Thursday, September 30, 2010

September að enda.

Takk kærlega fyrir öll kvittin. Mikið er gaman að finna þetta á skerminum. Þið eruð æðislega öll.
Mín bíður tiltekt í eldhúsinu svo ég fer bara að blogga:)
Klaus lasinn. Ég víst búin að smita hann af kvefinu. Er búin að vera lasin í viku en mæti samt í vinnuna. Maður er jú enginn aumingi, og kannski getur maður smitað leiðinlegu börnin, híhíhí.

Margrét í latínuprófi í 4 klukkutíma. Hlýddi henni yfir sagnir í gær og þakkaði Guði fyrir að þurfa ekki að læra þetta sjálf :) Hún fær núna frí í mánuð, en þá koma næstu próf á fullu og eru fram undir jól, held ég. (meina frí frá prófum, ekki skóla.)

Hér er sól annan daginn í röð. Við erum búin að fá yfir okkur nóg af þessari rigningu. Spáin ekki góð, en reynum að vera bjartsýn. Í morgun voru 5.5 gráður þegar ég ók Margréti í skólann.
Fór svo með Sonju í skólann og við kláruðum að gefa kisa að borða áður en hún mætti klukkan 8 í grunnskólann. Sæki svo Margréti klukkan 11. Hún fer svo á hjóli eftir hádegið í síðustu tímana. Leiðinleg þessi göt.

Við fórum á mánudagsmorguninn til Gifhorn til húðsjúkdómalæknisins hennar. Fyrst með hana í einn tíma, svo heim að koma Sonju, svo að ná í Margréti og aka til Gifhorn (12 km) og aftur í skólann. Stundum er maður bara taxi. Margrét fékk nýtt krem sen virkar vonandi vel. Hún fékk svo slæma þurrkabletti af hinu.

Daniela, sem er með mér í stjórninni, kom svo að panta bækurnar. Nú er ég komin með þetta á mína tölvu og get- vonandi-gert þetta ein á næstunni. Bækurnar koma í næstu viku og þá er að sortera og koma til krakkanna.

Við erum búnar að vera duglegar í gæslunni. Ines er full af orku og framtakssemi. Hún skreytti haustborðið okkar. Gerði það mjög vel enda lærði blómaskreytingakona. Vona að Margrét komi myndum af þessu inn á bloggið sem fyrst. Svo er fundur í foreldrafélaginu í kvöld-í grunnskólanum, og ég ætla þangað. Er nefnilega enn í því þó að Margrét sé löngu farin.

Bakaði Heimilisfrið að hætti Möggu Lár og hann heppnaðist vel. Frau Kühle kom akkurat þá og fékk sér vel af honum. Hún fór svo í gær til mömmu sinnar. Og ég á kattavaktinni.

Doreen varð 17 á mánudaginn. Margrét rétt skrapp til hennar. Doreen er að læra hjá VW í Wolfsburg. Fer svo í iðnskólann í Gifhorn tvo daga í viku svo þetta er eilíft fram og aftur vesen. Hún gistir oft hjá ömmu í Wolfsburg. Þær Margrét ætla að vinna saman í verkefni, sem Margrét þaf að gera. Gott að þær séu alltaf vinir þrátt fyrir ólíkar aðstæður.

Smá framför í tiltektinni. Tók tvo skápa í eldhúsinu í gær og bökunarskúffuna. Vona að hann haldist þurr um tíma um helgina því það þarf svo nauðsynlega að taka skúrinn í gegn. Einu hjóli færra.-Hjóli Annika, tvíburans, sem Margrét passar, var stolið. Og hún fékk rauða hjól Margrétar. Við eigum bara eftir að ákveða verð.

Og þá nálgast klukkan 11 og ég þarf að fara að huga að næstu taxiferðinni:)
Klaus sefur og reynir að láta fara vel um sig. Lasnir karlmenn eru nú alveg sérstök fyrirbæri.
Hafið það gott. Saknaðarkveðjur.

4 comments:

Anonymous said...

Ha ha! Ég hef undan farnar vikur einmitt verið að spá hvort að ég ætti að fá svona taxaskilti á bílþakið!

Haustlægðir að hrista aðeins upp í daglega lífinu hjá okkur hér alla vega á suð-vesturhorninu og haustlitirnir á gangstéttunum.

Hafið það gott, vona að Klaus hressist fljótt...já pestirnar ná oft alveg nýjum hæðum þegar þær ná til þeirra karlanna!!!

Bestu kveðjur, Svanhildur

Kristín E. said...

kvitti kvitt :o) kannast við svona taxa daga :þ veit ekki hvernig þetta verður þegar ég fer að vinna :þ

Anonymous said...

Mamma, þú ert nú samt besti taxinn í heiminum :) Njóttu þess að skutla mér svona fram og til baka - bráðum fer ég að keyra sjálf.
Koss og knús
Margrét

Anonymous said...

ástar og saknaðarkveðjur til ykkar-væri alveg til í að vera þarna og skutlast með ykkur hingað og þangað. Og Margrét þú ert frábær off-road bílstjóri eins og þú sýndir mér í sumar ;)lol (lots of love...híhí) A.H.