Var að senda jólapóstinn. Næst fer hann sko í kassa í sjópósti. það kostar þvílík ósköp að senda til Íslands þar sem við erum ekki í Evrópusambandinu. Bara til tvenns konar gjöld,-- Evrópa í EU, eða alheimsbréf. Það kostar sem sé jafn mikið að senda bréf til Afríku og til Íslands. Og svo var það besta að nokkur kort pössuðu ekki í gegn um gatið. Áður voru það grömmin, sem skiftu máli, en nú stærðin. Og þar með voru þau tvöföld eða ég veit ekki hvað, allavega kostaði 6 evrur fyrir eitt bréf. Já, þannig var það. En nú er pósturinn farinn og dugar ekki að gráta það. Allavega fá allir sitt jólakort og mynd.
Hér féllu ekki niður kennsla í dag eins og í nágrenninu. Spáin var verulega slæm, en ekki varð nærri eins vont og óttast var. Það hefði verið verulega huggulegt að fá frí, en svona fór það nú. Bara eftir 3 kennsludagar og skelfing verður gott að komast í fríið.
Dagurinn í gær fór öðruvísi en planað var. Dæturnar voru komnar með mikla bíóþrá. En ég ekki nógu hress með hálku og snjóinn. Datt í hug að spyrja eina, sem vinnur hjá okkur, hvenær hún færi heim, til þorps nærri BS. Og hún bara tók okkur með og við fórum í strætó áfram inn í bæinn eins og i gamla daga frá Watenbüttel. Þær systur svo á Harry Potter, ég á kaffihús þar sem ég gat ekki borðað neitt í hádeginu þar sem við fórum straks og ég var búin að vinna. Skildi m.a.s. hjólið mitt eftir í geymslunni í skólanum:) Svo verslaði ég nokkrar jólagjafir. En var aðallega að leita mér að vatnsþéttum vetrarskóm. Það kom nú í ljós að allir skór eru að verða uppseldir. Og engir vetrarskór koma meir í vetur heldur eru sumarskórnir væntanlegir í janúar. Ef þessir kaupmenn eru ekki heimskir þá veit ég ekki hvað. Fann reyndar eitt par, sem var til í 40. Fínir goretex skór, en þá fannst hvergi hægri skórinn! Og með skó á einni löpp gagnar víst lítið.:)
Splæsti svo á mig bökunarpotti til að geta sett hamborgarahrygginn í ofn eins og Maddý gerir. Vona að það virki vel. Ætlaði að borga þetta af mínum pössunarpening, en Klaus bara hneikslaðist á mér og sagði að ég ætti að kaupa eitthvað á mig sjálfa. T.d. flott nærföt. Hann vill sem sé fá eitthvað handa sjálfum sér, hehehe.
Klaus tók okkur svo með heim þegar hann var búinnn í leikfiminni. Við biðum í snjókomu og kulda, að drepast á tánum. En allir sælir með daginn. Svo var háttað snemma og gott að komast í hlýtt bólið.
Í dag kom guttinn í kennslu til mín. Margrét var í skólanum frá 7.30 til 16.15. Við Arnhildur boruðum göt í skífur af trégreinum. Mig vantaði það fyrir gæsluna. Og bölvaður borinn var með högg-styllingu og við kunnum ekki á að taka hana af. Svo ég var öll úthrist og Arnhildur dauð úr þreytu að berjast við að ýta bornum neðar og neðar. Við vorum alveg ógeðslega góðar, hahahaha. En nú er Klaus búinn að laga þetta og vonandi verða síðustu götin auðveldari.
Fórum í mikla verslunarferð og tókum Frau Kühle með, sem er bíllaus í nokkra daga. Arnhildur bílstjóri að vanda. Það þurfti að skafa rúðurnar í hvert sinn, sem bíllinn stóð utan við einhverja búð. Og það er víst kominn tími til að skafa aftur stéttina, sem ég tók vel í gegn í dag.
Vesen á miðstöðinni. Hávaði eins og var í henni fyrir einum þremur árum. Hljómar eins og þyrla fari í gang. Kallinn kemur á morgun að líta á þetta.
Já, ferðir út og suður, vinna, einkakennsla, snatt og þetta og hitt. Svo ekki verður hér neitt úr jólahreingerningunni að þessu sinni. Léleg húsmóðir og ekki segjandi frá þessu. Bara komnar 4 kökutegundir. En gjafamálin komin í höfn og pósturinn farinn af stað. Ég vona svo að pakkarnir fari að koma, sem hlýtur að gerast fljótlega.
Jæja. Vona að þið hafið það gott. Njótið aðventunnar og gerið ekki of mikið. Hafið það bara eins og ég, hehe. Allt í óreiðu og engin tekkolía borin á eða skápar þrifnir. Það verður þá bara seinna.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Ég nýt aðventunnar :o) reyndar þreytt í kvöld eftir jólasaumó í gærkvöldi sem entist alltof lengi hehehe
Ég gerðist hagsýn og setti jólakort til þín og til Arnhildar í sama umslagið :þ þið sjáið það á Aðfangadagskvöld væntanlega.
Hér er langt langt síðan við komumst að því að jólin koma alltaf... óháð nokkru :þ t.d. árið sem við borðuðum ristað brauð í kvöldmat á aðfangadagskvöld þar sem við Siggi vorum með ælupest hehee gleymum þeim jólum aldrei. Ég er búin með allar jólagjafir nema eina og öll kort komin í póst nema 3 (vantaði adressur) bakaði eina sort síðustu helgi og gerði 4 sortir af konfekti en þrifin bíða, verða bara smávægileg.... mun sniðugra að nota aðventuna í annað en stórþrif... jæja ætti kannski frekar að blogga á síðunni minni en hér hehehe bið að heilsa elsku Arnhildi minni og auðvitað Klaus og Margréti líka :D
Skringileg aðventa hér. Fyrst veikindi Helgu Sigríðar, svo Parísarferðin. Á endanum læstist ég í öxl og gat ekkert hreyft vi. handlegg í rúma viku með tilheyrandi verkjum, Sóla Þráins er að reyna að ná þessu úr mér. Dagur tók svo upp á því að vera lasinn um helgina svo enn á eftir að versla nokkrar jólagjafir...
En jólin koma þrátt fyrir það!
Nokkrir dagar enn til stefnu.
Jólatónleikar kórsins í kvöld, pabbi og mamma á leiðinni að norðan og allir komnir í skólafrí!
Hildur fékk þessar fínu einkunnir í morgun, og nú er bara að horfa fram á veginn :)
Bestu kveðjur til ykkar allra og njótið þess að vera saman!!
Takk fyrir sendinguna elsku frænka, yndislegt að fá Kinder súkkulaði :D
Sendi ykkur öllum jólakveðjur úr Kópavogi, ég fer alveg að sleppa heim úr vinnunni og þá fara jólin að koma :o)
Gleðileg jól
Post a Comment