og ekki útlit fyrir miklar hreingerningar. Mikið að gera í vinnunni og stressið í hámarki út af skóla-úttökunni, sem hófst í dag. Tvö, sem fara inn í hvern bekk, dæma og meta og fara í gegn um öll plön og allt, sem tilheyrir skólanum. Þarf á fund með þeim á morgun. Verð í skólanum frá 12 -15. Svo það er alltaf eitthvað, sem manni leggst til. Gott að hafa Arnhildi til að sækja systur sína og hugsa um tiltekt í eldhúsinu og slíkt :)

Þórdís fær svo bráðum pakka frá mér með dóti til liðsins í bænum. Ég sendi allt í einum kassa og treysti því að hún komi þessu. Hún getur nú tilkynnt um þetta á facebook, og hver náð í sitt.
Kassi til Affíar og annar til mömmu með gjafir norður og listi í kassanum að venju.

Við erum búnar að spjalla við Kristínu Dögg á netinu. Fusi keypti kameru og það er rosa munur. Þaðan eru helstu fréttir eins og þið eruð sjálfsagt búin að heyra að Ólöf og hann hættu saman og þau feðgin eru ein í kotinu. Það er sannarlega leiðinlegt. En Kristín hefur gist heima hjá Ólöfu, hjá foreldrum hennar og hjá Alex. Þetta gengur allt vel, og ég vona að þið, sem búið fyrir norðan verðið dugleg að bjóða þeim í mat og aðstoða eitthvað. Maður átti nú ekki von á þessu.
Jæja, best að koma sé í háttinn. Klukkan hringir á morgun á sinum vanalega tíma, klukkkan 6.
Vona að Össi hafi það gott-bestu kveðjur til hans Malla mín. Og vona að flugið hjá pabba og mömmu gangi vel norður.
Bestu kveðjur úr vetrinum í Meinersen.

2 comments:

Anonymous said...

kvitti kvitt...
kv
Kristín E.

Anonymous said...

Hér var líka búið að snjóa og snjóa, mjög fínt og vetrarlegt. Fórum meir að segja á skíði og snjóþotu á sunnudaginn, það gerist nú ekki oft fyrir jól hér sunnan til. En í gær kom svo leiðindar hláka, ömurleg rignin, og nú er bara allt grátt og blautt :( Lítill jólaundirbúningur hér, við ætlum jú að fljúga heim, en það þarf náttúrulega að kaupa jólagjafirnar og svo bökuðum við einar þrjár smákökutegundir til að deyja nú ekki úr hungri á aðventunni :) Athyglisvert að heyra það sem grasalæknirinn var að segja, það er margt óvitlaust sem þessar óhefðbundnu lækningaleiðir segja og ég er alveg viss um að Arnhildur hefur alla burði og getu til að taka á sínum málum og njóta lífsins og þess sem það hefur að bjóða. Hún þarf bara að hafa trú á sljálfum sér, vilja til að breyta hlutunum :) Ég veit það er alltaf auðveldara að segja hlutina heldur en raunverulega að gera þá og það er auðvelt að standa fyrir utan og ráðleggja öðrum, en það er bara svo mikið í húfi. Hún á bara þetta líf og það er svo mikilvægt fyrir hana sjálfa að hún nái að vinna sig út úr þessu. Aðventuknús og kveðjur í kotið, Aldís B.