Hann rignir og rignir. Svo kemur einn dagur með sól og vind. Svo rignir og rignir. Þetta fer að verða alveg nóg í bili. Laufin farin að fölna og gulna. Þetta hefur verið skrítinn endir á sumri. Hvernig skyldi svo veturinn verða.
Við erum samt hress og bara allt gott að frétta. Nóg að gera í alls konar stússi. Fór með bókapöntunarlistana í menntaskólann. Líka í útibúið í Leiferde. Svo til Müden að ná í lyfseðla hjá nýja lækninum okkar. Er að hugsa um köttinn og verð áfram að sjá um Sonju næstu tvær vikurnar. Svo var fundur með skólastjórninni og eftir það er Ines, sem vinnur með mér á fullu að prenta út leiki, finna föndurhugmyndir og hvað eina. Diana, hin gellan, er lasin og búin að vera frá vinnu í tvær vikur. Það er hræðilegt því þá þurfum við oftast út ef veður leyfir með 3 hópa og getum ekki gert neitt af viti. Svo það er erfitt að gera vinnuáætlun ef við getum ekki unnið samkvæmt henni heldur verðum að vera með eftirlit í stað föndurs.
Margrét búin að vera í 3 prófum í þessari viku. Hún er hálf kvefuð og kom einn daginn heim úr skólanum. Komst samt til BS á mjög góðan fyrirlestur hjá manni, sem bauð sig fram sem forseti núna í vor. Hann komst því miður ekki að. Þessi maður heitir Gauck, og sá um að koma upp safninu með öllum njósnaskýrslunum í austur Þýskalandi. Þessu, sem fólk hefur farið í til að fá upplýsingar um hver njósnaði um það. Það var ótrúlegt hversu margir njósnuðu um sína bestu vini, jafnvel fjölskyldu.
Klaus feginn að vera heima. Ótrúlegur hiti í Japan, og erfitt að vera á ferðinni í svona langan tíma. Hann á nú eftir að gera skattaskýrsluna sína eins og vanalega-- og búinn að fá kvörtunarbréf frá skattinum. Hann er bara ótrúlegur, svo latur. Karlmenn!
Við Margrét erum báðar komnar til heimilislæknisins Frau Kremeike. Ég var að drepast í maganum eina nóttina og svaf varla neitt. Hún vill að ég fari til BS í ristilspeglun. Og fari á staðinn þar sem hún vann sem læknanemi. Ég fæ tíma í viðtal í fyrri vikunni í haustfríinu, (byrjar 9.10 ) og fer svo í skoðunina í seinni vikunni, eða 20.10. Gaman að eyða fríinu í þetta en hvað á maður að gera þegar enginn er til að vinna fyrir mann í skólanum, og allt í hers höndum þar út af veikindum. Það voru 6 veikir á fimmtudaginn, -fyrir utan einn langtíma lasinn, og 4, sem vinna í afleysingum. Flott, eða þannig.
En við Margrét gerum örugglega líka eitthvað skemmtilegt.
Það er yndislegt að komin sé helgi. Í dag áttum við eftir möffins, sem ég bakaði í fyrradag. Notalegt að sitja smá framan við imbann og drekka te með möffins. Svo er ég að fara í gegn um föndurblöð og taka eitthvað til í vinnuherberginu.
Reyndar verður sunnudagurinn ekki afslöppun. Fer snemma um morguninn með vöffludeig og verð að selja allan daginn í Leiferde með foreldrafélaginu.
Hafið það sem best--- góða helgi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
9 comments:
ef engin annar ætlar að kommenta þá verð ég bara að halda áfram að kommenta!
elska þig
Margrét
hlakka til að gera eitthvað skemmtilegt með þér í haustfríinu :D
Margrét
þú ert alltaf svo dugleg að baka!
takk fyrir það!
Margrét
vona að þú sért ekki svekt að öll kommentin séu frá mér :Þ
Margrét
komment frá mér :D ég kíki hér reglulega, ekki alveg á hverju degi samt :þ
mikið hvað þú átt góða og indæla dóttur Áslaug - já og dætur auðvitað :)
Annars finnst mér að þegar Margrét Sóludóttir verður komin hér út eftir áramótin þá verðum við nú barasta að fara að halda Mývetningamót hér í Þjóðverjalandi, fjögur erum við orðin, eða hvað?!?!
Bestu kveðjur úr yndislegu haustveðri, Aldís
Hér er búið að vera rigning en inn á milli mjög góðir haustdagar, svalt en sól og blankalogn. Nóg að gera í skólanum, er líka búin að sjá um ýmsa hluti þar sem Helgi og Soffía hafa verið með annan fótinn í Rvík, vegna veikinda barnabarnsins. Ekki hægt að segja að skólabyrjun hafi verið gleðileg að öllu leyti, jarðaför eins nemandans í fyrstu vikunni, svo veikindi Sölva litla, og tveir nemendur okkar að berjast við krabbamein. Maður getur ekki annað en hugsað talsvert mikið um lífið og tilveruna þessa síðustu daga. Annars er allt að komast i fastar skorður, og öllum líður vel.
Kv affí sys
Já svona gengur þetta Affí. Skólabróðir Hildar lamaður og liggur á Grensás eftir hörmulegt bílslys, maður á auðvitað að þakka fyrir hvern dag og þessir atburðir minna okkur á það.
Veikindi barnabarns Helga og Soffíu - geturðu sagt mér meira frá því Affí?
Margrét var að skamma okkur fyrir að kvitta ekki - kvittikvitt :)
Allt á fullu hér, tómstundir og annað að komast í gang, við Gísli skelltum okkur á tangónámskeið í lok ágúst, voða gaman. Sumarbústaðarferð með Möllu og co. um helgina, frábær skemmtun og afslöppun.
Bestu kveðjur!!
Margrét þú ert yndisleg :) og dugleg að vera góð við mömmu. Ég er komin í dagsstatus inná Pshychodeildina hérna-er farin að verða fastagestur og flestir sem vinna þar muna nú eftir mér síðan síðustu skipti híhí!!!en maður verður víst bara að viðurkenna það þegar maður er með sjúkdóm sem ekki er hægt að lækna en hægt að halda niðri og sumir dagar eru bara voða góðir :) and praise the lord-hallelúja-let me hear an Amen!! sem sagt góður dagur í dag ;)
kveðjur ykkar rugludallur A.H.
kve
Post a Comment