Wednesday, September 8, 2010

Hann rignir aftur!

Ekki fengum við nú meira hlé frá rigningunni en þessa fáu daga. Það er frekar kalt og var vindasamt í gær og dag. Einhvern veginn er komið alvöru haust hér þó að enn teljist sumar. Samt getur allt gerst. Spáðin betri fyrir helgina. Klaus er í 40 stiga hita í Japan. Sennilega hefur hann akkurat ekkert gert nema verið á ráðstefnuninni út af hita. Hitabylgja og m.a.s. Japanir stynja.

Við Margrét erum hressar. Fórum á sunnudaginn í kaffi til Maju við hliðina. Fengum frosin himber með muldum marenskökum og rjóma. Æðislegt. Komumst að því að Maja var au pair í Gifhorn hér fyrir nokkrum árum og kynntist Arthur þar. Alltaf gaman að kynnast fólki betur. Við fórum svo í stutta gönguferð og ætlum að gera það oftar.
Á mánudaginn ók Margrét okkur til BS. Hittum þar Danielu og Susanne. Splæstum á þær kaffi á Starbucks. Daniela átti afmæli meðan við vorum á Íslandi. Við keyptum pönnukökupönnu handa henni, sem ég ætla að baka til fyrir hana. Svo keypti Margrét sér gollu og bol í Vero Moda, og við báðar langerma boli þar á tilboði. Alltaf gaman að skreppa þangað.

Var að aðstoða kennara á mánudaginn í tvo tíma og á þr. í einn tíma. Fer á morgun og hinn í einn tíma. Gott ef hægt er að nota mann til einhvers. Diana , sem er ein af okkur þremur, sem sjáum um gæsluna, er lasin. Við höfum þurft að taka hennar hóp með okkar í þrjú skifti og vorum því úti með allt liðið. Gott veður enn í hádeginu í dag til allrar lukku. Létum þau fara í leiki. Lá við að liði yfir mig að Ines skyldi vera til í það. Hún og Diana sitja mest á trjábol og kjafta. Á morgun þarf ég að vera komin um 8 upp í skóla. Lofaði konu prestsins að hitta hana og dreifa auglýsingum um fjölskyldumessu. Og svo kemur ein úr foreldrafélaginu til að kíkja á dótið í skúrnum, sem við í gæslunni tókum að okkur að sortera. Við eigum svo að gera lista yfir spil, sem við viljum fá. Foreldrafélagið ætlar að kaupa þau fyrir okkur.
Og svo er fundur klukkan eitt hjá skólastjóranum út af skipulagningu og framkvæmd á gæslunni. Spennt að sjá hvað kemur út úr því.

Í dag fór ég með Frau Kühle og vinkonu hennar til Hannover. Mia litla á afmæli. Ergilegt að það var akkurat í þessari viku þar sem ég er á fullu að gera hreint í herbergjunum uppi. En það er ekki eins og lífið liggi á að klára það.
Bakaði æðislegt brokkolípæ í hádeginu. Margrét var heima í dag með smá verki. Það var líka góður dagur til að skrópa. Hún sat svo og lærði latínuglósur á meðan og horfði á imbann. Dagurinn fór í þetta, eða frá 13.15 til 19. Svona fara nú dagarnir stundum.

Margrét heimsótti Birthe vinkonu sína í Celle um helgina. Ég ók henni á fö. og sótti á laugardaginn. 40 mín ferð hvora leiðina. Var að spá í að skreppa í bæinn í Celle á laugardaginn þar sem ég var ein heima. Klaus flaug á laugardagsmorguninn. En komst í rosa stuð að taka herbergin í gegn. Fer bara seinna að rölta um í Celle.

Jæja. Við erum sem sagt á lífi og allt gott af okkur að frétta. Vonum að þið hafið það öll sem best.

2 comments:

Kristín E. said...

Það er aldeilis nóg að gera hjá þér elsku frænka :o) gott að heyra :D

Anonymous said...

gaman að sjá hvað þú ert aftur dugleg að blogga.
elska þig. Margrét