Tuesday, September 21, 2010

Eins gott að standa sig í blogginu!

Nú er dóttir mín sú yngri búin að kvarta svo mikið út af því að enginn kvitti (nema Kristín) að fólk tók kipp:) Takk þið öll. Og ekki má ég láta deigan síga og best að pikka nú smá.
Yndislegt veður í dag. Sól og logn. Ekki rigningardropi, sem er hreinlega ótrúlegt.
Allir í stuði og hressir í svona veðri.
Margrét dugleg í dag að vanda. Langur dagur og leikfimi í síðustu tveimur tímunum. Hún er í dansi og fær þá gagnrýni að hún sé ekki með "Körperspannung"-spennu í líkamanum. Hmhm--líkst hún móður sinni, híhí. Ekki komin út af Helga, og ekki er Klaus slakur :):):) En hún hleypur nú samt ekki með höndunum!
Auðvitað ók ég henni í skólann og sótti, og bakaði vöfflur handa henni, dekurdótturinni. Henni finnst hún eiga það skilið, hehehehe.

Sonja og ég löbbuðum í skólann í morgun. Nú er bara eftir ein vika fyrir utan þessa og þá kemur pabbinn frá Kína. Held ég muni sakna hennar á morgnana þó að gott sé líka að geta gert eitthvað annað snemma á morgnana. Þurfti t.d. til Gifhorn í gær og komst bara naumlega í vinnuna þar sem ég fór ekki af stað fyrr en hún var komin í skólann. En aðal ástæðan var nú að þetta dróst nú heldur betur.
Ég fór nefnilega á skrifstofuna hjá útlendingaeftirlitinu. Fékk nýjan passa í sumar. Ég er með ótakmarkað dvalarleyfi. Það er settur miði í passann og nú þurfti ég nýjan miða í nýja passann. Beið í 50 mín. Og þá sagði gæinn-ertu með passamynd? Ég -ha, til hvers? Það er mynd í passanum.- Þá eru komnar nýjar reglur, held frá 2006, um að mynd verði að vera skönnuð á þennan límmiða. Svo ég mátti arka í bæinn, finna ljósmyndara, borga 15 evrur og arka svo aftur upp í höllina í Gifhorn. Losnaði sem betur fer við langa bið. Og nú er ég alveg lögleg!

Þurfti líka að ná í resept til kvennsjúkdómalæknisins, og verlsa smá. Í dag var líka snatt hingað og þangað. Pósthús, búðir, smá heimsókn til hjóna, sem eru í vinskap við pabba og mömmu. Alltaf gaman að koma til Krimmeike, og margt að spjalla við þau.

Við þrjár í gæslunni--loks engin lasin, löbbuðum svo með hópana þrjá að 3 stórum eikartrjám. Þar fundu börnin hnetur og sáu frosk, sem var víst ótrúlega stór. Við erum að sanka að okkur efni til að setja á borð, sem skreyta á með hausthlutum og myndum. Nóg að gera. Fékk epli hjá vinkonu minni, sem ég skar í sundur og þau stimpluðu í gær á pappír. Þetta voru epli, sem duttu af trjánum og eru ekki til að borða. (svona til að þið haldið ekki að ég skemmi mat!) Svo notum við laufblöð til að gera vatnslitamyndir. Og hitt og þetta er á döfinni. Verð að taka mynd þegar við erum búnar að koma þessu upp.
Ég legg nú mesta áherslu á að börnin geri sem mest sjálf og þetta verði ekki fullorðinna-skreyting.

Það var stuð um helgina. Var að vinna fyrir foreldrafélagið frá 9 á sunnudagsmorguninn. Var búin að búa til 4 uppskriftir af vöffludeigi með aðstoð Margrétar. Við settum upp tjaldið okkar, og seldum þar vöfflur og franskar. Kom heim um hálf sjö um kvöldið. Var gamana og hitti nokkra, sem ég þekki. M.a. skólastjórann, sem gat sagt mér að eftir að Margrét er búin með síðasta prófið, sem er milli 3. og 19. maí, er hún laus úr skólanum! Því var nefnilega haldið fram að þau þyrftu samt að mæta, sem væri algjört bull. Hún mun því taka stefnuna heim upp úr þessu ! Svo fá þau einkunnirnar í lok júní. Ergilegt því þá þarf hún að koma aftur út. En nú er búið að hnoða saman þessu með afmæli og fermingar.-Veit ekki um útskriftir (?)

Örn fermdur fyrir páska, -við komumst ekki, sniff. Guðný fermd 5.6., við þá komnar, og Kristín Dögg fermd 11.6., sem er á hvítasunnunni. Og svo verður mamma 75 daginn eftir, þann 12.6. Ég veit ekki hversu mikið frí ég get tekið. Þetta er svo mikið vesen út af tryggingum, sem kemur í veg fyrir að einhver vinni fyrir mig þó að ég hafi fólk í það. Sjáum nú til.
En klárt er að ég þarf örugglega aðstoð ykkar við bakstur og undirbúning og treysti á ykkur öll svo Maddý elsku besta frænka lendi ekki í því að gera alltaf mest. Það er líka ekki langt á milli þessara ferminga hjá frænkunum og sama liðið stendur í þessu öllu. En kannski þær systur, Margrét og Arnhildur hristi þetta nú bara einar fram úr ermunum :)

Jæja, klukkan orðin tíu að kvöldi og stefnan tekin á koddann. Ég er farin að hátta um 9.30 flest kvöld og er þá ekki neitt syfjuð á morgnana. En asnalegur tími er þetta nú samt.
Vona að það verði áfram gott hljóð í ykkur og hafið það öll sem best.
Vona að það verði "Góður dagur" hjá ykkur öllum á morgun.

16 comments:

Anonymous said...

duglega mamma :) og p.s.mig langar í vöfflujárn í jólagjöf...

Anonymous said...

og já þetta var hin yndislega dóttirin að kvitta :) ég las allt saman sko, og er voða dugleg líka

Anonymous said...

Er ekki alveg að fatta að mamma er að verða 75, finnst 70 afmælið hafa verið fyrir ca tveimur árum. Það verður aldeilis nóg að gera í vor, við Aldís bökum ( aldís bakar hehe). Eldaði hrigg í kvöldmatinn, bara svona í tilefni þess að það er þriðjudagur.. neinei var á þessu líka fína tilboði í KEA. Annars allt í góðu, heyrði í systur okkar og bara gott hljóð, Arnhildi hef ég lítið náð að hitta, en var hjá mömmu og pabba á sunnud. Kveðja í bæinn, þín sys affí

Anonymous said...

blubb blubb bloggi bloggg
A.H. einu sinni enn

Anonymous said...

Er Arnhildur að reina að kvitta oftar en ég??? hmmm, veit nú ekki alveg hvort að mér líki það ... :D :D
Annars gæti ég nú alveg trúað því að ég gæti baka einhverja köku/tertu og að Arnhildur myndi hjálpa - er það ekki syssa??
Bestu kveðjur frá þessari yndislegu dóttur þinni.
Margrét <3 <3

Anonymous said...

Alltaf gaman að lesa! Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur

Anonymous said...

Diddi á leið norður, er að fara í gæsir og Friðrik með honum. Ætlar að vera með pabba sínum á skytteríi, ég er nú ekkert voða hrifin af því, en þetta er ekkert sem ég ræð yfir svo það þýðir ekkert að hugsa um það. Smá pest að hrella mig, hausverkur og slen, en hressari í kvöld. Heyrði í pabba og hann aðeins skárri í öxlinni og bara nokkuð gott hljóð í honum. Gott að helgi er framundan, ætla að slappa vel af.
Kv affí

Þorgerður said...

Við Gilli verðum erlendis 10-12 júní, og missum því af einhverjum veisluhöldum virðist vera. Borgarferð með minni vinnu, vitum enn ekki hvert. Veit ekki með útskrift Hildar, reikna með að hún sé um miðjan maí.
Dagur Elís lasinn heima, vonumst til að komast á Breiðabliksfótboltaleik á morgun, þar sem möguleiki er á að íslandsmeistaratitillinn komi í fyrsta sinn í Kópavog. Því mikil spenna á heimilinu.
Við Gilli byrjuðum á nýju tangónámskeiði í gærkvöldi, mjög gaman þó Helgu finnist tilhugsunin um foreldra sína að dansa hvorki falleg né skemmtileg :)
Góða helgi öllsömul!!

Kristín E. said...

Kvittikvitt :o)

Anonymous said...

Margrét-kvittipeppnin er on!!!!!
kvitti kvitt Arnhildur

Anonymous said...

sko kvittikeppnin en ekki kvittipeppnin eða what ever...A.H.

Anonymous said...

gúgglí gúgglí-systir mín þarf að læra svoooo mikið að ég mala þetta sko .....AHhhhhh

Anonymous said...

og já, Við Margrét bökum auðvitað strumpaköku handa ömmu ;) eða risa stóra tippaköku...ah

Anonymous said...

meira blogg takk !!!! ah

Kristín E. said...

úffff ég á ekki sjens í kvittkeppnina :þ en panta nýtt blogg :D

Anonymous said...

hmmm, ætli ég sé ekki líka búin að tapa þessa umferð ..
M.W