Hugsa heim á þessum degi eins og svo oft. Og vona að þið séuð öll hress og glöð í jólaundirbúningnum. Af okkur er bara gott að frétta. Þó að ég sé með einhverja verki í hálsi og liggi því á bæn að ekki verði neitt alvarlegt úr því. Margrét er enn hóstandi. En mun betri. Enda með segulkortið, sem á að koma henni í jafnvægi, híhí. Elli heldur að hún sé bara með visakort, það sé jú segulrönd á því!
Hér snjóar og snjóar. Við sóttum Sonju í leiksólann í dag þar sem Artur sat fastur í umferðinni frá Wolfsburg. Hún fékk svo að vera hjá okkur og leika sér með playmoið.Vvar afskaplega ánægð með það. Þæt systur bökuðu kókostoppa og sprautubrauð. Arnhildur hafði náttúrlega aldrei fengið að koma nálægt slíku í prestshúsi fekar en ég. Og þótti gaman að fá að stússast í þessu með systur sinni. Stefnt á marengs á morgun--ef ég dett ekki í pest, en nei, nei. Ekkert slíkt.
Við fengum niðurstöðurnar úr skóla-Inspektion í dag. Og stóðumst kröfurnar, sem ráðuneytið gerir til okkar. Þvílíkt bull þetta allt. Allt í einu eru kennararnir ekki lengur slæmir heldur rosa góðir. Af því að þeir kenndu eftir kerfi--áætlunum--vikuplönum og einhverju svona bulli. En hvað um það. Þessi gífurlegi þrýstingur er horfinn og vonandi að tilveran verði afslappaðri í framtíðinni. Ein af okkur þremur er reyndar lasin og stress í gæslunni. Við þurftum að vera með 3 hópa úti í dag í hríðinni. Þar sem enginn var til að leysa af. Höfum ekki pláss fyrir einn og hálfan hóp í stofunni. Og verðum því að vera úti fáist ekki afleysingamanneskja. Þær eru 3 og oft allar uppteknar. Og þrátt fyrir snjókomu í fleiri daga eru börn að koma í skólann á strigaskóm og vettlingalaus. Það er slatti af fólki, sem ætti ekki að eignast börn!
Vorum svo heppin að Margrét fékk frí í tveimur fyrstu tímunum í morgun. En í fyrramálið er aftur klukkan ring ring 6 og 6.30. Klaus tekur hana með. Arnhildur sækir hana svo klukkan 11, fer aftur klukkan 1 og verður svo sótt klukkan 4.15. Hvað gerði ég án Arnhildar? Væri öll í skipulagningu og betli. Frábært að hafa hana.
Á fö. er Klaus í fríi. Verði góð færð förum við mæðgur til BS. en sé hún slæm fer Klaus minn með okkur. Allir hlakka mikið til.
Fegin að mamma og pabbi séu komin norður eftir gott flug og góða dvöl þar. Verst að nú er ekki langur tími fram að jólum og mamma á eftir að baka aog setja upp öll blessuð jólahúsin og þrífa og fleira. Vona að hún geri ekki of mikið í einu. Taki þessu með ró. Kannsi AD hafi tíma til að hjálpa þeim eitthvað eftir prófatörnina. Aldrei að vita hvað hún hafi lengi tækifæri til að aðstoða þau gömlu. En æskan er jú alltaf mikið upptekin, ekki satt.
Jæja, þá er hálstaflan að bráðna og ég að skríða í bælið. Hafið það gott. Og gjarnan smá kvitt.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
kvitti kvitt.... hugsaði líka til allra ættingjanna í gær á afmælisdegi afa Sigga, hefði svo verið til í að vera á Akureyri og líta við hjá honum í kirkjugarðinum. Við fórum þangað í sumar.
Bið að heilsa Arnhildi bestustu frænku og Margréti og Klaus líka :o)
kv
Kristín E.
Sælar allar saman. Hér er allt á fullu á loftinu - verið að græja áður en mamma og pabbi koma um jólin og styttist hratt,þau koma 20.des og við að byrja á loftinu. Búin að drösla rúmunum tveimur niður og nú á að mála og setja teppi á gólfið + nýjan svefnsófa. Vona að þetta náist fyrir 20.des. Annars sagði EÖ - en amma hin hún gat alveg sofið þarna um daginn, hissa að þessi amma geti það ekki líka tihi.kv. Malla
Post a Comment