Þriðjudagsmorgunn og sólin skín glatt. Eftir allar demburnar undanfarna vikuna og þá sérstaklega síðustu fjóra daga, erum við alsæl að sjá sólina. Það var varla hundi út sigandi. Sagt í fréttum að ekki hafi áður verið mæld svona mikil úrkoma í ágúst. Þetta var alveg nóg og meira en það.
Við höfum það ágætt. Klaus fór í gær til Marburg og gisti það í nótt. Ók honum á lestarstöðina í gær um kaffileytið og hann lenti í einni ofsa dembunni. Kemur svo heim um kvöldmat í kvöld.
Ók reyndar Margréti í morgun í skólann þrátt fyrir blíðuna. Hún er í dag með maraþondaginn sinn. 7.30 til 16.15, og svo kemur Lennart í latínu til hennar. Ég reyni að dekra smá viða hana á svona dögum, en veit að þið trúið því nú ekki. Mér leiðist frekar að dekra við fólk:)
Er loks aftur komin í gang með æfingarnar mínar og finn hvað ég er aftur máttlaus í magavöðvunum. Klaus gat loks komið lofti í nýja/gamla hjólið mitt, sem ég keypti af Hildegard. Það er með dempara, sem er gott fyrir fólk með lélegan kjallara :) Hún seldi mér það á 150 evrur. Gat ekki notað það út af því að grindin er svo há að hún á erfitt með að lyfta löppunum yfir, hjá pedúlunum sem sagt. En hún lét setja nýtt stýri, sem er ekki gott. Held ég setji aftur það upprunalega. Við Margrét náðum í hjólið meðan Klaus var í Berlin og stönsuðum um stund hjá þeim stöllum. Alltaf gaman að koma til þeirra.
Margrét er búin að skifta um lækni. Hún er hjá konu í næsta þorpi, Frau Kremeike. Við erum búnar að fá nóg af Weiland, sem var alltaf svo kærulaus og útskýrði ekki neitt fyrir manni. Margrét fór í blóðtöku (segir maður það?) og allt í lagi. Eins skoðaði hún skjaldkirtilinn og engir hnútar eru hjá henni. En engin undankoma með að taka þessar pillur á morgnana og það er bara hlutur af okkar daglegu tilveru það sem eftir er ævinnar. Þessi læknir er bara æðisleg og við mjög ánægðar. Ég á svo eftir að skifta líka.
Veðrið hefur ekki gert mann hressan. En eitthvað dundar maður sér þó við skemmtilegu tiltektina, híhí. Tók geymsluna í gegn og það var að vanda mikið verk. Klaus sló grasið á laugardaginn áður en fyrsti skúrinn kom. Ég gat hreinsað mosa og illgresi á milli steinanna í stéttinni framan við húsið og tekið slatta af beðunum í gegn. Milli skúra:)
Svo tókum við tvisvar mynd á leygu og nutum þess að vera öll í rólegheitum framan við sjónvarpið á fö. og laugardaginn. Margrét bakaði banana möffins á sunnudaginn. Ég svo marmaraköku í gær og súkkulaðiskonsur. Margrét fegin að fá eitthvað gott með kornabrauðinu í nesti í morgun.
Margrét þarf að lesa námsefni þessa veturs og síðasta veturs fyrir stúdentsprófið. Fyrsta prófið er í lok mars. Kennsla þar til tveimur dögum áður eða um það bil. Svo það er ekkert sem kallast upplestrarfrí. Ó nei. Enginn lúxus hér. Hún þarf þess vegna að lesa smám saman þetta efni til að halda sér við. Dreif í því í gær að byrja á enskunni og ætlar að taka allavega klukkutíma hvern mánudag í upprifjun. Annars fer þetta bara í stress. Hún verður svo í helling af prófum núna í september og í nóvember. Þá straks í 4 klukkustunda prófum til að venja sig við stúdentsprófin. Þetta er reyndar klikkun en svona er það bara hérna.
Jæja. Ég hætti þá í bili þó að fáir lesi þetta enda halda menn líklega að ég sé alveg hætt eftir svona langt hlé :) Vona að þið hafið það sem best. Kærar kveðjur frá Meinersen.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
HæHæ... bara tvö ný blogg, ég er búin að kíkja hér af og til í sumar en missti alveg af þessu núna hehehe
Mikið væri ég til í að kíkja í heimsókn til ykkar, það gerist einhvern tíman, ekki spurning :o) hvenær veit ég þó ekki hehe.
Bið að heilsa elsku Margréti þinni og Klaus líka
takk fyrir kveðjuna, Kristín :)
elsku mamma mín, ég les nú alltaf bloggið þitt. gott að þú sért komin í gang með að blogga aftur (og nátturlega með grindareitthvaðæfingarnar þínar) :D
lovjú mamma <3
Margrét
comment ;) A.H.
Post a Comment